Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Page 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Page 26
ur fyrir því hafa ekki komið í ljós opinberlega ennþá, hverjar svo sem þær eru. En það verða menn að hafa í huga, þegar um staðsetningu slíkra fyrirtækja er að ræða, að stundarhagsmunir einstakra manna mega ekki ráða neinu þar um, heldur hvað hentar bezt fyrir framtíðina. Það er byggt fyrir hana, en ekki stundina, sem er að líða. Nú eftir rúm 5 ár er þessum málum háttað þannig, að í förum hinna gömlu dráttarbrauta slippsins er nú byggð ný dráttarbraut, sem tekur um 1400 tonna þunga, með hliðarbraut- um, sem taka 1000 tonna þunga, í umhverfi, sem er alls ófullnægjandi, með tilliti til annarar starfrækslu hafnarinnar, og í athugun er við hlið þessarar dráttarbrautar staðsetning þurr- kvíar og annara mannvirkja, sem skipasmíða- stöð útheimtir. Á þeim stað, sem milliþinganefndin benti á, og Alþingi, bæjarstjórn og hafnarstjórn sam- þykkti þá hefur Skipanaust h.f. verið að reyna að fá leyfi og aðstoð þess opinbera til þess að koma upp og starfrækja dráttarbrautir fyrir allt að 2500 tonna þunga, sem mundi geta tekið öll skip, sem Islendingar eiga nú, nema Trölla- foss. Það hefur að vísu fengið leyfi til að setja upp og starfrækja dráttarbraut þessa, en að- stoð þá, sem nauðsynleg var, ábyrgð ríkisins, hefur það ekki getað fengið, þrátt fyrir að ríkið eða Alþingi fyrir þess hönd. hafi verið á undanförnum árum óspart á að láta ábyrgðir í té á ýmsu, sem ekki getur talizt nauðsynlegra en þetta fyrirtæki, Skipanaust. Skipanaust h.f. er stofnað 1944, af allmörg- um iðnaðarmönnum, með það fyrir augum að koma upp og starfrækja dráttarbrautir til skipaviðgerða og skipasmíða. Og það einmitt bindur sig við áðurgreindan stað í tillögum milliþinganefndar, svo það eitt út af fyrir sig, hefði átt að tryggja því örugga aðstoð hins opinbera, eftir að það sá sér ekki fært, að hefj- ast handa þar. Nýbyggingarráð samþykkti dráttarbraut fé- lagsins, sem lið á heildaráætlun fyrir þjóðar- búskap fslendinga árið 1947. Félagið hefur samið um kaup á mjög fullkominni dráttar- braut, frá firmanu Grandall Dry Dock Eng- eneer, keypt efni og gert annan undirbúning fyrir samtals um 600.000 kr., og bygging þess- arar dráttarbrautar mun taka 5—6 mánuði, eftir að allt efni er komið hér á staðinn. Þetta firma hefur byggt dráttarbrautir víðs- vegar um heim, og hafa alls staðar reynst vel. Hr. ólafur Sigurðsson forstjóri Landssmiðj- unnar, lýsir þessum dráttarbrautum á eftir- farandi hátt: „Ég hef athugað allar einstakar teikningar frá firmanu Grandall Dry Dock Engereers Inc., Boston, er þeir hafa gert af fyrstu hugmynd félagsins um 1500 smál. braut. Allur sá útbún- aður virðist vera traustur og haganlega gerð- ur, enda hefur nefnt firma margra áratuga reynslu í byggingum slíkra brauta. Það, sem sérstaklega má benda á að til verulegs hægðar- auka og þæginda við vinnuna er: 1. Að meðfram hliðum vagnsins eru háir stálgrindaveggir, með gangpalli efst. Sigl- ir skipið inn á milli veggjanna og er fest í þá meðan afrétting þess á vagninum fer fram. Auðveldar það að mun upptökur skipa. Til samanburðar má geta þess, að á braut Slippfélagsins eru engir slíkir veggir, og gefur félagið upp, að til upp- töku þurfi samtals 18 menn. Varla mun þurfa helming þeirra í fyrirhugaðri braut Skipanausts h.f., og þó mun verkið vinn- ast fljótar. 2. Að trépallur er ofan á vagni brautarinn- ar og myndar hann lárétt og gott vinnu- plan undir skipinu, engir þverbitar eða slár hindra þar vinnu eða flutningatæki“. Ennfremur segir hr. ólafur Sigurðsson um hvernig dráttarbrautar- og þurrkvíarmálum landsins verði hagað í framtíðinni fyrir togara og stærri skip: „Tvær lausnir eru hugsanlegar fremur öðr- um: 1. a. Dráttarbraut Slippfélagsins h.f. er þeg- ar byggð og tekur mest 1400 smál. þunga á braut og 1000 smál. á hliðar- færslu. b. Þurrkví, 87 metra að lengd, samsvarar ca. 2500 smál þunga. c. Þurrkví ca. 140 m. að lengd fyrir allt að 8000 t. d. w. skip. 2. a. Dráttarbraut Slippfélagsins, sem að að ofan er nefnd. b. Dráttarbraut Skipanausts h.f. fyrir mest 2500 smál. þunga á braut og 1500 smál. hliðarfærslu. c. Þurrkví, ca. 140 metrar að lengd. Dráttarbraut Slippfélagsins er fyrir hendi og er fullt tillit tekið til hennar í báðum lausnunum". Þurrkví ca. 140 m. er á fjögurra ára áætlun ríkisstjórnarinnar og í fullu samræmi við al- mennar hugmyndir fjári’áðamanna. En hún meðtekin í báðum lausnum. Lausnirnar eru þannig frábrugnar hvor annari aðeins hvað snertir b-liðinn. Virðist því ástæða til að athuga hann nánar. Þurrkvíin nr. 1. b. hefur eitt stæði og kostar 60 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.