Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 33
— Nei, skipstjóri. Við drukkum dálítið af slæmu rommi í Kingston, síðan eru tveir dagar, en það svífur á okkur þarna niðri. Þetta gat átt sér stað. Djúpköfun hefur stundum hin einkennilegustu áhrif. Það kemur fyrir, að menn léttast um tíu pund á einum degi við köfun. Næsta morgun fullvissaði Ellis sig um, að þeir væru allsgáðir, og síðan var gerð nákvæm leit í herbergjum þeirra, en ekkert áfengi fannst. Þrátt fyrir það byrjaði hinn grunsamlegi hlátur aftur, er líða tók að hádegi. Venjulegast er hægt að fylgjast með ferðum kafara á loftbólunum, sem stíga upp frá þeim, en ef hann er inni í skipsflaki, er ekki gott að átta sig á hvað hann hefst að. Ellis lét nú draga mennina aftur upp, og enn reyndust þeir greinilega drukknir. — Ég veit ekki hvað þið eruð að gera þarna niðri, en hvað svo sem það er, þá er það ódrengilegt. Þessi áhöfn vinnur fyrir ágóðahluta og útgerðin kostar mig 500 dollara á dag. Þetta er tjón fyrir okkur alla, og ég' heimta skýringu. Kafararnir höfðu auðsjáanlega mikla skemmtun af undrun allra yfir þessu óskiljanlega fyrirbrigði. — Þetta er allt í lagi, skipstjóri, hikstuðu þeir. — Við skulum skila góðum árangri á morgun. — Já, ég ætla mér að sjá til þess, að þið vinnið betur en þið hafið gert nokkru sinni áður. Tæplega höfðu fyllaraftarnir lagzt fyrir, fyrr en Ellis heimtaði sinn eigin kafarabúning og fór niður í sokkna skipið. Tveim tímum síðar kom hann upp aftur með lykilinn að leyndardóminum. Daginn eftir, þegar hinir fyndnu kafarar fóru niður, voru skýrslur þeirra skýrar og greinilegar fyrst í stað, en eftir stundarkorn urðu þeir háværir og orðbragðið þannig, að það var jafnvel ekki samboðið kafara. — Allt í lagi, piltar, farið nú að vinna og bæta fyrir tímatapið. Þetta var ansi sniðugt hjá ykkur, en skógar- túrnum er lokið, sagði Ellis þeim í símann. Þar eð mennirnir fóru ódrukknir niður, en komu drukknir upp aftur, vissi Ellis, að ekki kom annað til mála en að þeir drykkju niðri. Þess vegna fór hann niður til að athuga hvernig þeir færu að þessu. Hann fann, að í einu herberginu í Hortu var sjólaust loftrúm upp undir loftinu, þar sem hinir spaugsömu kafarar gátu lyft sér svo hátt, að óhætt var að opna andlits- glugga hjálmsins og gæða sér á whisky, sem þeir fundu í vínskáp skipsins. — Sniðugt! — Jæja, Ellis brosti. — Ekki svo mjög. Maður getur jafnvel reykt vindling í kafi undir slíkum kringum- stæðum. I sjálfu sér fannst þessum mönnum ekkert fyndið í því, að drekka sig fulla, en að gera það á sjávarbotni og sjá hversu undrandi við vorum, er þeir komu upp drukknir, það var ómetanlegt grín. Ég fjar- lægði einfaldlega vínið úr skápnum, og eftir það skil- uðu þeir prýðilega vel unnu starfi og miklum afköstum. Ég minnti Ellis nú á, að hann hafi ætlað að segja mér frá dauða manninum gangandi. — Já, alveg rétt. Það skeði skömmu eftir atburðinn með brennivínið. Ég var að ná mér eftir kolsýruvöntun, sem orsakaðist af beygjuloku, og ætlaði ekki að kafa fyrst um sinn. En til að reyna að vinna upp tafir, fór ég samt niður daginn eftir til að athuga framhluta skipsins. Sjórinn var svo tær og dásamlega hreinn, að skyggni var ágætt. Botninn hvítur sandur. Ég gekk niður stiga, fremst í Hortu, og leit inn i herbergin á báðar hendur, en sá ekkert sérstakt, fyrr en ég kom að fremsta klefanum. Hurðin var föst í karminum, svo að ég þvingaði hana upp með kúbeini. Þetta var stjórn- borðsklefi og skipið hallaðist ca. 15 gráður til bakborða, svo að gólfið hallaðist upp á við, þaðan, sem ég stóð. Ég ætlaði að fara inn í herbergið, en hikaði. Eitthvað hreyfði sig í neðri kojunni. Mér datt fyrst í hug kol- krabbi. Þessi djöfull, sem köfurum stendur ætið stuggur af. Að komast í kast við hann í þröngum klefa, er ekk- ert spaug. Mér gafst ekkert tækifæri til þess að gera mér ljóst, hvernig stór kolkrabbi hefði komizt inn í lokaðan klefann, því þegar þessi dcika þúst kom út úr kojunni, sá ég að þetta var enginn kolkrabbi. Ég ýtti betur við hurðinni og kom hreyfingu á sjóinn. Ellis þagnaði. — Þú heldur víst ekki, spurði hann, að ég sé líklegur til að sjá ofsjónir? Ég fullvissaði hann um, að slíkt kæmi mér ekki í hug. — Þakka þér fyrir. Jæja, ég sá nokkuð, sem ég gleymi aldrei. Birtan í gegnum kýraugað gerði neðri kojuna aðeins skuggalegri og ógreinilegri.....en samt. Ég stirðnaði upp og gat ekki hreyft mig úr sporunum, og mér fannst kalt vatn renna niður eftir bakinu....... Þarna inni var maður. Hann hafði legið þarna í koj- unni með eitthvað undir höfðinu, sem líktist brúnum púða. Taktu eftir, hann lá þarna eins og hann væri að fá sér smáblund. — Flaut ekki upp undir loft, eins og venja er um drukknaða menn í skipum, sem löngu eru dánir. Svipur Ellis varð harður, er hann hugsaði um þetta. — Það fer ennþá hrollur um mig, er ég hugsa um þetta. Ég stóð þarna eins og steingerfingur og glápti á manninn, sem reis upp i kojunni, steig fram úr og stóð þarna á höllu gólfinu. Ég vildi hörfa undan og loka hurðinni, en gat ekki hreyft mig. Ég hélt um tíma, að ég myndi missa vitið. Dauði maðurinn gekk nú beina leið í áttina til mín. Hann gekk hægt og álútur, eins og hann væri að búa sig undir að ráðast á mig, veifandi handleggjunum til og frá. Það var hræðilega óhuggulegt. Nú sá ég, að þetta var Kínverji, þótt andlitið væri stórskemmt eftir sjávardýrin. Löngu dauður Kínverji, sem ennþá gekk. Brostin, hvítleit aug- un virtust stara á mig í hálfrökkri klefans, og þunnt, gljáandi hárið breiddist út í vatninu, aftur af þessari draugalegu veru. Síðan þrýstist veran upp að mér og ég fann hvernig hún ýtti mér aftur á bak. Mér virt- ist hún ætla að leggja handleggina um hálsinn á mér og faðma mig að sér. Einhvern veginn tókst mér að hrinda þessu frá mér og loka dyrunum........Skipstjórinn leit á mig og brosti þvingað. — Þegar þeir höfðu híft mig upp og tekið af mér hjálminn, man ég að þeir urðu mjög áhyggju- fullir, er þeir sáu að ég var náfölur. Ég sagði þeim hvað skeð hafði, og annar kafarinn hló að mér. Ég sneri mér að honum og spurði, hvort hann vildi fara niður. — Auðvitað vil ég það, sagði hann, veifaði til félaga síns og seig niður. Nokkrum mínútum seinna heyrðum við til hans. — Hann kallaði ekki, heldur öskraði: Dragið mig upp! Hjálpið mér í burtu úr þessum hræði- V I K I N □ U R 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.