Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 11
bóginn. Þegar vistir þraut, fóru þeir í land, sáðu korni og biðu eftir uppskeru. Af því búnu sigldu þeir áfram, unz þeir að þrem árum liðnum komu aftur úr svaðilför þessari, eftir að hafa farið hringinn, og hétdu þá um Njörfasund og Mið- jarðarhaf. Fönikíumenn stofna fyrsta sjóveldið, sem um getur í veraldarsögunni. Margt sannar það, að sjóveldi þessarar harðduglegu þjóðar var meira en nafnið tómt. Greinilegar frásagnir og óvé- fengjanlegar eru til um gífurlegan skipaflota Karþagóborgar. Við Karþagó gerðu Fönikíu- menn stórfelldar hafnabætur fyrir skipastól sinn. Voru þar tvær hafnir afgirtar, önnur fyr- ir kaupför en hin var herskipalægi. Svipað, en nokkru smærra, hefur þetta verið í öðrum hafna- borgum Fönikíumanna til og frá við Miðjarð- arhaf, vestur á Spánarströndum og suður með allri vesturströnd Afríku. Skip Fönikíumanna munu aðallega hafa ver- ið af tveimur gerðum, herskip og kaupskip. Voru herskipin rennileg og hraðskreið, en kaup- förin breiðari, borðhærri og betur undir það búin að velkjast lengi í hafi. Minnir þessi skipt- ing mjög greinilega á þróun norrænna skipa um og fyrir víkingaöld, en sú þróun hefur orð- ið með furðu svipuðum hætti. Ekki verður margt sagt með öruggri vissu um seglbúnað á skipum Fönikíumanna. Helzt er svo að sjá, sem þeir hafi í upphafi notazt við hina einkennilega trönusiglu Egypta. En síðar hafa þeir lagt niður tvímastrið og tekið upp einfalda siglu í miðju skipi. Þeir notuðu einungis rásegl, og hefur það verið allstórt. Sum yngstu skip Fönikíumanna virðast hafa verið tvísigld. Stórsiglan var þá aftur í miðju skipi, en önnur sigla minni mjög framarlega í skipinu. Var sitt ráseglið á hvorri siglu. Sægarpar þessir notuðu akkeri, og gátu legið við þau á grunnsævi þegar veður var ekki mjög illt. Akkeri þessi voru þó ekki úr járni. I þess stað notuðu þeir þunga steina eða húðpoka fyllta grjóti. Þegar fram liðu stundir, eignuðust Fönikíu- menn skæða keppinauta á höfunum, sem náðu smám saman frá þeim verzlun og siglingum. Voru það Hellenar og síðar Rómverjar. Fyrsta sjóveldi veraldarsögunnar leið undir lok, en siglingaafrek Fönikíumanna munu varðveitast í sögn og sögu, svo lengi sem nokkurt skip fer um sæinn. Kjördæmamátíb 13. þing F.F.S.Í. ger'ði ályktun í kjördæmamálinu um að landi'ö yrfii gjört afi einu kjördœmi. Samþykktin hljó'ðar svo: „13. þing F.F.S.I. ályktar a'S ríkjandi ástand í kjördœmaskipan á lslandi sé óviSunandi og hafi skaöleg álirif á stjórnmálalífiö í landinu. Telur þingift hyggilegt, að í sairibandi vlö samningu nýrrar stjórnarskrár fyrir íslenzka lý'Sveldiö, veröi landiö gert að einu kjördœmi“. 1 sambandi viö þetta mál má upplýsa, að birt liefur veriS í Tímanum 10. nóv. opiö bréf til Asgeirs Sigurössonar skipstjóra, sem formanns F.F.S.Í., og þar fari'8 fram á að skýrt sé frá hosningafyrirkomulagi í oörum löndum. í því sambandi tel ég mér ekki skylt, eða stjórn sam- bandsins, að annast neina upplýsingastarfsemi um kosningdfyrirkomulag annarra þjóöa, en samþykktin er til oröin í þeim augljósa tilgangi. að ba?ta úr ranglátu kosningafyrirkomulagi bér á landi. Samþykktin felur í sér jafnan atkvœöisrétt fyrir hvern þjó'Sfélagsþegn, hvar sem hann á beinia á landinu. Þetta œttu þeir ekki að hrœSast, sem vita sig hafa góöan málstaS, en hinum lJ(,l'f ekki að vorkenna, þéir eiga að hverfa, að dómi allra þeirra, sem trúa á sigur hins gófta í beiminum. Ásg. v I K I N G L) R 293

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.