Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Síða 63
1./10. Verkfall hófst á miðnætti í
nótt hjá stálverkamönnum um öll
Bandaríkin. Þúsundir manna hafa
þegar lagt niður vinnu og hinir
miklu stálbræðsluofnar um allt land-
ið voru þegar í gær teknir að kólna.
John Lewis hefur fyrirskipað 100.000
kolanámumönnum í Bandaríkjunum
að hefja vinnu á ný. 400.000 eru enn
í verkfalli.
•
9./10. Auriol Frakklandsforseti
hefur falið Jules Moch, einum af
áhrifamestu leiðtogum franskra
jafnaðarmanna og innanrikismála-
ráðherra í fráfarandi stjórn, að leita
fyrir sér um stuðning þingsins til
stjórnarmyndunar. Mun forseti fela
Moch að mynda nýja stjórn, ef hann
fær meiri hluta þingsins til að veita
sér stuðning, en fréttaritarar í París
telja það mjög ólildegt og búast við
langri stjórnarkreppu í Frakklandi.
•
18./10. Franski sósíaldemókrata-
foringinn Jules Moch gafst í gær
upp við að mynda ríkisstjórn, eftir
tíu daga árangurslausar tilraunir.
•
26./10. Ellefu manns fórust í
járnbrautarslysi nærri Avignon í
Suður-Frakklandi í gærdag.
64 Norðurlandamenn starfa nú á
vegum Sameinuðu þjóðanna, en
þeirra á meðal er aðeins einn Is-
lendingur, Daði Hjörvar, sem starf-
ar við upplýsingadeild bandalagsins.
Alls hafa SÞ í þjónustu sinni 4166
starfsmenn og af þeim starfa 3195
á aðalstöðvum bandalagsins í Lake
Success, skammt utan við New
York. Hinir norrænu starfsinenn
skiptast þannig: 24 Svíar, 21 Dani,
18 Norðmenn og 1 íslendingur. Finn-
ar eru enn ekki í bandalaginu. Norð-
maðurinn Tryggve Lie, aðalritari
bandalagsins, er hér ekki meðtalinn.
Bretar hafa tilkynnt, að þeir hafi
í hyggju að fækka herliði sínu í
Grikklandi, vegna niðurskurðar þess,
sem gerður hefur verið á fjárfram-
lögum til hernaðarþarfa í Bretlandi.
Hafa Bretar haft herlið í Grikk-
landi síðan í styrjaldarlok, en þess
gerist nú minni þörf er borgara-
styrjöldinni er lokið.
•
2./11. 55 manns fórust í gær er
orustuflugvél rakst á Skymaster-
farþegaflugvél yfir National flug-
vellinum í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna. Áreksturinn varð í
aðeins 100 metra hæð er flugvélarn-
ar voru að lenda, og steyptust þær
báðar niður í Potomar fljótið og
niunu allir hafa farizt, sem voru
með farþegaflugvélinni.
Brezka stjórnin hefur lýst yfir
því, að brezk kol hækki á erlendum
markaði, en hins vegar haldist verð
þeirra óbreytt á heimamarkaðinum.
Kaupmannahafnarblaðið Social-
Demokraten skýrir frá því, að ó-
metanlegir forngripir, sem þýzki
fornleifafræðingurinn Heinrich
Schliemenn gróf upp úr rústuni
Trojuborgar hinnar fornu í Litlu-
Asíu seint á nítjándu öldinni og
flutti heim til Þýzkalands, hafi ný-
lega farið forgörðum. Gripirnir voru
geymdir í safni í Berlín fram á ófrið-
arárin, en er loftárásirnar á borgina
hörnuðu var nokkrum beztu dýrgrip-
unum, gulldjásnum ogmyndum, kom-
ið fyrir í neðanjarðarbyrgi hjá Zoo í
Berlín, en í stríðslok hurfu gripirn-
ir þaðan og hefur ekkert spurzt til
þeirra síðan. Allir aðrir gripir hins
fræga Schliemannsfundar í rústum
Troju, leirker, tígulmyndir og margt
annað, var sett niður í kistur síð-
asta ófriðarárið og flutt til Lebus
á Brandenburg og komið fyrir í
kjallara í höll einni, sem auðugur
jarðeigandi átti. Það er þessi hluti
Trojugripanna, sem nú hefur verið
eyðilagður af fáráðlingshöndum á
grátbroslegan hátt.
Bretar og Tékkar hafa gert með
sér mikinn viðskiptasamning. Samn-
ingur þessi gildir til 5 ára. Sam-
kvæmt honum kaupa Bretar af
Tékkum vélar ýmis konar, sykur,
timbur og fleiri vörur fyrir 4 millj.
700 þús. pund árlega. Tékkar kaupa
í staðinn vörur frá Bretum fyrir 1
millj. 500 þús. pund. Auk þessa leyfa
Bretar innflutning iðnaðarvéla frá
Tékkóslóvakíu, sem nemur 5 millj.
700 þús. pundum og stendur þetta á-
kvæði samningsins í sambandi við
greiðslur á skuldum Tékka við
Breta, en þær nema 28 millj. pund-
um. Einnig eru í samningi þessum
sérstök ákvæði varðandi bætur til
Breta vegna brezkra fyrirtækja í
Tékkóslóvakíu, sem þjóðnýtt hafa
verið. Þetta er fyrsti viðskiptasamn-
ingurinn, sem Bretar gera eftir að
gengislækkunin varð.
Bandaríska verkalýðsmálahagstof-
an hefur skýrt frá því, að atvinnu-
leysingjum í Bandarikjunum hafi
fjölgað um 225.000 undanfarinn mán-
uð. Er tala bandarískra atvinnuleys-
ingja komin upp í 3.600.000, sem er
tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra.
Urn ein milljón stáliðnaðarmanna
og kolanámumanna eru enn í verk-
falli í Bandaríkjunum. Samkomu-
lagstilraunir eru að hefjast á ný í
báðum vinnudeilunum. Komið hefur
til átaka á einstökum stöðum. 1
Pikeville í Tennesseeríki særðust
þrír kolanámumenn er verkfalls-
brjótar hófu skothríð á verkfalls-
verði. Enginn árásarmannanna var
handtekinn.
Gull- og dollaravarasjóður Breta
minnkaði um 55 milljónir sterlings-
punda á þriðja ársfjórðungi yfir-
standandi árs. Sir Stafford Cripps
fjármálaráðherra skýrði frá þessu í
ræðu í London í vikunni. Hann upp-
lýsti að varasjóðurinn hefði við síð-
ustu mánaðamót verið kominn nið-
ur í 351 millj. punda, en 400 millj.
hefur stjórnin talið Iágmark, sem
sjóðurinn mætti ekki fara niður fyr-
ir, án þess að öllum fjárhag Bret-
landsins sé stofnað í bráðan voða.
VI K I N G U R
345