Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Blaðsíða 44
Hinn 14. febrúar 1797 hitti Jervis spænska flotann, er var að búa sig undir að sameinast franska flotan- um við Brest, og sigur sá, sem á eftir fór, jók vissu- lega á frægð Nelsons. Margt villandi hefur verið ritað um það, hvernig hann hertók spænsku skipin San Nico- la og San Josef, en þótt viðurkennt sé, að of mikið hafi verið gert úr persónulegri dirfsku hans, er samt sem áður ekki hægt annað en dást að hugrekki hans og -— það sem meira er um vert — hinni miklu þekkingu lians á sjóhernaði. Fyrir þennan sigur var Jervis gerður jarl af St. Vincent, en Nelson sleginn til riddara og gerður heið- ursborgari i Lundúnum og Norwieh. Litlu síðar gerði uppreisnarandi vart við sig í flot- anum. Þá var það, að skipið Captain, er Nelson stjórn- aði, var sent heim, en Nelson fluttist yfir á Theseus, er var álitið gagnsýrt af uppreisnarhug. „Hann hafði ekki verið margar vikur um borð“, segir Southey, „þegar skjali, sem undirritað var í nafni allr- ar áhafnarinnar, var varpað yfir á efri þiljur (quarter deck). Á skjalinu stóðu þessi orð: „Gæfan fylgi Nelson flotaforingja! Guð blessi Miller kaptein! Við þökkum þeim fyrir foringjana, sem þeii’ hafa sett yfir okkur. Við erum sælir og ánægðir og reiðubúnir til að úthella fyrir þá hverjum blóðdropa, sem í æðum okkar rennur — og skipið Theseus skal verða gert ódauðlegt til jafns við kaptein þess“. Á eftir fór hinn eini mikli ósigur Nelsons — við Teneriffe — og það er hvorki hægt að segja, að á- rásin hafi verið vel skipulögð né hugkvæmislega fram- kvæmd. En það er einmitt hér, sem hið stórkostlega í fari Nelsons kemur hvað skýrast í Ijós. f myrkri, vit- andi það, að hafa beðið ósigur og að miklu blóði hafði verið úthellt til einskis, máttvana af blóðmissi og með hægri handlegginn sundurtættan var hugur hans bund- inn við allt annað en hann sjálfan, er hann varð þess vís, að verið var að flytja hann út á Seashore í stað Theseus. Hann neitaði að láta flytja sig um borð og er honum var sagt, að það gæti varðað hann lífið, svar- aði hann: „Þá vil ég deyja. Ég vil heldur deyja en hrella frú Freemantle“ (hún var um borð í skipi manns síns) „með því að láta hana sjá mig í þessu ástandi og geta ekki fært henni neinar fréttir af manni henn- ar“. Það er erfitt að gera sér nægilega grein fyrir valdi andans yfir holdinu, til að geta séð flotaforingjann fyrir sér, þar sem hann æðir upp á Theseus með hægri hand- legginn dinglandi og blóði drifinn og hrópar til læknis- ins um leið og hann kemur upp á efri þiljur að koma með verkfæri sín og taka handlegginn af sér. Sextíu klukkustundum eftir að handleggurinn hafði verið tek- inn af honum, skrifaði hann St. Vincent lávarði með vinstri hendi: „Ég er orðinn vinum mínum til byrði og gagnslaus landi mínu . . . “. Nauðsynlegt var að senda Nelson heim til þess að hann næði aftur heilsu. í bréfi, er hann ritaði heiman frá Bath til hertogans af Clarence segir hann: „Ég fullvissa yðar hátign um, að byssukúlan hefur ekki hrifið burt minnsta vott af þeim eldmóði, er stjórnaði aðgerðum mínum í þjónustu konungsins“. En áður en Nelson hafði náð aftur fullri heilsu, ið- aði hann í skinninu eftir að komast á sjóinn aftur. 1 desember árið 1797 var afráðið, að hann tæki að sér stjórnina á Vanguard, er hafði 74 byssur, þar til Foudroyant, sem var í smíðum, yrði tilbúið, og skyldi hann sameinast St. Vincent undan Cadix. Vanguard lét úr höfn undir stjórn Nelsons 10. apríl 1798. Aðeins fáeinum dögum eftir að hann sameinaðist flota Vincents var skipunum Vanguard, Ovion og Alex- ander ásamt þrem freigátum og slúffu dreift um Mið- jarðarhafið til að hafa auga með franska flotanum, sem var í þann veginn að yfirgefa Toulon. Þegar Nelson kom til Toulon hafði Napóleon lagt úr höfn án þess að skilja eftir nokkur merki um það, hvert förinni væri heitið. Nelson þóttist viss um, að NapóJeun hefði stefnt til Egyptalands, og komst nú engin önnur hugsun að hjá honum en að reyna að finna hann þar. Hinn 22. júní, er Nelson var staddur undan suðaust- urodda Sikileyjar, Pasarro-höfða, frétti hann, að franski flotinn hefði lagt upp frá Möltu aðeins sex dögum áður. Um sama leyti og þessi fregn barst hon- um, var eitt skipa hans að elta tvö skip, er haldið var að væru franskar freigátur. Með tilliti til þeirrar ó- ráðnu gátu, hver væri ákvörðunarstaður franska flot- ans, hefði verið sjálfsagt að halda áfram að veita skip- um þessum eftirför. En er Nelson bárust þessar fréttir, varð hugur hans enn meir bundinn við Alexandríu og hann lét hætta eftirförinni. Þegar hann kom til Alex- andríu, var franski flotinn ekki þar fyrir, og af því að hann var ekki til staðar, einmitt er Nelson kom þangað, missti hann skyndilega trú á því, að áætlun sín hefði verið rétt, dró rangar ályktanir af öllu saman og sigldi burt frá Alexandríu aðeins fáeinum klukkustundum áður en Napóleon kom þangað. Nú virtist okkur liggja í augum uppi, að ekki væri hægt að gera ráð fyrir að stór flotadeild eins og sú, er Napóleon var með í förum, gæti komizt eins hratt yfir og deild með fjórtán skipum. Þar af leiðandi verð- um við að rekja það til þess, hve Nelson var fljótur að hlaupa eftir hugboði sínu, að honum skyldi ekki takast að finna franska flotann á hafinu. Hinn 1. ágúst komst Nelson fyrst á slóð franska flot- ans, og þá hófst orustan á Níl. Ekkert gat verið ein- faldara en fyrirætlun Nelsons á Nílfljótinu, ekkert stórfenglegra en það, hvernig sú fyrirætlun var fram- kvæmd. „Meðan á eftirförinni stóð“, ritar Suothey, „hafði það verið venja Nelsons að safna skipstjórunum um borð í Vanguard, hvenær sem tækifæri gafst og skýra út fyrir þeim, hvernig hann hugsaði sér að bezt væri að ráðast á óvinina og hvernig hann ætlaðist til að þeir höguðu sér, ef þeir hittu óvinina, og er sagt, að ekki hafi verið til sú aðstaða, sem hann var ekki búinn að gera ráð fyrir“. Alúð og snilli Nelsons samanlagt var sterkara efl en svo, að franski flotinn fengi staðizt það. Sagt er, að allt hafi verið framkvæmt nákvæmlega eins og Nelson 326 VI K I N G U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.