Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 10
þessu landi auðæfanna, og flutt þaðan reykslsi,
gull, fílabein, augnsmyrsl, apa og þræla.
Þegar fram liðu stundir, urðu Egyptar mjög
íhaldssöm þjóð, næstum því eins og Kínverjar.
Allt stóð í stað, hjakkaði í gömlu fari. Svo var
einnig um skipin, enda fór svo fyrr en varði, að
framsæknari þjóðir komust langt fram úr
Egyptum í skipasmíðum og siglingum öllum.
Fyrsta siglingaþjóðin við Miðjarðarhafið,
sem verulegar sögur fara af, eru Kríteyingar.
Þar reis tiltölulega snemma á fót merkilegt
menningarríki, og voru siglingarnar ein af
meginstoðum þess. Kríteyingar héldu snemma
uppi miklum siglingum til Egyptalands, verzl-
uðu við Egypta, lærðu af menningu þeirra og
endurbættu margt, einkum í hagnýtum efnum.
Um 2000 árum fyrir KriSts burð, virðast leir-
vörur Kríteyinga hafa verið algengar orðnar í
Egyptalandi. Síðar komust Kríteyingar alllangt
suður með Afríkuströndum og ráku þar verzl-
un. Þeir sigldu einnig vestur á bóginn, til Sikíl-
eyjar og Ítalíu. Hafa fundizt í löndum þessum
gamlar myntir Kríteyinga, sumar frá því um
1200 fyrir Krists burð. Loks er vitað, að Krít-
eyingar sigldu gegnúm Messínasund. Sumir
telja, að þeir hafi komizt fyrir Gibraltar, út úr
Miðjarðarhafi, allt til vesturstrandar Spánar.
En röskum 1000 árum fyrir Krists burð
hrundi ríki Kríteyinga í rústir. Hellenskir þjóð-
flokkar lögðu það undir sig og tileinkuðu sér
menningu þess og tækni. Þar með var lokið sögu
Kríteyinga sem sjálfstæðrar og merkilegrar
siglingaþjóðar.
Héimildir um skip Kríteyinga eru af heidur
skornum skammti. Þau hafa eflaust verið mikl-
um mun fullkomnari en fljótabátar Egypta og
sennilega líkari skipakosti Fönikíumanna, sem
brátt mun lýst.
Langmesta siglingaþjóð fornaldar voru Fön-
ikíuménn. Hafa fáar þjóðir lagt jafnmikinn
skerf og þeir til þróunar siglinga og skipa-
gerðar.
Fönikíumenn bjuggu fyrir botni Miðjarðar-
hafs, milli þess og Líbanonsfjalla. Þeir mæltu
á semítiska tungu og voru vafalaust komnir
sunnan og austan úr Arabíu, eins og aðrar
Semítaþjóðir. Fönikíumenn voru svo vel í sveit
settir, að þeir bjuggu í þjóðbraut milli tveggja
gamalla menningarríkja, Egyptalands og Mes-
ópótaníu. Því fylgdi ágæt aðstaða til að læra
af þessum þjóðum og nytja þær uppgötvanir
og framfarir, sem þróuðust hjá þeim. Og Fön-
ikíumenn voru bæði gáfaðir og námfúsir. Þeir
hagnýttu sér tæknilega menningu nágranna
sinna og endurbættu margar uppgötvanir
þeirra. Þeir tóku upp óbrotið og auðvelt stafróf.
Þeir hófu að nota silfur og síðar gull sem gjald-
miðil. Skipagerðarlistina lærðu þeir af Egypt-
um. En þeim nægði það ekki, að smíða hina
sömu gerð skipa og Egyptar höfðu notað um
margra alda skeið. Á tiltölulega skömmum tíma
gjörbreyttu þeir skipalaginu og komu sér upp
góðum hafskipum, sem hægt var að sigla á til
fjarra landa. Skip þeirra voru löng, mjó og
rennileg, ólíkt hraðskreiðari og betri í sjó að
leggja en stamparnir, sem nágrannar þeirra,
Egyptar og Babyloniumenn, hjökkuðu í við
bakka stórfljótanna.
Til eru öruggar heimildir fyrir því, að Fön-
ikíumenn héldu uppi stöðugum siglingum um
allt Miðjarðarhaf, komu sér þar víða upp ný-
lendum og reistu borgir þar sem hafnarskil-
yrði voru bezt. Varð Karþagó þeirra langsam-
lega voldugust og frægust. Á 12. öld fyrir Krists
burð sigldu þessir djörfu garpar gegn um
Njörfasund og þar með vestur úr Miðjarðar-
hafi. Um 1100 reistu þeir borg á vesturströnd
Spánar, en þangað var í lok fornaldar talin 80
sólarhringa sigling austan frá Tyros. Og þeir
létu ekki þar við sitja. Nokkru síðar brutust
þeir alla leið norður að ströndum Englands, og
sóttu þangað tin og aðra málma. Þá eru ýmsar
líkur til þess, að Fönikíumenn hafi siglt til
hafna við Norðursjó sunnanverðan og jafnvel
allt inn í Eystrasalt. Sögur herma, að þangað
hafi þeir sótt hið dýrmæta raf, sem ákaflega
mikilsvert þótti á þeim tímum. Loks eru til frá-
'sagnir um siglingu Fönikíumanna í kringum
Afríku. Ýmsir hafa viljað véfengja þær frá-
sagnir, en ferðasagan er svo greinileg og sann-
færandi, að maður freistast óneitanlega til að
trúa henni. Menn þeir, er förina fóru, lögðu
af stað eftir Rauðahafinu og sigldu suður á
292
VI K I N G U R