Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 25
og fiskistofninum frá tortímingu, ef íslending- ar gjöra það ekki? Svarið virðist vera einfalt og blátt áfram: Það gerir enginn. IV. íslendingar verða að sýna viðleitni til að sporna við ófarnaðinum. Samkvæmt bví, sem áður er sagt, hefur Is- lendingum, þrátt fyrir brýna nauðsyn, ekki ver- ið mögulegt að fyrirbyggja yfirgang erlendra fiskimanna á miðunum við strendur landsins, yfirgang, sem jafnan hefur verið álitinn mis- beiting á valdi og haft hefur í för með sér hin- ar alvarlegustu afleiðingar fyrir framleiðslu- möguleika landsmanna. Þegar rýrnun fiskistofnsins er orðin svo á- berandi, eins og að framan segir, þá er það ekki aðeins tjón fyrir Islendinga, heldur og fyrir alla aðra, er reka veiðar við landið eða á þeim stöðvum, sem fiskur fæddur við Island er veidd- ur, t. d. við Grænland og jafnvel víðar. Þar af leiðandi eru það ekki Islendingar einir, heldur og allir þeir fiskimenn, er stunda veiðar á því svæði, sem fiskur fæddur við ísland aflast, sem eiga að telja sér skylt, að veita allri starfsemi til umbóta á ástandinu það liðsinni, er þeir megna. Því má ekki gleyma, að mönnum hefur verið talin trú um að þriggja sjóm. landhelgin, — sem allir Islendingar síðustu mannsaldra hafa mót- mælt — væru alþjóðalög, sem menn verði að sætta sig við, og landsmenn verði að bera það með þögn og þolinmæði, að erlendir fiskimenn láti greipar sópa um fiskimiðin, sem liggja fyrir • utan þriggja sjóm. takmörkin. Að menn yrðu að líta á það með velvilja, að Frökkum og Þjóð- verjum og sérhverjum öðrum ríkisborgurum, séu heimil fiskimiðin við strendur landsins, Eng- lendingar hefðu fyllsta rétt til að notfæra sér kolamiðin í Faxaflóa og annarstaðar við strend- urnar, Norðmenn, Svíar og Rússar mættu taka alla síld er þeir sæju á yfirborði sjávarins utan þriggja sjóm. takmarka fyrir Norður- og Aust- urlandi o. s. frv. Þetta hefur okkur verið kennt og við höfum verið sjónarvottar að því, að svona hefur það verið í framkvæmdinni. En þetta er niesti misskilningur. Þrigg.ja sjómílna ákvæðið byggist á samningi nolckurra ríkja, er lig-gja að Norðursjónum, þar sem þessi ríki komu sér saman um að hvert þeirra fyrir sig væri skyld- ugt að annast löggæzlu út frá ströndinni, á svæði, er næmi þessari vegalengd. Engin ríki hér í álfu nema ísland hafa hagað sér eftir þessum ákvæðum, heldur sett landhelgi sína eftir því, sem þau hafa álitið hagkvæmast til verndar fiskveiðum sínum og öðnmi hags- munum. Landhelgistakmörk margra ríkja í Evrópu, svo og í öðrum heimsálfum, eru t. d. 4, 6, 8, og 10 sjómílur, jafnvel 20 sjómílur frá ströndinni, svo það er enginn alþjóða mælikvarði fyrir því, hversu langt hagsmunasvæði hvers einstaks lands nær frá ströndinni. Landgrunnið við strendur íslands er almenn- ingur, sem allir nota en engdnn verndar eða gæt- ir. Að láta það viðgangast, að úrvalsfiskimið landsins — hrygningarstöðvarnar — séu um- sjónar- og eftirlitslausar, er óhæfa, og þegar af- leiðingarnar koma í ljós í allri sinni alvöru, verður að grípa til varúðarráðstafana. Vitanlega verður íslendingum, sem hnepptir eru innan þriggja sjóm. takmarkanna, örðugt að koma fram óskum sínum og kröfum. En hafi menn trú á góðum málstað og vinni í eindrægni að framgangi málsins með festu og hyggindum, mun 'mega treysta því, að fullur sigur fáist að lokum. íslendingar eru sjálfstæð þjóð og yfirráðin yfir landg.runninu hefur enginn og getur eng- inn haft nema íslendingar einir. Þeir verða bví að kref jast þess, að fá þennan rétt viðurkenndan og jafnframt fá vald til þess að gjöra þær varn- arráðstafanir til varðveizlu fiskistofnsins við landið, sem nauðsyn krefur. Islendingar gjöra ekki og hafa aldrei gjört neinar kröfur til að hagnýta sér riytjar annara landa og óska sér ekki íhlutunarréttar um hags- munamál þeirra og vænta því jafnréttis við aðr- ar bjóðir hvað þetta snertir. Að sjálfsögðu verða landsmenn að tryggja sér góða samvinnu við nágrannaríkin. Þrátt fyr- ir margt, sem borið hefur á milli í þúsund ára sögu, þá er reynslan sú, að þar eiga landsmenn velviljaða og réttsýna nábúa. Til þessara sömu nábúa má bera það traust, að þeir sýni lands- mönnum fulla sanngirni og viðurkenni réttmæti kröfu þeirra. Með ári hverju kemur það betui- og betur í ljós, að nágfannaþjóðir okkar una ekki við minnkandi framleiðslu á heimamiðunum og leita til fjarlægra staða, þar sem aflavonin er meiri. Norðmenn hafa um árabil sótt afla sinn heim- skauta á milli. og jafnvel Danir, sem hingað til hafa látið sér nægja heimamiðin, reka nú mikla útgérð við Grænland og í Suður-Ameríku. Ekki er ólíklegt. að líkt muni fara fyrir íslendingum, að þegar þi'otið er heima, verði þeir að leita V í K I N G U R 3G7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.