Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Blaðsíða 39
1/1. Þriðji her Bandaríkja- manna sækir fram í Belgíu og Luxemburg. Fulltrúar ELAS flokkanna grísku sitja á ráð- stefnu við Scobie, fulltrúa Breta, í Aþenu. Barizt er í Budapest. * 2/1. Þjóðverjar hefja sókn á Saar-vígstöðvunum. Bandaríkja- menn halda áfram framsókn í Belgíu og Luxemburg. Rússar hefja árásir á meginstöðvar Þjóðverja í Brest. * 3/1. Þjóðverjar vinna á milli Rínar og Saarreguemines. Rúss- ar hafa % hluta Budapest á sínu valdi. Tyrkir slíta stjórn- málasambandi við Japan. «■ 4/1. Bandaríkjamenn sækja fram í Ardennafleygnum. Þjóð- verjar vinna enn á í nánd við Saarreguemines. * 5/1. Rússneska stjórnin viður- kennir Lublinstjórnina í Pól- landi. Montgomery tekur við yfirstjórn Bandaríkjahersins fyrir norðan Ardennafleyginn. * 6/1. Þjóðverjar halda áfram sókn við Saarreguemines. Þeir fara yfir Rín fyrir norðan Strassbourg. Kanadamenn eru komnir að Comacchiovatni á Ítalíu. * 7/1. Hersveitir Montgomery rjúfa járnbraut milli La Roche og St. Vith. Rússar yfirgefa bæ fyrir norðvestan Budapest. * 8/1. Herir Montgomerys sækja fram á norðurhluta Ardennavíg- stöðvanna. Kanadamenn sækja fram á ítalíu fyrir norðan Ra- venna. Fyrir norðan Dóná vinna Rússar á. * 9/l.Árásir bandamanna harðna á Ardennasvæðinu. Fyrir vestan Budapest vinna Þjóðverjar á, en hörfa í borginni sjálfri. Risa- flugvirki Bandaríkjamanna réð- ust á Tokio og fleiri borgir í Japan. Sagt er, að 150 flutn- ingaskip Bandaríkjamanna séu í nánd við Luzon-ey. Hernaðar- útgjöld Bandaríkjamanna fyrir næsta fjárhagsár eru áætluð 70 milljarðar dollara. * 10/1. Bandaríkjamenn setja mikið lið á land á Luzon-ey, sennilega tugi þúsunda her- manna. -X- 11/1. Þjóðverjar eru á hröðu undanhaldi á vesturhluta Ar- dennavígstöðvanna. Sókn Þjóð- verja fyrir vestan Budapest er stöðvuð. Þjóðverjar segjast hafa yfirgefið Ardennafleyginn. •» 12/1. Rússar hefja lokasókn í Budapest.Bandaríkjamenn sækja fram á Luzon-ey. Norskir fall- hlífahermenn valda skemmdum á járnbrautum í Noregi. * 13/1. Rússar hafa rofið varn- ir Þjóðverja á Vislu-vígstöðv- unum og sótt fram 40 kílómetra þar. * 14/1. Bandamönnum verður allmikið ágengt í Belgíu. Rúss- ar sækja fram í Suður-Póllandi. Þjóðverjar segja Rússa hafa haf- ið stórsókn á landamærum Austur-Prússlands. * 15/1. Bandamenn nálgast Houffalize í Belgíu. Rússar eru komnir í skotmál við Kielce í Póllandi og sækja fram á öll- um vígstöðvum frá Karpatafjöll- um til Njemen. Bandaríkjamenn hafa 72 km. strandlengju á sínu valdi á Luzon. * 16/1 Rússar taka Kielce í Póllandi, 80 km. frá landamær- um Þýzkalands. Amerísk herskip skjóta á Hongkong í Kína. Rúss- ar hefja nýja sókn í Póllandi. Bretar eru í sókn fyrir vestan Geilenkirchen. * 17/1. Rússar taka Varsjá. * 18/1. Rússar fara yfir landa- mæri Slesíu. * 19/1. Krakau og Lodz teknar. Rússar sækja hratt fram í Aust- ur-Prússlandi. * 20/1. Rússar taka Tilsit og 4 aðra bæi í Austur-Prússlandi, Novo Sacz í Suður-Póllandi og tvo bæi í Slóvakíu. I Ungverja- landi sækja Þjóðverjar fram í nánd við Budapest. * 21/1. Rússar taka Gumbinnen og Tannenberg í Austur-Prúss- landi. * 22/1. Rússar taka Allenstein og Insterburg í Austur-Prúss- landi. Eru þar sem skemmst er 260 km. frá Berlín. Þjóðverjar byrja allsherjar undanhald í Ar- dennafleygnum. * 23/ Rússar komnir að Oder- fljóti og hafa tekið virkisborg- ina Bydgoscz í Póllandi og auk þess tvær virkisborgir í Austur- Prússlandi. Þeir eru 40 km. frá Eystrasalti. Þjóðverjar vinna á fyrir vestan Budapest. * 24/1. Rússar hefja nýja sókn í Tjekkóslóvakíu, taka Kalisz í Póllandi og Oppeln í Slesíu og bæ fyrir norðvestan Breslau, 225 km. frá Berlín. Þjóðverjar vinna á fyrir vestan Budapest. * 25/1. Rússar taka Gleiwitz í Slesíu og Öls skammt frá Bres- lau. Rjúfa yzta varnarhringinn um Königsberg. Þjóðverjar hörfa með meginher sinn úr Ardenna- fleygnum. VÍKINGUR 39

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.