Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Blaðsíða 42
12. /1. Aflabrögð hafa verið með ailra lélegasta móti hjá togurunum undanfarna daga. Flestir íslenzku togararnir eru á Halamiðum og hafa fengið lítinn afla, þrátt fyrir langa útivist. Virðist lítill fiskur á miðunum, og þar við bætist, að tíð hefur verið með einsdæmum stirð. Markaður er með betra móti í Bretlandi þessa daga. 9. þessa mánaðar seldi Jón Þorláksson 3091 kitt fyrir 10,727 pund. Frá áramót- um hafa samtals 12 togarar selt í Bretlandi, sem hér segir: Helgafell 2663 kitt fyrir 6783 pund, Hallveig Fróðadóttir 3176 kitt fyrir 7821 pund, Hvalfell 3309 kitt fyrir 6924 pund. lngólfur Arnarson 3089 kitt fyrir 1730 pund, Úranus 4303 kitt fyrir 5738 pund, Gylfi 3788 kitt fyrir 6915 pund, Júlí 2757 kitt fyrir 6452 pund, Kaldbakur 4471 kitt fyrir 10,308 pund, Geir 3349 kitt fyrir 9932 pund, Jörundur 2264 kitt fyrir 7436 pund og Fylkir 2789 kitt fyrir 8853 pund. • 13. /I. Sildaraflinn í Faxaflóa og við Iieykjanes varð samtals um hundrað þúsund tunnur. Alls hafa verið frystar á öllu landinu um 74 þúsund tunnur, þar af tæplega 20 þúsund í verstöðvum á Norðurlandi. Átján bátar af Akranesi munu stunda línuveiðar í h'axaflóa í vetur. Er nú verið að búa bátana til þess- ara veiða og eru sumir þeirra þegar tilbúnir. Miðstöðin h.f. gerði á s.l. ári vöruskiptasamning við Austurríki. Voru Austurríkismönnum seldar 1000 lcstir af hraðfrystum fiski, en keyptar í staðinn ýmsar iðnaðar- vörur. Vilberg Skarphéðinsson fram- kvæmdastjóri kveður Austurríkis- mönnum hafa líkað hraðfrysti fisk- urinn vel og að þeir vildu mjög gjarnan fá meira af honum. • 14. /1. I ráði er að stofna hér á landi félag, er hafi með liöndum vernd geðbilaðs fólks. Nefnist það Geðverndarfélag íslands, og starfi það hliðstætt svipuðum félögum í öðrum liindum, og taki þátt í al- þjóðlegri samvinnu um þessi mál. Á s.l. ári voru samtals veitt gjald- eyris- og innflutningsleyfi að upp- hæð 456.160.000,00 kr. Þess skal get- ið, að í þessari tölu eru innifalin bæði leyfi veitt á árinu og einnig framlengingar frá árinu 1848. Nær öll sú síld, er Y'eiddist í Faxaflóa í haust, er nú seld, og er verðið viðunandi. Var síldin óvenju góð í ár og líkaði kaupendum hún ágætlega. Fitumagnið komst upp í 25 prósent. Gjaldeyristekjur af Faxa- flóasildinni cru um 7,5 millj. krónur. Gert er ráð fyrir, að allt að 17 bátar rói frá Sandgerði í vetur. Afli hefur verið ágætur þar um helgina, en allt virðist benda til þess, að er- lendir togarar geri sama usla á veiðarfærum Sandgerðinga og í fyrra. Samningar hafa tekizt um kaup og kjör milli sjómanna- og vélstjóra- deildar Verkalýðsfélags Akraness og atvinnurekenda á staðnum. Róðrar munu því hefjast innan skamms, en þaðan verða gerðir út 18 bátar í vetur eða jafnmargir og í fyrra. Samningar liafa tekizt milli Lands- sambands ísl. útvegsmanna og Far- manna- og fiskimannasambands ís- lands um lcjör yfirmanna á vélbáta- flotanum. Með samningum þessum getur vélbátaflotinn þegar byrjað veiðar. Fyrir Farmanna- og fiski- mannasambandsins sömdu þeir Lút- ber Grímsson, Auðunn Hermanns- son og Guðbjartur Ólafsson, en fyr- ir Landssambandið sömdu Ingvar Vilhjálmsson, Karvel Ögmundsson og Jón Halldórsson. Forseti Islands hefur staðfest Iög um ríkisábyrgð á útflutnings- vörum bátaútvegsins o. fl., og lög um bráðabirgðabreytingu á lögum nr. 62 um toilskrá. • 21./1 Henry Stomka, pólskur pianósnillingur, sem talinn er fremstur þeirra Chopintúlkenda, sem nú eru uppi, heldur hér hljóm- leika á mánudag á vegum Tónlistar- félagsins. Alls mun hann halda hér þrenna tónleika og eina í Hafnar- firði. 22. /1. Framkvæmdastjóri kirkju- garða Reykjavíkur leggur til, að Fossvogskirkjugarður fái land bæði suður með Hafnarfjarðarvegi og allt niður að sjó. Er hér um all- verulega stækkun að ræða. Á föstudagskvöldið tók Blakknes- ið niðri á Nestá við Grafarnes í Grundarfirði. Lbki kom að Blakk- nesinu, og var það dregið upp í fjöru til athugunar og bráðabirgða- viðgerðar. Atkvæðagreiðslu Félags ísl. loft- skeytamanna og Stýrimannafélags íslands um heimild handa stjórn- um félaganna til vinnustöðvunar, er lokið. Samþykktu loftskeytamenn heimildina með 53 atkvæðum gegn 1, 1 seðiil var auður. 68 stýrimenn lýstu sig samþykka, en 4 voru á móti. • 23. /1. Fárviðri geisaði í Reykja- vík um tínia á sunnudagsmorgun. Vindhraðinn koinst upp í 14 vind- stig, en var lengst af um 11 vindstig. f ofsaveðrinu í fyrrinótt báðu tveir bátar frá Ólafsfirði uin staðarr ákvörðun, en þeir voru staddir út af Mýrum á leið til Reykjavíkur. Hefur miðunarstöðin á Akranesi oft orðið bátum til hjálpar á þennan hátt, þegar þeir sökum dimmviðris vissu ekki hvar þeir voru staddir. Kosning sóknarprests Fríkirkju- safnaðarins fór fram i gær, og var séra Þorsteinn Björnsson kosinn með 1570 atkvæðum. • 24. /1. Stýri togarans Goðanes frá Neskaupstað brotnaði, er hann var staddur út af Vesturhorni. Skip- ið náði sambandi við vitaskipið Her- móð og fór hann Goðanesi til að- stoðar. • 1./2. Vinnuheimili S. I. B. S. á Reykjalundi á fimm ára afmæli. 76 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.