Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 20
Dökkt andlit Bougwes hrukkaðist ólundarlega niður undan gáu hárinu, þegar hann lötraði heim í leir- kofann sinn. Hann hefði helzt kosið að þu^a ekki að hitta Ta, sem jafnan tókst með skarpskygguum augum sínum og hvassri tungu að finna viðkvæmustu blettina á honum. Hann gæti auðvitað barið hana, en áður myndi henni þó takast að gera honum gi-amt í geði. Þetta hvíta fólk með fáránlegu nöfnin hafði komið eins og sending af himni til þorpsins Dingwau, þar sem þau grófu og leituðu milli legsteinanna í muster- inu og grófu upp plötur og illgresi og sögðu alls konar bjánaleg orð, sem skynsamur fellali skildi mætavel, að ekki voru annað en tómur þvættingur. Níl hafði unnið sitt verk, útsæðið var komið í jörð- ina og fólkið í Dingwau hafði ekki annað að gera en bíða eftir uppskerunni. Þess vegna var þægileg til- breyting í að fá hvíta fólkið, og svo þurfti það fylgd- armenn og ráðgjafa. Það leiðinlega var einungis, að gamli maðurinn með hvíta hárið hafði kvartað yfir, að einn kassinn væri horfinn. Ta hafði sagt, að ekki væri hyggilegt að geyma hann í kofanum undir hrúgu af geitarskinnum, en Bougwe hafði svarað, að þeir hvítu væru svo heimskir, að þeir myndu ekki einu sinni sakna kassans. Og svo í dag hafði Cornelius Mikeljohn prófessor litið yfir farangurinn, og síðan spurt Ibn Gann, hvað orðið væri af kas=a númer tólf. Ibn Gann hafði sjálfur gefið Bougwe kassann, s\o engin hætta var á, að hann myndi kjafta frá. En hvíti maðurinn hafði strax sent eftir hinum mikla Bougwe og lýst því yfir, að kæmi kassinn ekki strax í leitirnar, yrði það alvarlegt mál. Höfðinginn Bougwe var því í slæmu skapi, þegar hann lallaði heim til sinn- ar heittelskuðu. Á meðan sat Mikeljohn í tjaldi sínu ásamt tveimur ungum manneskjum. „Ég er gramur yfir þessum þjófnaði“, sagði hann. „Ég hef mesta löngun til að fara til Khartum og sækja lögregluna". „Það myndi ég ekki gera í yðar sporum. Við verð- um heldur að gæta farangursins betur eftirleiðis og komast sem fyrst af stað héðan“. Það var einkaritari hans, Gerald Pinlay, sem talaði. „Á meðan þér hafið verið önnum kafninn við rannsóknir, hef ég notað tím- ann til að líta dálítið í kringum mig. Fólkið hérna hefur afar frumstæðar hugmyndir og er framúrskar- andi hjátrúarfullt; ungfrú Mikeljohn hefur einnig tekið eftir því“. 20 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.