Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Síða 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Síða 44
Úr starfskýrslu Vélstjóra- félagsins 1941 Vöntun á æfðum vélstjórum. Einhver erfiðasti þátturinn í starfsemi fé- lagsins er vélstjóraeklan. Fyrir alllöngu er svo komið, að réttindamenn hafa ekki fengizt, og óvaninga hefir orðið að setja í þeirra stað, til þess að koma skipunum út. Þetta er að vísu ekki nýtt fyrirbrigði hér eða annarsstaðar, en það er alls ekki æskilegt eigi að síður. Dæmi eru þegar fyrir hendi um alvarlegar truflanir, er rekja má til mistaka af þessum ástæðum. En þegar svo er komið, éins og nú er víða á togur unum, að ekki er nema einn æfður vélstjóri á skipi, þá verður aðstaða hans mun erfiðari en áður, og var þó ekki á bætandi Ýtir það að sjálfsögðu undir enn meiri flótta frá skipunum. Sem betur fer, munu nú allflestir útgerðar- menn komnir á þá skoðun, að starfsemi vél- stjórafélagsins undanfarið, er miðar í þá átt að mennta vélstjórana sem bezt, þó ýmsir örð- ugleikar séu á þeirri leið, hafi verið hin eina rétta. Samvinna hefir því verið góð bæði við skipaeigendur og skipstjóra um að bjargast yfir þessa erfiðleika eftir beztu getu. Við verð- um að líta á þetta allt sem bráðabrigðaástand og haga gerðum okkar eftir því. Þó að telja megi víst, að vélstjórar þeir, er hafa snúið sér að landstörfum um stund, leiti til skipanna aftur, ef vinnuskilyrði breytast, þá er fullkomlega réttmætt, að félagið ýti undir aðstreymi að stéttinni. — Útlit er að vísu ekki Enskir sjóliðar, œfðir til þess að geta tekið þátt í bardögum landgöngusveita. gott um fjölgun stórra vélskipa eins og stendur. En það er þjóðfélaginu svo knýjandi nauðsyn, að það verður að komast í framkvæmd, þó ein- hver dráttur kunni á því að verða. Munu allir sammála um það. Okkar lilutverk er reyndar að búa í hagirm fyrir þá einstaklinga, sem skipa sér í okkar raðir. En við megum þess vegna ekki láta okkur henda þá skyssu, sem ýmsar fagstéttir hér hef- ir hent, að stefna að eigin innilokun. Heilsteypt og athafnasöm stétt getur því að eins orðið til, að nokkurt úrval eigi sér stað; það er undir- stöðuatriði eðlilegrar þróunar. Áminnstir erfið- leiltar eru líklegir til að setja mark sitt á stétt- ina í bili, en sé málinu haldið fram af hendi fé- lagsins með viðsýni og vakandi áhuga, vex stétt- in að nýju upp yfir örðugleikana og eflist að, orku og magni enn meir en áður var. Aðalfundur F. í. L. Aðalfundur F .1. L., haldinn 26. júní 1942, mótmælir eindregið, að fyrirhugaður Sjó- mannaskóli íslands verði bygður eftir, eða í líkingu við, þá uppdrætti Sigurðar Guðmunds- sonar, sem hlutu hæstu verðlaun í hugmynda- keppni um Sjómannaskólann, og sem síðan hafa verið birtir í Lesbók Morgunblaðsins (7. júní 1942). Álítur fundurinn að hvorki sé hægt að sætta sig við útlit byggingarinnar eins og hún er á uppdrættinum, eða þá afstöðu, sem henni er valin á hinni fyrirhuguðu lóð. Ennfremur vill fundurinn mælast til þess, að 10—20 utanbæjarnemendum verði trygð heimavist í skólanum, en ráð er gert fyrir heimavistarhúsi, er síðar yrði hægt að byggja á lóðinni. Fundurinn mótmælir einnig þeirri ákvörð- un atvinnumálaráðherra, að taka ekki til greina ítrekaðar samþykktir og áskoranir byggingar- nefndar sjómannaskólans, um að húsameistara ríkisins yrði falið að gera uppdrátt að skóla- byggingunni, eftir að sýnt var að enginn þeirra uppdrátta, sem borizt höfðu, var af nefndar- innar hálfu talinn hæfur til 1. verðlauna. í stjórn félagsins voru kosnir: Friðrik Halldórsson, Geir Ólafsson, Jón Eir- íksson, Haukur Jóhannesson og Halldór Jóns- son. Stjórnin skiptir með sér verkum. 44 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.