Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Qupperneq 44
um
Lands-
Sammngur
kaup og kjör milli Farman nasambands íslands og
sambands ísl. útvegsmanna.
1. gr.
Samningur þessi gildir fyrir öll önnur skip en botn-
vörpuskip innan F. í. B., sem gerð eru út með herpinót,
hringnót, línu, þorskanet, botnvörpu, dragnót, reknet-
um, svo og flutningum innanlands á fiskiskipum, og
með ísaðan fisk til útlanda á fiskiskipum og tekur til
allra slíkra skipa, sem útgerðarmenn er að samningi
þessum standa, eiga, leigja eða hafa að öðru leyti út-
gerðarstjóm á. Þó skal þessi samningur ekki upphefja
þá samninga, er í gildi kunna að vera milli nefndra
aðila, eða einstakra sambandsfélaga þeirra.
2. gr.
Á skipum allt að 70 rúmlestir, sem stunda síldveiði
með herpinót, skal greiða þannig:
a) Skipstjóri skal hafa 7 prósent af brúttóafla skips-
ins, enda hvíli sú kvöð á honum, að hann sé veiði-
stjóri, auk þess greiðist honum kr. 100,00 — eitt
hundrað krónur — pr. mán. meðan skipið stundar
veiðar.
b) Stýrimaður skal hafa 4 prósent af brúttóafla
skipsins, auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað
krónur — pr. mán. meðan skipið stundar veiðar.
c) Skipstjóri og stýrimaður greiði sjálfir fæði sitt.
3. gr.
Á skipum 70 rúmlestir og yfir, sem stunda síldveiðar
með herpinót, skal greiða þannig:
a) Skipstjóri skal hafa 6% prósent af brúttóafla
og kr. 200,00 — tvö hundruð krónur — pr. mán.,
auk þess frítt fæði.
b) Stýrimaður skal hafa 3% prósent af brúttóafla
og kr. 120,00 — eitt hundrað og tuttugu krónur
— pr. mán., auk þess frítt fæði.
c) 1. vélstjóri skal hafa 4Yz prósent af brúttóafla
og 2. vélstjóri 3,3 prósent af brúttóafla, enda
greiði þeir sjálfir fæði sitt.
4. gr.
Á skipum er stunda síldveiði með hringnót og eru
allt að 40 rúmlestir, greiðist þannig:
a) Skipstjóri skal hafa 9 prósent af brúttóafla skips-
ins, auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur
— pr. mánuð.
b) Stýrimaður skal hafa 3)4 prósent af brúttóafla
og kr. 120,00 — eitt hundrað og tuttugu krónur
— pr. mánuð, auk þess frítt fæði.
c) 1. vélstjóri skal hafa 4% prósent af brúttóafla
og 2. vélstjóri 3,3 prósent af brúttóafla, enda
greiði þeir sjálfir fæði sitt.
5. gr.
Á skipum er stunda síldveiðar með hringnót og eru
að stærð frá 40—75 rúmlestir, greiðist þannig:
a) Skipstjóri skal hafa 8 prósent af brúttóafla skips-
ins, auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur
— pr. mánuð.
b) Stýrimaður skal liafa 1% hásetahlut, auk þess
kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mánuð.
c) Skipstjóri og stýrimaður greiði sjálfir fæði sitt.
6. gr.
Á skipum upp að 70 rúmlestum er stunda rekneta-
veiðar, skal greiða þannig:
a) Skipstjóri hafi 2 hásetahluti og auk þess kr. 100,00
— eitt hundrað krónur — pr. mánuð.
b) Stýrimaður hafi 1% hásetahlut og auk þess kr.
100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mánuð.
c) Á þeim skipum er hafa það stóra vél, að á þeim
?urfa að vera vélstjórar með meira vélstjóraprófi
þá skal þeim greitt þannig:
1. vélstjóri hafi 114 hásetahlut og auk þess kr.
50,00 — fimmtíu krónur — pr. mánuð.
2. vélstjóri hafi 114 hásetahlut og auk þess kr.
50,00 — fimmtíu krónur — pr. mánuð.
7. gr.
Á skipum er stunda línuveiðar eða þorsknetjaveiðar,
skal greiða þannig:
a) Skipstjóri hafi 2 hásetahluti og auk þess kr. 100,00
— eitt hundrað krónur — pr. mánuð.
b) Stýrimaður hafi IV2 hásetahlut, ef um útilegu-
bát er að ræða, en á þeim landróðrabátum, sem
lögum samkvæmt eru skyldir að hafa stýrimann,
hafi hann 1% hásetahlut, auk þess kr. 100,00 —
eitt hundrað krónur — pr. mánuð til hvors.
c) Á þeim skipum er hafa það stóra vél, að á þeim
þurfa að vera vélstjórar með meira vélstjórapróf-
inu, þá skal þeim greitt þannig:
1. vélstjóri hafi IV2 hásetahlut og auk þess kr.
50,00 — fimmtíu krónur — pr. mánuð.
2. vélstjóri hafi 114 hásetahlut og auk þess kr.
50,00 — fimmtíu krónur — pr. mánuð.
d) Skipstjóri, stýrimaður og vélstjórar greiða sjálfir
fæði sitt.
7B
VÍKINQUR