Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Blaðsíða 21
Hættulegt veðmál
Þvínær hver einasta stærri heimsborg á sitt skugga-
hverfi. Til dæmis Algier (N-Afríku) Casbahen, New
York, The Bowery, Marseille (Prakklandi) Arabahverf-
ið, Barcelona (Spáni) Chinatown, London Southwai’k,
svo að nokkur séu nefnd. En Cape Town (Höfðaborg)
í Suður-Afríku hefur 6. hverfið, þar sem úrkastið lifir.
Kynblendingar af hvítum mönnum, Hottentottum, Köff-
um og Indverjum.
6. hverfið er alveg sérstætt og lögreglan hættir sér
ógjarnan inn í það, jafnvel mannsterk, því að opinber-
ar skýrslur sýna, að þaksteinar og þungar múrblakkir
hafa allmikla tilhneigingu til að falla ofan á hjálma
lögreglunnar og það stenzt sjaldan hjálmurinn eða lög-
reglumaðurinn.
Velklæddur hvítur maður vogar sér þess vegna ekki
inn í 6. hverfið — hann er að minnsta kosti ekki vel-
klæddur lengur, þegar (ef) hann kemur þaðan út aftur.
Mörg dæmi eru til þess að hvítir menn hafi verið rænd-
ir inn að skinni. Dönsk kona beið einu sinni eftir stræt-
isvagni á stoppistöð í námunda við hverfið. Biðin eftir
vagninum var um 5 mínútur. Þegar vagninn kom, varð
vagnstjórinn að lána vesalings konunni frakkann sinn,
því hún hafði verið rænd hverri einustu spjör.
í einu dagblaði Höfðaborgar birtist fyrir skömmu
mynd. Hún var af leigubíl, sem ekið hafði verið gegn
um 0. hverfið. Á myndinni sást að hnífi liafði verið
kastað í gegnum eina rúðu bílsins og stóð hann á kafi
í stólbaki bifreiðarstjórans.
Aðrar tegundir árásarvopna eru einnig notaðar. Rak-
vélabiöð, falin í hattbarðinu, eru óhugnanlegt vopn. Þá
má nefna hjólhestaslöngur fylltar sandi eða blýhöglum,
sem er skæðara vopn heldur en gúmmíkylfa. Það hafa
þorpararnir í (i. hverfi uppgötvað fyrir löngu síðan.
En áhrifamesta vopnið er bifhjólakeðjur, eða aðrar
járnkeðjur af svipaðri gerð, sem þeir nota af mikilli
leikni við árásirnar.
Yfir páskahelgina — 5 daga — í ár, voru framdar
16 árásir og morð í 6. Hverfi. Nokkrir píslarvottanna
munu hafa verið blökkumenn. Flestir voru svo skyn-
samir að afhenda veski, úr, skó og öll fötin umyrða-
laust og sluppu því með nokkurn veginn heilt skinn.
En það var líka það eina, sem þeir héldu eftir á skrokkn-
um!
Eitt sinn eftir fjörugt drykkjusamkvæmi, datt nokkru
vel hífuðu, ungu fólki í hug, að slá i veðmál í sambandi
við 6. hverfið. Ekið var að hverfinu og þeir sem vildu
taka þátt í veðmálinu — 8 menn gáfu sig fram — lögðu
hver um sig 20 krónur í sjóð, settu upp pípuhatta og
reyndu að komast í gegnum hverfið til bílanna, sem
ekið hafði verið öruggari leið og biðu hinu megin. Sá,
er slyppi í gegn með pípuhattinn, skyldi fá allan sjóð-
inn. — En enginn slapp í gegn, að minnsta kosti ekki
með hattinn — og tveir komu algjörlega klæðlausir.
Kvöldið eftir voru gerðar alvarlegar og ítrekaðar
tilraunir, en allt fór á sömu leið, og eftir vikuna var
sjóðurinn yfir 1000 krónur.
Hinir sérkennilegu íbúar 6. hverfis iifðu hátt þessa
daga. Þeir höfðu auðvitað enga hugmynd um veðmálið
og hafa eflaust undrað sig yfir hve margir veizlu-
klæddir menn villtust inn í hverfið þeirra. En að sjálf-
sögðu var hver einasti rændur eins og venja var er
utanaðkomandi fólk átti í hlut.
Það aftraði ekki þátttökunni í þessum tilraunum, að
þetta var nokkuð róstusamt, því nú var sjóðurinn orð-
inn yfir 1000 krónur.
Loks barði fílefldur smiður sig í gegnum hverfið og
kom út þaðan með blæðandi hnefa og í fötunum! -— En
hattinn hafði hann misst. Nokkrum mínútum síðar
komst grannur, ungur maður í gegn — og hafði unnið
veðmálið — 1400 krónur.
Eldri kona, sem í fjöldamörg ár hafði unnið í hjálp-
arsveit, er starfaði í 6. Iiverfi, varð eftirmiðdag nokk-
urn fyrir árás og líkamsmeiðslum í hverfinu. Talið var,
að árásina hafi einhverjir nýgræðingar framið, sem
voru nýkomnir í hverfið og þekktu hana ekki. En þegar
þetta barst út í hverfinu, streymdu blóm og barnslega
viðkvæm bréf — sum skrifuð á umbúðapappír — til
konunnar, sem lá í sjúkrahúsi.
íbúarnir í 6. hverfi höfðu þó einhverja samvizku,
— þrátt fyrir allt.
Þýtt: M. Jensson.
Stökur
Kæruleysi.
Mjög þó bifist gxfu gnoS,
græ'öis hrifin fangi,
skal ei rifa raka voö,
Káu ]>ó yfir gangi.
Góð leiðsögn.
Opin stendur ólánsgáttin
ógna mæöu él.
Fjandinn eykur flolclcadráttinn,
ferst þaö býsna vel.
V I K I N G U R
55