Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 30
Sexíugur: ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON úígerðarmaður á Ölafsfirði Þorsteinn Þorsteinsson er fæddur 13. ágúst 1891 að Hólkoti í Ólafsfirði, og varð því sex- tugur 13. ágúst s.l. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Jóns- son og Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sem lengst af bjuggu í Háaskála í Ólafsfirði, og voru oft við það heimili kennd síðan. Þorsteinn hefur ætíð verið mesti dugnaðar- og framkvæmdatmaður, að hverju Siem hann hefur unnið, og kom það snemma í ljós. Hef ég aldrei þekkt jafn vinnugefinn og duglegan ungling á fermingaraldri, eins og hann var. Sjóróðra byrjaði hann sem háseti á árabát föður síns 14 ára gamall, og að tveimur árum liðnum, eða 16 ára, gerðist hann formaður á sama bát, og sótti sjóinn af miklu kappi og fiskaði vel. 18 ára byrjaði hann svo formennsku á litlum vélbát, sem faðir hans átti, ca. 4 smá- lestir, og var það einn af fyrstu vélbátunum, sem gerðir voru út frá Ólafsfirði. Ekki leið á löngu þar til Þorsteinn fór að gera út upp á eigin spýtur, keypti hann þá stærri bát í félagi við Þorvald Sigurðsson, og varð það upphaf að hinum ágætasta félagsskap þeirra í milli um útgerð og fleira. Gerðu þeir 30 út á tímabili fleiri báta, og var Þorsteinn óslitið formaður einhvers þeirra, þar til um 45 ára aldur, að hann hætti að mestu sjóferðum, og tók við umsjón í landi. Allan þennan tíma, eða um 30 ára tímabil, stundaði Þorsteinn sjóinn af mesta kappi og forsjá, og var alltaf einn af aflahæstu formönnum þess tíma hér við Eyja- fjörð, enda hafði hann ætíð úrvals mannskap, því margir sóttust eftir skiprúmi hjá honum, bæði vegna góðrar aflavonar og þó sérstaklega vegna hans góðu framkomu og lipurðar í sam- búð við aðra menn. Á yngri árum sínum stundaði Þorsteinn nokk- uð selveiðar, sérstaklega síðla vetrar og á vor- in, var hann mjög heppinn við þær veiðar, eins og aðrar er hann reyndi. Kom hann með marg- an fallegan kóp og blöðruselinn að landi, en því miður vantar skýrslur um hve margir þeir urðu samtals. Við veiðar þessar þurfti, ásamt mikilli æfingu í skotfimi, mikla þolinmæði, þrautseigju og harðfengi. Allt þetta átti Þorsteinn í ríkum mæli og þess vegna heppnaðist honum svo vel. Þorsteinn hefur gegnt mörgum trúnaðarstörf- um fyrir sveit sína, hann hefur setið í hrepps- nefnd yfir 20 ár, og þar af verið hreppsnefndar- oddviti í 9 ár, auk þess gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum, og þá sérstaklega viðkomandi sjávarútveginum. — Hann er giftur Snjólaugu Sigurðardóttur, hafa þau hjón eignazt þrjú mannvænleg börn, sem öll eru gift og búsett í Ólafsfirði. Þorsteinn er mjög vinsæll maður, og hefur eignazt marga vini og kunningja um ævina, sem allir hugsuðu til hans með hlýhug og sendu honum vinarkveðjur á afmælisdaginn, með ósk um gæfuríka framtíð. Þorv. Sigurðsson. V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.