Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 42
Hood aðmíráll. ljósasta smjaðri. Það er því ekki ólíklegt, að raunveru- legur heimiliskærleikur hefði verið honum afar mikils virði. Við það verður að kannast, að svo gott þótti Nelson lofið, að tæplega er unnt að ómerkja að öllu vígorð það, „sigur eða Westminster Abbey“, sem haft er eftir honum. Hreinskilni Nelsons kom ósjaldan upp um það, hve mjög hann þráði lofið og fyrir hve miklum von- brigðum hann varð, ef það brást honum. Það, sem eink- um vakti athygli hertogans af Wellington, eina skiptið sem þeir hittust, var, að sjómaðurinn talaði ekki um neitt annað en sjálfan sig. Er franska byltingin braust út, var hann, í janúar 1793, skipaður á Agamemnon, skip með 64 byssur, og átti hann að vera í Miðjarðarhafsflotanum, er var und- ir yfirstjórn Hoods lávarðar. Nelson kveið þjónustunni undir stjórn hins gamla foringja síns og var alltaf að velta því fyrir sér, hvað Hood lávarður áliti um hann, þegar Hood lávarður var kannski alls ekkert um hann að hugsa. Tæpast var hægt að búast við, að Hood lávarður vissi hvað bjó í huga hins unga kapteins umfram hálfmótaðar óskir. 1 augum Hoods lávarðar gat Nelson tæplega verið meira en afburðaduglegur maður, óstýrilátur og lík- legur til að koma af stað vandræðum. En á leiðinni tii Miðjarðarhafsins greiddist þegar úr skýjunum á báðar hendur. Nelson hugsaði æ minna um það, hvernig Hood mundi koma fram við hann, en æ meir um hitt, hvernig stjórnandi hann væri yfirleitt. Og aðmírállinn hlaut á T^hinn bóginn að taka eftir hinum vaxandi virðuleik kapteinsins. Sá andi, sem ríkti á Agamemnon, varð brátt kunnur í flotanum, en foringjar og óbreyttir fylgdust daglega með því, sem gerðist á skipinu. Áhöfn hvers skips, er fram hjá fór, sannfærðist um, að þetta væri „sælt skip“. Sérhver foringi, sem kom um borð í skipið, sann- færðist um, að innilegt samband væri milli kapteinsins og liðsforingja hans. Hood lávarði varð Ijóst, að ekkert var fjær Nelson en að stofna til vandræða, og að hann var maður, sem hægt var að treysta til að framkvæma samvizkusamlega hvert það hlutverk, sem honum yrði falið. Þrem dögum eftir að hann tók við stjórn á Aga- memnon skrifaði hann af þeirri ákefð, sem honum var eiginleg: „Skip mitt er undantekningarlaust bezta skip- ið í flotanum af þeim, sem hafa 64 byssur“. Um það bil tveim mánuðum seinna skrifaði hann aftur: „Mér fellur ekki aðeins vel við skipið, heldur lít ég svo á, að mér hafi verið fengnir afbragðs liðsforingjar og skips- höfn mín er frábær. Efist því ekki um, að við munum verða harðir í horn að taka, ef við skyldum komast í kast við Frakkana". í októbermánuði 1793 sendi Hood Nelson til þess að lóna í nánd við Korsíku, og í febrúar næsta árs var ákveðið að ráðast á eyna. 17. febrúar gafst San Fior- enzo upp og franska setuliðið hörfaði til Bastíu. Hood vildi ráðast á Bastíu þegar í stað, en hershöfð- inginn, er stjórnaði landhernum, neitaði að veita nokkra aðstoð og það var ekki fyrr en Nelson hafði notað allan þann sannfæringarkraft, sem hann átti yfir að ráða, að Hood lét til leiðast að gera árásina án aðstoðar frá landhernum. Án efa átti Nelson stóran hlut í því, hve vel þessi árás tókst, því að auk þess, sem hann tók beinan þátt í hernaðaraðgerðunum, er mjög sennilegt, að Bastía hefði alveg sloppið, ef hann hefði ekki sannfært Hood um, að hægt væri að taka hana. „Nelson", segir Southey1), „sem með réttu má telja að hafi tekið Bastíu, fékk ekkert að launum. Þakkir þær, er Hood færði honum opinberlega, eða augliti til auglitis, voru reyndar eins og hann sagði sjálfur, hinar hjartanlegustu. En hinir frábæru verðleikar hans voru ekki nefndir í skeytunum á þann hátt, að þeir yrðu þjóðinni nógsamlega kunnir, eða, að hann öðlaðist þá viðurkenningu stjórnarvaldanna, sem þeir gáfu ótví- rætt tilefni til. Þetta hlýtur að hafa stafað af því ein- ungis, hversu mikil fljótaskrift var á skeytunum. Frá- leitt var það að yfirlögðu ráði, því að Hood lávarður var ætíð tryggur og einlægur vinur hans“. Þessi skeyti voru nú samt ekki send í neinum óhæfi- 1) Robert Southey (1774—1843), brezkt skáld og ævi- sagnahöfundur. Ljóð hans voru í miklum metum meðal samtíðar hans og var hann meðal annars gerður að lárviðarskáldi. Af ritum hans í óbundu máli, sem voru bæði mörg og stór, þykja ævisögurnar beztar, en lang- frægust þeirra er ævisaga Nelsons, klassiskt rit. („Life of Nelson, I,—II., 1813). 3Z4 VÍ KI N G U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.