Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 39
Pistilinn skrifar Markmið og tilgangur með stofnun sjómanna- blaðsins „Víkingur“ var áreiðanlega sá að gjöra tilraun til þess, að sameina sjómenn um áhuga- mál sín og velferðarmál stéttarinnar, en alls ekki sá, að vera með óþarfar og óheppilegar hnútur til sérstakra manna bæði í tíma og ótíma, sem aðeins geta leitt af sér óþarfa leiðindi, en missa þó marks þar eð sannanirnar eru ekki lagðar á borðið um ieið. Líf og starf sjómann- anna er svo heiðarlegt og drengiiegt, að það er illa farið, er einstöku menn úr stéttinni eru svo baráttufúsir, að þeir skyrrast ekki við að setja á prent allskonar óhróður um menn og málefni, án þess fyrst að gjöra sér ljóst, hvað muni nú vera unnið við slikt, fyrir stéttarsamtökin. En það verður þó að ganga út frá, að tilgangurinn hafi ekki verið eins slæmur og margt bendir til. Betur væri að slíkir menn temdu sér þann góða sið að telja upp að þúsund, áður en þeir létu slík skrif frá sér fara er hér um ræðir, verið gæti, þá að af mönnum dragi mesta móðinn og augu þeirra upplykjust þá fyrir því að það er gott á stundum að geta talað, en að stundum er beti’a að þegja. En það er tilefni þessara orða, að í síðasta tölublaði „Víkings“ er pistill í greinaflokknum „um hvað er talað,“ sem ég álít að eigi alls ekki heima í þessu blaði, nefnist pistill þessi „Gutenberg.“ Því hefir einu sinni verið lýst yfir, að blað þetta tæki ekki afstöðu til flokka þeirra, er um völdin deila nú í landi voru, á meðan að svo er, er hvorki drengilegt né rétt að vera sýknt og heilagt, að narta í sömu menn, eða sér- stakan flokk manna, nema því aðeins að þeir hafi orðið berir að fjandskap og fláttskap við sjómennina. Látum hin blöðin deila um leig- una á Gutenberg, engir munu vaxa af þeirri deilu. Það er ekki svo að skilja að sjómenn varða að sjálfsögðu öll mál er upp koma, jafnt og aðrar stéttir þjóðfélagsins, en við höfum annað markmið. með þessu blaði, en það, að taka þátt í slíkum umræðum, sem átt hafa sér stað um þetta og fleiri mál því lík. Þegar að sjómenn eru orðnir svo samtaka og samstarfið svo heilsteypt, að af því megi árangurs vænta í hinni almennu stjórnmála- baráttu, þá liggur beint fyrir að breyta blaðinu í stjórnmálablað, eða gefa út annað, sem hefir það hlutverk, fyrr er ekki tímabært, né heldur til neins gagns, að vera með sífellt nart í ein- staka menn. I sama pistli eru einnig önnur ummæli, sem eru að mínu áliti algjörlega óverðskulduð, óvið- eigandi og vanhugsuð, hvaðan kemur höfundi réttur til þess, að hafa þar þau ummæli, um þá menn er hann hefir í huga, að þeir séu „ó-sjálfbjarga“ „ó-jafnaðarmenn“, slíkt eru al- gjörlega óviðeigandi og óverðskulduð orð í þeirra garð. Ég gjöri ráð fyrir að þetta þurfi ekki frekari skýringa, en svo mikið er víst, að ég tel það einmitt lýsa atorku og áræðni, að menn þeir er þar mun átt við, fóru inn á þessa braut, til þess að taka þátt í glímunni um gull- kálfinn. Borðstofuhjal nokkurra fárra manna er ekki ávallt í samræmi við það sem þjóðin helzt vill halda á lofti. H. Hafstein segir í einu af kvæðum sínum: „Strikum yfir stóru orðin, standa við þau minni reynum, skjöllum ekki skrílsins vammir, skiljum sjálfir hvað vér meinum." Þessi orð hins mikla skálds er vert að hafa í huga, þegar menn henda sögur og órökstudd ummæli manna og blaða á skotspónum. Á. S. Nýtt skipstjóra- og stýrimannaíélag Skipstjóra- og stýrimannafélagið Grótta var stofnað sunnudaginn 14. júní síðastliðinn. Er það félag skipstjóra og stýrimanna með hinu minna fiskimannaprófi. Tilgangur félags þessa er að vinna að hagsmuna og launamálum með- lima sinna, svo og kynnum þeirra í milli. Þá vill og félagið vernda rétt meðlima sinna og einnig láta til sín taka endurbætur á sviði sjáv- arútvegsins. Starfsvið félagsins er Reykjavík og útgerðar- stöðvar við Faxaflóa, þó að Akranesi undan- skildu. — Þegar hafa nær 100 skipstjórar og stýrimenn gerst meðlimir, þó mun tala með- lima aukast enn að mun. Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og þrem til vara. Þessir hlutu kjör í stjórn fé- lagsins á stofnfundi þess Formaður: Agnar Hreinsson, ritari: Guð- mundur Ó. Bæringsson, gjaldkeri: Gísli Jóns- son. Meðstjórnendur: Valgarð Þorkelsson og Auðunn Sæmundsson. í varastjórn félagsins eru: Varaformaður: Bjarni Þorsteinsson, vararit- ari: Ágúst Snæbjörnsson, varagjaldkeri: Þor- steinn Jónsson. V I K I N G U R 39

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.