Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Síða 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Síða 59
Um kvöldið fengu allir whisky, nú sigldum við meðfram strönd Portúgals. Svo fengum við byr — Portúgalsvindinn — sem blés okkur í einni lotu til Madeira. Á nótt- unni ,var aðeins einn á vakt, og tveir á daginn, morgunvaktin var á vakt til hádegis og eftir- hádegisvaktin var til kvölds. Piltarnir fengu lengri hvíldartíma og ég fékk frí. Aftur á móti var ég alltaf vakinn, ef vindur breyttist og ef hryð.jur voru í aðsígi, og eins ef haga þurfti citthvað seglum eða skip sáust. Næsta morgun var ég vakinn kl. 4, drakk kaffi með vaktinni, skrifaði dagbókina og las til kl. fí og stýrði til kl. 8. Eftir morgunverð tók nýja vaktin til starfa, þreif til, lagfærði segl, reipi og fleira. Um kvöldið stýrði ég frá kl. 9—10. Fyrstu nóttina eftir að breytt var um vaktir átti Karl að hafa hundavakina. Ég var á þilfari, þegar skipt var um á miðnætti. „Monsúninn" fór 9 mílur, fyrir tveimur ásseglum og í miklum sjó. Þó gekk á með hryðjum, ég neitaði að vera á þilfari, þótt hann bæði mig um það, pilturinn var duglegur og frá Óðinsvéum, ég bað hann að vekja mig, ef eitthvað skeði. Um morguninn vaknaði ég við köllin í Kúlunni. „Seglskip í augsýn“. Skipið var á stjórnborða, þetta var skonnorta, við sigldum rétt fyrir framan hana og Helga tók myndir. Við spurðum með mark- veifunni „Q Z K“ „Hver er gráða lengdar núna?“ Skonnortan var portúgölsk á leið af Nýjasjá- landsmiðin. Skipið leit út fyrir að vera sjóræn- ingjaskip með sínum 20—80 skeggjuðu sjómönn- um, þar sem þeir stóðu á þilfari. Sá gamli stóð við stýrið og öskraði „D W“ — 13 gráður. Við öskruðum, „Bueno Marinero“ og veifuðum húf- unum. Svo skildum við, og eftir hálftíma voru þeir horfnir, og við byggðum hafið einir. Við áttum engin landabréf af Madeira, allar upplýsingar mínar um eyna voru frá 1879, og þá var víst stórhættulegt að taka þar höfn. Eldavélin var í ólagi, sagði Alfred, hann sagð- ist ekki geta bakað brauð í henni, svo við skrúf- uðum hana í sundur, og þá kom í ljós stórt gat á vélinni, við höfðum ekki ráð á nýrri, og löpp- uðum því upp á hana eins og við bezt gátum og bundum hana saman með vír. Svo var gert við segl á hverjum degi. Laugardagskvöldið 2. nóvember kl. 10 átti Porto Santo að vera í 17 mílna f jarlægð og í stefnuna S.S.°, en úr þessari átt skyggði eyjan á vitann á Cima og við sáum ekki út úr augum fyrir regni, svo við felldum seglin og biðum. Þegar birti voru bæði „Monsún- „Atlantsha,fsskólinn“. -— Helr/a kennir börnunum. VI K I N □ U R 341

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.