Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Síða 42
25. mynd. P
Brown-Boveri tveggja þrepa brennsluhverfill.
a = láþrýsti þjappa; b = kælir; c = háþrýsti þjappa; d = háþrýsti brunahol; e = háþrýsti brennslu-
hverfill; f = láþrýsti brunahol.
kerfin sett í gang með ræsimótornum. Eftir um 30 sek.,
má opna fyrir olíuna til h. þ. brennaranna og litlu
seinna fyrir 1. þ. brennarana. Hraði hverflanna vex
nú óðum, því þeir hjálpa sjálfir til þess. Eftir um það
bil 5 mínútur er snúningshraðinn orðinn eðlilegur, gang-
stillirinn er þá settur í samband og handræsitækin tek-
in úr sambandi, vélin er nú tilbúin að taka á móti álagi.
Viðvíkjandi stjórn brennsluhverfilsins er hægt að
Tveggja þrepa brennsluhverfill með hitajafnara.
a = láþrýstiþjappa nr. 1; b = kælir nr. 1; c = láþrýsti
þjappa nr. 2; d = kælir nr. 2; e = háþrýsti þjappa;
f = hitajafnari; g = háþrýsti brunahol; h = háþrýsti
hverfill; i = láþrýsti brunahol; k = láþrýsti hverfill;
1 = rafall; m = ræsimótor; n = tannhjólaútbúnaður.
segja þetta. Skal þá fyrst rætt um eins þreps hverfil.
Hægt er að stilla hitastig við innstreymið til hverfilsins
og halda loftmagninu jöfnu, en til þess er notuð hin
svo kallaða „hitastilling", eða stilla loftmagnið og halda
hitastiginu stöðugu — loftstilling —.
Með hitastillingunni er snúningshraða þjöppunnar
haldið stöðugum, en olíumagnið sem spýtist inn er
temprað og þar með afköstin. Þessi aðferð er einkum
notuð við eins þreps kerfið, er á að hafa stöðugan snún-
ingshraða, aðferðin veldur lélegu notagildi, ef álagið
er misjafnt, því þá verður hita^tigið við innstreymið
lágt, sem eins og áður er sagt, veldur því að notagildi
hitans verður lágt. En aftur á móti er mögulegt með
þessari aðferð að breyta álaginu fljótt, því breytingu
á olíuinnspýtingunni er hægt að gera fljótt.
Loftstilling fer fram á þann hátt að breytt er snún-
ingshraða þjöppunnar og þar með loftmagninu er
streymir í gegnum hana og því næst er olíuinnspýtingin
stillt þannig að hitastig loftsins við innstreymið í
hverfilinn verið eins stöðugt og mögulegt er. Þegar um
einþrepskerfið er að ræða, er aðeins hægt að nota
þessa stilliaðferð þegar hægt er að breyta snúnings-
hraða og álagi samtímis. Með þessari stilliaðferð
verður notagildið hátt, þó álagið sé lítið, en aðferðin
er seinvirkari, þar sem bæði verður að breyta snúnings-
hraða þjöppunnar og hverfilsins.
í kerfum, sem hafa fleiri en eitt þrep, eru kringum-
stæðurnar allt aðrar, þar mun alltaf verða að nota
loftstillingu, því snúningshraða hverfilsins er knýr raf-
alinn verður að halda stöðugum, en stilla hraða þeirrar
hverfilssamstæðu er knýr þjöppuna, eftir álaginu, en
við þetta verður loftmagnið stillt. — Greinarlok næst.
42
V I K I N G U R