Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 16
fábreytni sjómannalífsins, þessari góðu, trygg- lyndu skepnu, sem launaði þeim vinsemd þeirra með einlægu þakklæti og fölskvalausri ást. Því að Stubbur var skynsamur hundur, þótt ljótur væri, og fljótur að læra hinar margvíslegu listir, sem hásetarnir kenndu honum. Þessar list- ir lék hann svo þeim til skemmtunar, og allir undruðust leikni hans og gáfur. Og hvílík hugg- un var hann ekki þessum einföldu, lítilþægu mönnum, sem hann hjálpaði til að gleyma striti og harðrétti siglinganna og hinum löngu fjar- vistum frá ástvinum og heimkynnum. Hann spígsporaði á afturfótunum með hinn skringilegasta spekingssvip á greindarlegu and- litinu; hann klifraði upp í reiðann og sat þar þangað til einhver kallaði: „Niður úr möstrun- um“ til hans; hann urraði og fitjaði upp á trýn- ið, þegar þeir sögðu: ,,Á ég að hýða þig, Stubb- ur?“ og brosti og dillaði rófustúfinum, þegar þeir spurðu: ,,Viltu fara í land?“ Þegar flaut- an gall og bátsmaðurinn hrópaði: „Allir upp á þilfar!“ þaut hann upp með hásetunum,. hvernig sem viðraði, og skildi ekki við þá fyrr en vaktin var á enda. Og í stoi'mum og illviðrum var hann jafnan uppi á þilfarinu og stytti há- setunum stundir við strit þeirra og erfiði. Þeg- ar flautað var til brennivínsskömmtunarinnar, fylgdi hann þeim einnig til þeirrar athafnar; og á matmálstímum gekk hann milli þeirra á aft- urfótunum og þakkaði þeim með gleðilegu gelti fyrir rausnarlegar krásirnar, sem þeir hentu til hans. Eftir kvöldverðinn, þegar vaktin geklt til hvílu, lagðist Stubbur æfinlega við fæturna á Kochnev gamla, forhertasta svallara skipsins. Hundurinn hafði lagt átakanlega hlýju og innilega ást á þennan þungbúna, fáláta mann, sem hafði frelsað hann, umkomulausan flækinginn, und- an snörum götusóparanna og veitt honum ör- uggt hæli og nægan mat á skipinu, og hamingju- samt líf meðal manna, er frá byrjun höfðu sýnt honum vinsemd og blíðu, sem hann hafði ekki þekkt síðan hann var hvolpur. Og gamli Kochnev hafði líka tekið ástfóstri við þennan skjólstæðing sinn, sem hafði reynzt svo óvenjulegum gáfum gæddur, og gerði hann að eina trúnaðarvini sínum, sér í lagi þegar hann var við skál. Þá sagði hann honum frá þorparanum, sem hafði þröngvað lionum í flot- ann með klækjum sínum, frá konu sinni, sem lifði eins og hefðarfrú, og dóttur sinni, sem var svo fín, að hún vildi hvorki heyra hann né sjá. Og Stubbur virtist skilja, að það var harma- 29B saga, sem þessi þunglyndi vinur hans sagði hon- um, meðan hann tæmdi glas eftir glas í ein- hverri skuggalegri krá í framandi landi. Og nú var haft við orð að kasta Stubbi fyrir borð. Auðvitað var enginn hneykslaðri yfir hótun- um lautenantsins en Kochnev sjálfur, og hann afréð að koma í veg fyrir það með öllum ráðum, að hundurinn yrði nokkurn tíma á vegi þessa langa slána. Þennan sama dag, þegar flautað var til brennivínsskömmtunarinnar og Stubbur ætlaði að trítla upp á þilfar eins og venjulega, kallaði hann þess vegna á hann, benti honum á dimmasta skotið undir lyftingunni og sagði: „Hér verðurðu að .vera kyrr, Stubbur, því að annars ei’tu í háska staddur. Ég skal færa þér matinn þinn hingað". IV. Mánuður leið, og hásetarnir hötuðu lauten- antinn því meir sem þeir kynntust honum betur. Reyndar lét hann ekki húðstrýkja neinn, og ekki barði hann þá heldur né gerði sig sekan um önn- ur grimmdarverk. En þeir hötuðu hann samt fyrir smámunasemi hans og ástæðulausar að- finnslur. Alltaf var hann snuðrandi á hælunum á þeim, og stæði hann einhvern þeirra að smá- vægilegri yfirsjón, hélt hann fyrst yfir honum þrumandi áminningarræðu, og hegndi honum síðan á illyrmislegasta hátt, sem hugsast gat — með því að svipta hann landgönguleyfi, einu upplyftingu sjómannsins eftir langa ferð. önn- ur refsing, sem hann notaði oft, var að „senda þá upp“ og láta þá standa í reiðanum eða sitja á ráarhúnum, en sárgrætilegast var það þó, að hásetunum fannst, þegar hann svipti þá brenni- vínsskammtinum þeirra. Baróninn ávann sér ótta og hatur með þessum hegningum og hinni smásmugulegu hótfyndni í stjórn sinni um borð. Hásetunum fannst sem þeir væru að sligast undir einhvers konar misk- unnarlausu fargi, og ekki bætti það úr skák, að þeir fundu, hvernig baróninn fyrirleit þá alla og taldi óbreytta sjóliða vinnuafl og annað ekki. Aldrei heyrðu þeir gamanyrði né vingjarnlegt orð af vörum hans’— alltaf þessa sömu, köldu, þyrrkingslegu rödd með hrokafullum fyrirlitn- ingarhreimnum. Ekki báru þeir heldur mikla virðingu fyrir baróninum sem sjómanni. Frammi í lyfting- unni (þessum rannsóknarrétti sjóliðanna, þar sem skaphöfn og eiginleikar hvers yfirmanns eru vandlega skoðaðir og dæmdir) var sá úrskurður VÍ KIN G U R ■

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.