Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Qupperneq 5
Mb. Grindvíkingur ferst meb S mðnnum
Þorvaldur Jón Kristjánsson.
Valgeir Valgeirsson.
Sigfús Bergmann Árnason.
Þau hörmulegu tíðindi gerðust föstudagskvöldið 18. janúar s.l., að vélbáturinn Grindvíkingur
fórst við landtöku í Grindavík, er hann var að koma úr róðri. Hvassviðri var, hríðarveður og
myrkur, er slysið vildi til. Strandaði báturinn á Þórkötlustaðanesi, aðeins tveggja kílómetra vega-
lengd frá höfninni. Með Grindvíkingi fórust fimm vaskir sjómenn, fjórir úr Grindavík og einn
af Vestfjörðum. Voru þeir þess-
ir: Jóhann Magnússon, skip-
stjóri, Guðmundur Hermann
Kristinsson, vélstjóri, Þorvald-
ur Jón Kristjánsson, Sigfús
Bergmann Árnason og Valgeir
Valgeirsson.
Grindvíkingur var stærsti
báturinn í Grindavík, 66 smál.
Hann var eikarskip, smíðaður
á Akranesi 1947.
Guðmundur Herm. Iíristjánsson,
vélstjóri.
Lík skipverja hefur öll rekið.
Hinn 29. janúar fór fram minn-
ingaráthöfn í Grindavík og út-
för þeirra fjögurra skipverja,
er þaðan voru. Lík hins fimmta,
Valgeirs Valgeirssonar, var
flutt norður í heimasveit hans,
Árneshrepp, og jarðsett þar.
Jóhann Magnússon,
skipstjóri.