Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 61

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 61
r þó leyfi til að hlaupa heim og kveðja konuna sína, því að það átti að hengja hann.— Á meðan á þessu stóð sat ég á þvottapokanum og reykti pípu. Loks kom háttsettur embættis- maður, og lýsti því yfir, að flutningur óhreinu fatanna væri alvarlegt vandamál. Hingað til hafði ég tekið þessu með jafnaðargeði, en nú fór mér að þykja nóg um, vesalings José leit iðrunarfullur ýmist á mig eða yfirvöldin, nú komu fleiri hermenn, og þegar ég greip pok- ann og ætlaði út, var ég umkringdur af her- mönnum, sem otuðu að mér fægðum sverðun- um, ekkert beit á yfirvöldin, hvorki enska, þýzka eða þau fáu orð, sem ég kunni í portú- gölsku og spænsku, þeir stóðu fyrir utan og horfðu á aðfarirnar, reykjandi. Þótt mig langaði til að láta þá smakka á mín- um beitta skeiðahníf, þá hafði ég þó enn hemil á sjálfum mér, ég benti á þann feitasta embætt- ismannanna og sýndi honum með látbragði mínu, að ég skyldi fúúslega játa sekt mína og taka út refsinguna. Svo sagði ég á dönsku: „Skepnan þín, það væri réttast að dæma þig til að þvo þvottinn okkar, og velta þér svo upp úr tjöru og fiðri á eftir“. Svo fór ég með brot úúr dönsku kvæði. Þetta dugði. Við urðum vinir, og þegar við sá- umst seinna, bauðst hann til að aðstoða mig eft- ir beztu getu. Reikningur frá tollinum: „Tollur af óhrein- um föturn 187,52 dollarar. Ég atti aðeins eitt sterlingspund, en tollarinn lét sér þetta nægja, og bað mig að heimsækja sig næst þegar ég kæmi. Jón Kr. Lárusson frá Arnarbæli Fæddur 6. nóvember 1878. Dáinn 16. september 1949. KVEÐJA Á hausti blikna blómin foldar blunda rótt í skaiiti moldar, hefjast, aftur æskufögur ö'ölast vorsins þroskakjör, þó er eins og alltaf rökkvi, orki á tungu hugans klökkvi, þegar bíður bezta vinar búin skeiö í hinztu för. Eftir dvelst í mætri minning mannsins g-öfgi birt viö kynning, muninn þræöir gengins götu greinir dýran æfiþátt. Hvort sem fórstu götu greiöa, græöisslóöir, uröir heiöa, barstu glæsti Breiöfiröingur byggöar þinnar merki hátt. Fast þú sóttir sæ og leng.i, sigldir hátt viö auönugengi, aldrei brugöust happahöndum hagleikstök viö reiöan sjó. Hættum varö ei hugur sleginn horföir djarfur fram á veginn, þó aö risi þrautabára þá var ekki slakaö kló. Góöum málstaö vörn þú veittir, vits og kapps aö fullu neyttir, ef aö beittir oröasennu áttir hvassast stáliö máls. Aldrei var þín s.æmd til sölu, sinni ei skift við annars tölu, gjöröi létt um leiöarvaliö lundin traust og andi frjáls. Ráöahollur, g.óöwr grónnum greiddir veginn þurfamönnum. Höföingsmaður heim aö sækja hátt þitt drengskapsmerki ber. Varma glæddi glaðvært sinni, gott var aö binda viö þig kynni, hvar sem fórstu var sem væri voriö bjart í fylgd meö þér. Beztu þakldr þér ég færi þegiö fyrir, vinur kæri, muninn þina minning g.eymir meöan ekki þrjóta spor. Greinast leiöir, gamli vinur. Góöar stundir, aldni hlynur. Manndómsgöfgi gefst aö launum guöi signaö eilift vor. Sunnuvegi seglum þöndum siglir gnoö frá heimaströndum, yfir hafiö yztu nafa óskaleiöir fleyiö ber. Er á stjórnvöl örug.g höndin, uppi hyllir vona löndin. Bjartra lieima Breiöif jöröur breiöir faöminn móti þér. Markús Hallgrímsson. VIKINGUR 343

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.