Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Page 51
Hipopp! Gufustrókur gýs frá spilinu og það tekur að kyrja söng sinn, hljómkviðu slungna þremur þáttum, ískri í stáli, skellum, hvæsi í gufuventl- um. Tromman eykur sífellt við sig, eins og velt- andi snjóbolti, og loks er hún öll; tuttugu mínút- ur liðnar og 250 faðmar af vír hafa verið dregn- ir upp úr djúpinu. Pokanum skýtur upp í nokk- urri fjarlægð frá skipinu og það hallast undan þunga veiðarfæranna og aflans. Þá skellur slæmur hnútur á stjórnborðssíðu Egils Svarta og leggur hann enn meira. Skipið nötrar og hásetarnir á bakborða steypast hver um annan þveran og fálma eftir einhverri hand- festu. Einn flýtur upp að brúarvæng og nær taki þar, þriðji stýrimaður og Siggi Brands brjótast með erfiðismunum upp á keisinn, en fjórða manninum skolar fyrir borð og dregur með sér netadruslu, sem hann hefur náð taki á. Hún kemur honum að engu gagni, því enginn er til að grípa í hinn endann og hún er bráðum öll útbyrðis. Hendur sjómannsins krafla ótt og títt upp úr hvítfreyðandi löðrinu kringum skipið og reyna að ná taki á borðstokkunum, en sogið og ferð skipsins slítur takið á svipstundu. „Haltu þér, mannhelvíti!“ öskrar þriðji stýri- maður frá keisnum. Skipstjórinn bregður skjótt við í brúnni. Það- an berast ákafar hringingar í vélsímann og skrölt í stýrisvélinni. Planki af dekkinu skellur á spilkoppnum, rís þar upp á endann og steypist útbyrðis, ásamt netakörfu. Siggi Brands og þriðji stýrimaður sæta lagi, og láta sig skyndilega falla af keisn- um og lenda harkalega á blakkarboganum. Um leið slengir alda sjómanninum á lunninguna og sjómennirnir tveir innanborðs grípa útrétta hönd hans og keyra axlirnar undir járnbogana til að skorða sig, þar til skipið hefur rétt sig og hægt er að innbyrða manninn. Annar hnútur dynur á skipinu og færir þá alla þrjá í kaf, sjó- hatturinn af stýrimanninum flýtur upp og skol- ast út með sjónum, sem fer með þungum brim- gný og dynk gegnum ganginn undir bátadekk- inu og þaðan út. Skipið réttir sig smám saman. „Kippið honum inn fyrir“, segir skipstjórinn, og brúardyrunum er skellt aftur. ★ Dimmviðri með haugasjó er skollið á og ís- lenzki togaraflotinn leitar landvars á Vestfjörð- um; fyrst fer fylking nýsköpunartogara með ratsjár, og í kjölfar þeirra fylgja gömlu kláf- arnir, eins og litli bróðir þeim stóra — allir nema Egill Svarti. Skipstjórinn Nikulás hefur hingað til komizt af án fylgdar, og heldur skal hann lóna upp í dimmviðri næturlangt, en láta flaggskip gamla tímans sjást elta samflot ný- sköpunartogara. Stórir flotar eru á Önundarfirði og Patreks- firði, einn togari er á Dýrafirði, og einn togari íslenzkur, fyrir utan Egil Svarta, er enn ekki kominn í var, en kódaskip hans á Patreksfirði er að leiðbeina honum inn með útsendingu morsemerkja. Tveir togarar í landvari kalla á Egil Svarta. „Svörum ekki“, segir skipstjórinn og sýpur á stút kaffikönnunnar. Og um nóttina er lónað upp í veðrið. Tveir enskir togarar og einn þýzk- ur, sem elt hafa Egil Svarta af miðunum, halda sig á námunda og bíða eftir hreyfingu á þeim íslenzka. Klukkan fjögur um morguninn í kafaldsfjúki og 9 vindstigum tekst landtaka, og sigluljós Egils Svarta bætast við þann aragrúa, sem fyrir er á Önundarfirði. Útlendu skipin koma í hum- áttina á eftir. I tvo sólarhringa samfleytt leita vindar lofts- ins og kafaldsfjúk um skipin. Þá byrjar veðrinu að slota og skipin halda aftur á miðin. En nú hefur sú breyting orðið, að tveir gamlir togarar eru fyrstir á miðin, Skallagrímur og Egill Svarti. ★ Þriðji stýrimaður kom niður í káetu, ný- stiginn upp úr lest og geistlegur mjög með slöngulokka sína í allar áttir og 7 daga skegg. Hans skemmtun um borð var að hleypa upp hin- um danska matsveini, sem ávalt tók stýrimann- inn alvarlega og taldi hann óskaplegan rudda. Skærur á milli þessara heiðursmanna voru dag- legar og þegar stýrimaðurinn var kominn í koju, yfirfór hann venjulega atburði dagsins og mátti þá oft heyra kumrað lágt í kojunni, stundum hlegið hrottalega, og ef maður leit inn í koj- una, mættu manni samanpírð blá augu, en þetta var dálítið varasamt, því stýrimaðurinn átti það til í galsa sínum að lemja mann í hausinn með bókarskruddu, og hlæja svo enn hærra. Stýrimaður skálmaði í sæti sitt við skeifu- lagað káetuborðið. „Mat, drullusokkur“, sagði hann fruntalega. Kokkurinn sneri up á sig og gekk penpíulega að uppvöskunnarfötunni. „Kokkdjöfull! Hvað sauðstu þetta buff lengi? Það er ekki fyrir andskotann að tönnlast á V' K I N G U R 333

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.