Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 28
Kerlingin: — Þú ert rniklu óhreinni á fótunum en ég. Karlinn: — Þaö er eölilegt. Ég er fullum tíu árum eldri. Illugi smiður. Illugi hét maður, Jónsson, nafnfrægur smiður. Hann var maður vitur, en orðhákur, einkum við heldri menn. Illugi var lengi í Skálholti við smíðar hjá Finni biskupi, en hafði þó bú á öðrum stöðum. Eitt sinn hafði Illugi bú á Háholti á Skeiðum, en var þó jafnan á vetrum að smíðum hjá biskupi. Þá hafði sá maður ráðsmennsku á Skálholtsstað, er Einar hét, bóndi að Drumbodds- stöðum, mikilhæfur maður, en fremur svakafenginn. Glettur voru með þéim Einari og Illuga, og sagði Einar Illuga einu sinni í fréttaskyni, að nú væru ærnar farn- ar að hlaupa blæsma frá Háholti, því að hrútinn vanti aði. „Lítil tíðindi eru það“, svaraði Illugi, „en hitt er fátíðara, að nú eru strokkaðir ellefu strokkar á Drumb- oddsstöðum, og gengur ein bullan að öllum“. Þeir Einar og Illugi voru báðir kallaðir kvennamenn. Á FRÍVH ef sér væru goldin vel smíðalaun sín. — Finnur biskup þótti naumur. * Eitt sinn smíðaði Illugi teinæring í Grindavík, og bað formaður sá, er átti að vera fyrir skipinu, hann um að sjá svo til, að skip þetta gæti ekki farið af kil- inum, ef stjórnin bilaði ekki. Illugi mælti: „Ei mun af kilinum fara, og fyrr mun stjórnin bila“. Sagt er, að skip þetta liðaðist sundur undir formanninum, svo að hann týndist og skipshöfnin öll, en aldrei velti kilinum. * „Þú hirðir hann“. Bóndi einn í Gnúpverjahreppi var fyrir allmörgum árum grunaður um sauðaþjófnað. Hann fór af landi burt áður en rannsókn hófst í málinu. Sumir grunuðu Gest á Hæli um að vera í vitorði um burtför mannsins. Nokkru seinna hittir Gestur bónda úr neðri hluta Ár- nessýslu. Hann bjó á rekajörð og lék orð á, að hann væri djarftækur á vogrek og aðra muni, er á reka kæmu hjá honum, þótt annarra eign væri. Bóndi fer að svara Gesti um mannhvarfið og spyr hann meðal annars, hvar hann haldi, að maðurinn sé niður kominn. „Og ég veit það ekki“, segir Gestur, „en þú hirðir hann kannske, ef hann kemur á rekana hjá þér“. * * Einu sinni smíðaði Illugi prédikunarstól í Skálholts- kirkju og sagði við Finn biskup, þegar smiðinni var lokið: „Þessi þolir ykkur eitt skammaryrði". * Eitt sinn vildi biskup segja Illuga fyrir smíði nokkru, en hann mælti: „Les þú, Finnur, í bókum þínum. Ég gæti axar minnar, hefils og sagar, og má vera, að hvorum okkar hæfi þá starfi sinn“. * Einhverju sinni átti Illugi að járna hest og heimti mann til þess að halda fæti, en menn voru ekki við- látnir, svo að biskup greip fótinn og hélt honum. Illugi lét sem hann vissi ekki, að þetta var biskup, og sagði: „Láttu ekki fótinn leka, helvítan þín“, — en leit svo upp og sagði: „Á, ert þú það, Finnur?“ Svarið. Einu sinni messaði séra Benedikt Árnason á Kvenna- brekku að Vatnshorni í Haukadal, nálægt aldamótunum 1800. Þá var siður að spyrja unglinga út úr messunni, og ætlaði prestur að gera það. Sjö eða átta unglingar voru þar viðstaddir, og var einn þeirra Ólafur Sigurðs- son frá Núpi, er seinna varð prestur í Flatey (d. 1860). Annar hét Erlendur Andrésson frá Krossi. Hann varð seinna hið mesta karlmenni, en þótti ávallt fremur grunnhygginn. Prestur spurði Erlend fyrstan, hvað hann myndi úr ræðunni, en hann svaraði: „Synd, dauði, djöfull og helvíti, karl minn“. Prestur spurði, hvort hann myndi ekki meira. „Óekkí, karl minn“, svaraði Erlendur. Við þetta brá prestur klúti fyrir munn sér, en lítið vantaði til, að piltarnir skelltu upp úr, og varð ekki meira úr spurningum prests í þetta skipti. * * Biskup bauð Illuga að fá handa honum heiðurspen- ing fyrir smíðar hans, en hann þá það ekki og kallaði slíkt hégóma. Aftur kvaðst hann mundu virða það vel, „Tilbúinn er ég“. Bóndi nokkur var í kaupstaðarferð með tveimur ná- grönrium sínum. Þegar hann hafði lokið við vöruúttekt sína hjá kaupmanni, drakk hann sig svo drukkinn, að 20 VIKIN G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.