Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 41
■J lands. En á Hinchinbroke komu þessir óviðjafnanlegu hæfileikar hans þegar í ljós. Hann var lífið og sálin í árásinni á San Juan í Nicar- agua, er var haldið áfram þangað til hann sjálfur og meirihlutinn af mönnum hans var orðinn sjúkur af hitasótt. Sagt er, að af 200 mönnum hafi 145 verið greftraðir, en lífi Nelsons verið borgið af því einu, að hann var kallaður til að taka að sér stjórn á Janus við Jamaica, þar sem kona Parkers kapteins (en Parker var sá, er hafði gert hann að höfuðsmanni á Badger og kapteini á Hinchinbroke) og dóttir hennar hjúkruðu honum, þar til hann náði aftur heilsu. Cornsallis kapteinn flutti hann heim á skipi sínu, og Nélson þykist hafa átt góðri umhyggju hans líf sitt að launa. Hann fór þegar í bað, en var svo aðframkom- inn og ósjálfbjarga, að bera varð hann til og frá rúmi hans, en hver minnsta hreyfing olli honum ægilegum sársauka. Eftir þrjá mánuði hafði hann aftur náð fullri heilsu. Flýtti hann sér þá til Lundúna og sótti um stöðu. Innan árs var Nelson aftur kominn á sjóinn og stjórnaði skipinu Albemarle, er hafði 28 byssur. Það var á Albemarle, sem Nelson fyrst sýndi fyrir alvöru hina takmarkalausu ánægju sína með umhverf- ið, er var í senn styrkurinn og veikleikinn í skapgerð hans. Allt, er varðaði Albemarle, hóf hann til skýjanna. Hann þóttist hafa undir stjórn sinni beztu liðsforingj- ana, mesta mannvalið og bezta skipið sinnar stærðar, sem nokkurn tíma hefði á sjó komið. Seinna varð sama uppi á teningunum hvað snerti Boreas og Agamemnon. Ævisagnaritari hefur gert þá athugasemd, að enginn af undirmönnum Nelsons á skipum hans hafi nokkru sinni síðar á ævinni réttlætt mat hans á hæfileikum þeirra. í raun og veru var ekkert sérlega framúrskai- andi við neinn þeirra. En þessi barnalega og gagnrýnislausa ákefð var eitt af því sem gerði hann þann mikla foringja, sem hann varð. Hann trúði svo algerlega á fylgismenn sína og fór ekkert dult með það, að þeir gátu vart annað en gert allt, sem í þeirra valdi stóð til að réttlæta mat hans á þeim. Glæsilegasti foringi, sem brezki flotinn hefur nokkru sinni átt, skýldi forustu sinni og var sem hann veitti undirmönnum hluta af orku sinni og snilli. Þeir voru félagar hans og starfsbræður í blíðu og stríðu, og þeir gerðu sér tæpast ljóst, að það var andi hans, sem blés í þá h'fi og gerði þá að samtaka bræðrum. Svo gagnrýnislaus sem ást Nelsons var að jafnaði, þannig átti hann það einnig til að leggja jafngagn- rýnislaust hatur á einstaklinga. Þegar hann var, til dæmis, skipaður á herskipið Boreas, fékk hann gífur- lega andúð á Lady Hughes, er hún kom um borð til að láta flytja sig til manns síns, en hann var yfir hern- um á Leeward Island-stöðinni. Þó virðist honum hafa tekizt giftusamlega að láta hana ekki verða vara við þessa andúð sína. Ef Lady Hughes hefði fengið tækifæri til að hjúkra honum á sjúkrabeði, er ekki vafi á því, að tilfinningar hans hefðu breytzt gagnvart henni og hann hefði álitið hana beztu konu í heimi. En því var ekki að heilsa, og meðan hún skrifaði um aðdáun sína á Nelson fyrir Horatio Nelson. hugsunarsemi hans við menn sína, skrifaði hann um hana sem óþolandi kjaftaskjóðu. Andúð Nelsons á Lady Hughes náði einnig til manns hennar. Þessi andúð stafaði greinilega jafnframt af því, eða varð meiri fyrir það, að Sir Richard lék á fiðlu. Því verður vart trúað, að Nelson hefði ekki verið harðskeyttari gagnvart hinum amerísku kaupmönnum, slíkir vágestir sem þeir voru honum, ef hann hefði haft jafnvinsamlega afstöðu til Lady Ilughes og hann hafði til flestra kvenna. Arinar galli á skapgerð Nelsons var kímniskortur. Allt, sem hann skrifaði, var magnað þunglyndi og ein- lægri alvöru. Þessir ágallar hjöðnuðu að vísu algerlega fyrir starfsemi hans, kappi, dirfsku og skapfestu, en þeir einangruðu hann að vissu leyti frá samtíðarmönn- um hans, og sú einangrun varð mjög dapurleg fyrir hann á síðari hluta ævi hans. Smámunir, eins og ávörp, virðast leiða í 1 jós, að einlæg vinsemd hafi auðveldar streymt úr penna hans til annarra foringja í hans stétt, en frá þeim til hans. Fátt eitt hefur verið ritað um konu þá, Mrs. Nisbet, er Nelson kvæntist. Hún var augsýnilega ein af þeim róiyndu og jafngeðja konum aimennrar greindar, sem hafa enga samúð með óstýrilátum skapsmunum snill- inga og eru næstum ófærar um að skilja þá. Hún hefði efalaust getað lifað ánægð og hamingjusöm við hlið venjulegs manns, en hún mun aldrei hafa verið sam- ctillt ástríðufullu skapi Nelsons. Löngun Nelsons i lof var óseðjandi og í hrekkleysi sínu var hann berskjaldaður gegn jafnvel hinu aug- V 1 K I N G U R 323
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.