Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Qupperneq 43
Lie, aðalritara Sameinuðu þjóðanna
og Romulos forseta allsherjarþings-
ins, tilkynningu varðandi útnefn-
ingu og nöfn manna þeirra, sem
verða eiga fulltrúar kínversku
kommúnistastjórnarinnar hjá S. Þ.
Ennfremur er endurtekin krafan
um að fulltrúar þjóðernissinna-
stjórnarinnar verði látnir víkja
sæti fyrir fulltrúum Pekingstjórn-
arinnar.
3./1. íslenzku fulltrúarnir á þingi
sameinuðu þjóðanna fengu sam-
þykkta tillögu um, að landhelgis-
mál verði tekin til meðferðar í sér-
l'ræðingadeild stofnunarinnar, en þar
fá þeir kærkomið tækifæri til að
skýra landhelgismálin frá íslenzku
sjónarmiði.
Fjórtán brezkir, norskir og sænsk-
ir vísindamenn eru nýlagðir af stað
á norsku heimskautafari frá Höfða-
borg til Suðurskautsins.
Fulltrúadeild franska þingsins af-
greiddi í gær fjárlagafrumvarpið til
efri deildar, og var það við lokaat-
kvæðagreiðslu samþykkt með 21 at-
kvæðis meirihluta.
Itíkisstjórn Islands hefur veitt
lýðveldinu Bandaríkjum Indónesíu
viðurkenningu sína, og hefur for-
seti fslands sent forseta lýðveldis-
ins heillaóskaskcyti í þessu tilefni.
•
6./1. Bandaríkjastjórn lýsir yfir,
að hún muni ekki veita þjóðernis-
stjórninni í Kína hernaðarlega að-
stoð til þess að verja eyna Formósa,
né heldur senda þangað hernaðar-
ráðunauta til þess að skipuleggja
varnirnar fyrir kínversku stjórnina.
•
9. /1. Utanríkisráðherra kínversku
kommúnistastjórnarinnar i Peking
hefur formlega krafizt þess, að full-
trúar kínversku þjóðernissinna-
stjórnarinnar verði látnir víkja sæti
í öryggisráðinu fyrir fulltrúum
hennar.
•
10. /1. Átta verkamenn voru skotn-
ir til bana, yl'ir 30 hættulega særðir
og meira en 60 hlutu minni áverka,
er ítalska rikislögreglan hóf skot-
hrið á kröfugöngu i borginni Mod-
ene í gær. Um þrjár milljónir
italskra verkamanna gerðu mót-
mælaverkfall i gær.
13./1. Varð árekstur milli brezks
kafbáts og sænsks 600 smálesta
skips í Themsármynni, með þeim
afleiðingum, að kafbáturinn sökk
þegar í stað. Alls munu 76 menn
hafa verið á kafbátnum. 58 manna
er saknað en 15 varð bjargað.
•
15./1. Utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna skýrði frá því, að komm-
únistastjórnin kínverska hefði lagt
hald á ræðismannsskrifstofur Banda
ríkjanna í Peking, svo og eignir
landsins þar. Lítur Bandaríkjastjórn
mjög alvarlegum augum á þessa at-
burði, og hefur við orð að kalla
heim alla sendimenn sína frá þeim
hluta Kína, sem kommúnistar ráða.
•
17./1. Fulltrúar Kússa gengu af
fundi þriggja nefnda, sem eru inn-
an vébanda S. Þ., er synjað var
kröfu þeirra um brottrekstur full-
trúa kínversku þjóðernissinnanna úr
hlutaðeigandi nefndum. Áður hafði
rússneski fulltrúinn Malik gengið
af fundi Öryggisráðsins, vegna setu
fulltrúa kínversku þjóðernissinn-
anna þar.
•
19. /1. Skýrt var frá því, að David
Lilientahl hafi boðizt til að fara til
l'undar við Stalin marskálk í Moskva
til að bera sættir milli Bandarikj-
anna og Kússlands í kjarnorkumál-
unum. Lilicntahl var til skamms
tíma formaður kjarnorkumálanefnd-
ar Bandaríkjanna.
•
20. /1. Mikil flóð liafa orðið í
Mississippi og þverám hennar í
Bandaríkjunum. Hefur hún flætt
yfir akra, og eru víða allstór Iand-
svæði undir vatni. í suðausturhluta
Missouririkis hafa um tíu þúsundir
manna orðið að yfirgefa heimiii sín
uin stundarsakir vegna flóðanna.
Pekingstjórnin hefur scnt Tryggve
21./1. André Vishinsky, utanrík-
isráðherra Rússa, birti yfirlýsingu í
Moskva, þar sem hann mótmælir
því, að Sovétríkin sækist eftir yfir-
ráðum í Kína.
Færeyingar hafa fest kaup á flug-
vél, hinni fyrstu, sem þeir eignazt.
Kom flugvélin til Færeyja fyrir jól-
in og verður aðallega notuð til flutn-
inga milli eyjanna.
•
25./1. Skriðjökull féll á þorp
norðarlega í Irak. Brotnaði svo mik-
ið af jöklinum og hrundi niður fjalls-
hlíðina, að þorpið hvarf undir is-
hrönglið. Talið er, að íbúar allir og
búpeningur hafi farizt og hafa mörg
lik fundizt.
Svíþjóð veitt Marshalllán að upp-
hæð 350 þúsund dollarar. Var frá
þessu grcint í tilkynningu frá Efna-
hagssamvinnustofuninni í Wash-
ington. Fé þessu verður varið til
þess að festa kaup á ýmislegum
tækjurn til málmgraftar fvrir iðn-
fyrirtækið A. B. Zinkgruvor, en það
á miklar zinknámur skammt frá
Falun í Svíþjóð. Hins vegar inun
A. B. Zinkgruvor tryggja sér lán
lieima í Svíþjóð, er nemur um sex
sinnum hærri upphæð en dollara-
Iánið, er að framan getur, til þess
að nýta betur zinknámur Svíþjóðar.
I gær fór fram í Englandi hnefa-
leikaheimsmeistarakeppnin í létt-
þungavigt. Bretinn Freddie Mills og
Ameríkumaðurinn Joe Maxim áttust
við og lauk kcppninni með sigri
Maxim, en hann sló Mills „knoch-
out“ í 10. lotu. Mills var fyrrvcrandi
heimsmeistari.
1./2. Sjónvarpið á stöðugt vax-
andi vinsældum að fagna. I Bret-
landi er tala þeirra, sein eiga sjón-
varpstæki, komin upp í 285,000, og
hefur aukizt um 90,000 á síðastliðnu
ári.
VÍ Kl N □ U R
77