Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Síða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Síða 14
Fiskveiðar og íiskiðja gegn gjaldeyrisskorti og dýrtíð Eftir Karl Dúason 1. Tilg-angur greinar þessarar er að reyna að vekja athygli á því, að íslendingar leggja ekki nóga alúð við arðvænlegasta atvinnuveg sinn, fiskveiðarnar. En til fiskveiðanna tel ég einnig að breyta aflanum í verðmikla vöru. Verðmæti aflans í hlutfalli við til- kostnað er aðalatriðið, en ekki aflamagn. Við erum á glapstigum með atvinnuhætti okkar og landið er í háska statt fjárhagslega. En það er háttur lýðræðisþjóða að mynda ríkisstjórnir á hættutímum, sem hafa völd og manndóm og lýðhylli til að afstýra hættunum. Hags- munir einstakra manna og flokka eru þá látnir þoka fyrir þjóðarnauðsyn. Væri þingmönnum og mönnum, sem hafa að atvinnustörf í þágu landsstjórnar, fækk- að, mundi fást meiri festa í íslenzkt stjórnarfar. 2. Hver fiskimaður, þar með taldir þeir, sem vinna í landi vegna veiðanna, framleiðir á ári fyrir um 20.000 kr. í erleiídum gjaldeyri, auk tilkostnaðar, og jafnvel meira. Hver bóndi framleiðir á ári fyrir um 10.000 kr. að markaðsverði ei'lendrar vöru eða minna. Og hér kemur til frádráttar, að í hlutfalli við afrakstur er fjárfesting til landbúnaðarins mikil og gjaldeyrisnotkun sömuleiðis. Erlendan áburð þarf til að rækta grasið á túnunum. Kjarnfóður, sem ýmist kostar erlendan gjaldeyri eða er gjaldeyrisvara, þarf til að fóðra með skepnurnar. Af- urðir sveitanna kosta mikinn erlendan gjaldeyri. Ýmsar iðngreinir framleiða sáralítið, sé það miðað til erlends gjaldeyris. Erlend hráefni svokölluð, hálfunnar vörur og fullunnar vörur ópakkaðar, kosta að sjálf- sögðu minna en vörur í smásöluhæfu standi. En iðnað- urinn þarf margt fleira, sem beint og óbeint kostar erlendan gjaldeyri: Fjármagn, orku, húsnæði, vélar. Og þetta allt nemur sennilega meiru stundum, en þó vör- urnar væru fluttar inn söluhæfar til neytenda. 3. Þótt búskapur dragist nokkuð saman eigum við jörð- ina fyrir því og getum gripið til hennar þegar við þurfum. Og jarðvegurinn mun oftar batna en spillast á því að fá að hvílast. En svipað er ekki hægt að segja um auðlindir sævar- ins. Erlendir sjómenn sækja fiskimið okkar þeim mun fastar, sem við notum þau minna. Til þess að koma á heilbrigðu jafnvægi í þjóðarbú- skap okkar, er aukning útvegsins alveg óhjákvæmileg. Landbúnaðarframleiðsla tvöfaldar dýrtíð, ýmis iðnaður margfaldar hana. Auk þess eru stéttir starfsmanna, sem ekki eru framleiðendur, geysifjölmennar, og allt of fjölmennar hlutfallslega við stéttir fiskimanna, sem einar standa straum af öflun erlends gjaldeyris að mestu leyti. Það er undantekning, ef íslenzkur iðnaður, annar en fiskiðnaður, né bændaframleiðsla, getur selst á erlendum markaði á kostnaðarverði. Fiskveiðar bera sig að vísu heldur ekki eins og er. Það er af því, að 6 til 8 fiskar af hverjum 10, sem dregnir eru úr sjó, þurfa að ganga til þarfa annarra stétta. Því bezt batna lífskjör og hækka laun með vaxandi tækni, að vinnu- aflið sé nýtt og skipulagt skynsamlega. 4. Það er sammæli allra, að kostnaður við opinbera starfrækslu sé of mikill. Ég ætla hér að drepa á eitt atriði, alþýðufræðsluna. Skólaaldur alþýðufræðslu nær nú yfir 8-10 ár. Varla helmingur af námi skólanna kemur nemendum að bein- um notum við ævistarf þeirra. En á skólabekknum fer feiknamikið vinnuafl og athafnaorka til spillis. Og þar deyr mörg þrá hins vaxandi barns til útiveru og ævin- týra og verklegra athafna. Eftir 8-10 ára innisetu kýs hið unga fólk flest lífsatvinnu innan hlýrra veggja. Hér álít ég höfuðorsök þess, að fólk fæst helzt ekki til útivinnu, sem þó hlýtur enn um nokkurn aldur að verða aðalstarf íslendinga. Mín sannfæring er, að börn yrðu tápmeiri, fjölhæf- ari og betri þjóðfélagsþegnar, ef skólaárið væri stytt um hejming, í 3-4 mánuði. En hinn tíma ársins fengju börnin að vinna og lifa sem fullor’ðið fólk, sjálfstæð og óháð athafna sinna, innan nauðsynlegs heimilisaga, og þó haldið að útivist og íþróttum. Nú er mikið rætt um að breyta til um kennslugreinar í skólunum og sníða kennsluna meira í þarfir atvinnu- veganna. Allir, sem á það minnastj virðast sammála um, að það yrði til batnaðar. Stærsti og almennasti atvinnuvegur okkar er heimilishaldið. Það nær til hvers einasta manns og tímanleg afkoma okkar er mjög und- ir því komin, að það fari vel úr hendi. Ég álít að vísu, að skyldunám í skólum sé of margþætt. En ég álít að heimilisökonomi sé þess verð, að hún væri kennd í öllum skólum, sem námsgrein. 5. Hin mikla meinsemd þjóðfélagsins er, að hlutfalls- lega eru ýmsar atvinnugreinar orðnar allt of fjölmenn- ar. Störf, sem eru þess eðlis, að framleiðslan þarf að kosta þau. í kjölfar skólans fer ofvöxtur í stéttir 14 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.