Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1952, Page 44
Páfakjör í gamla daga Það var sumarið 1623 og það var óró í mönnum í Róm. Sagt var, að Gregor XV. páfi, sem ríkt hafði í tvö ár aðeins, væri dauðsjúkur og því mætti búast við nýju „interregnum" (millibilsstjórn) og páfakjöri, sem borgarar Rómar kviðu ætíð mjög fyrir — og ekki að ástæðulausu. Óróinn og kvíðinn reyndist líka ekki ástæðulaus. Gregor XV. dó og kardínál-kammerherrann gekk með gullkylfu sína og silfurkylfu sína inn í herbergi páfa. Hann drap á dyr með gullkylfunni og kallaði nafn páfa þrisvar sinnum. Enginn svaraði. Þá gekk hann inn í svefnherbergið, þar sem Gregor lá í rúmi sínu. Með silfurkylfunni snart hann enni páfa þrisvar sinn- um og kallaði nafnið. Og þar eð honum var engu anzað, féll hann á kné og kallaði upp, að páfi væri sannlega andaður. Svo gaf hann einum hinna kardí- nálanna merki, og sá skundaði til Kapitól og lét hringja stóru klukkunni þar og boða íbúum Rómar, að páfi væri sálaður. í þá tíð, er hér um ræðir, var páfi ekki einasta and- legur leiðtogi katólsku kirkjunnar, hann var einnig veraldlegur fursti og var einvaldur í kirkjuríkinu Róm, auk stærri eða smærri landsvæða hér og þar á Ítalíu. Hann var ásamt kónginum í Neapel og Medicifurstan- um í Florenz voldugasti þjóðhöfðingi Ítalíu. í sömu andrá og páfi lézt, tók kardínál-kammerherrann æðstu stjórn ríkisins í sínar hendur, og honum bar nú að sjá um, að allir kardínálarnir kæmu saman á þeim stað, er hinn síðasti páfi hafði andazt, til að kjósa nýjan. En sá tími, sem leið þar til nýr páfi væri kjörinn, nefndist „interregnum", og það var skelfingatími fyrir íbúana. Til að gera interregnum sem styzt, og til þess að kardínálarnir skyldu ekki tefja tímann og nota tækifærið til að auðga sig allt of mikið, stanzaði ríkismaskínan algerlega þetta tímabil. Jafnvel dóm- stólarnir störfuðu ekki, og frá þeirri stundu, er hringur hins sálaða páfa hafði verið sundur brotinn, ríkti í rauninni taumlaust stjórnleysi, þar sem hver og einn slóst upp á eigin spýtur. „Enginn getur sagt, að hann hafi verið í Róm og þekki borgina, hafi hann ekki verið hér við páfakjör“, skrifaði klerkur einn, þegar Gregor XV var kjörinn árið 1621. Þá hafði verið líf í tuskunum. En langtum verra varð það þó eftir tvö ár, þegar kardínálinn Maffeo Barberini var kjörinn páfi undir nafninu Urban VIII. Sérhver páfi hafði leiguher, og hver kardínáli, sem kom til „konklavsins“, páfakjörsins, hafði með sér til öryggis flokk fótgönguliða. Þegar páfi var dauður, notuðu þessir leigusveinar tækifærið til að krefjast þeirra launa, sem þeir oftast áttu inni, og hvort sem þeir nú fengu þau eður ei, tóku þeir til að ræna, þar sem þeir komu því við. Um ástandið í Róm í „konkla- vinu“ árið 1623, skrifar Gigli nokkur: „Enginn dagur líður án fyrirsátra, morða og rána. Menn og konur finnast drepin á ýmsum stöðum, sum höfuðlaus, sumum drekkt í Tíber, og þeir „sbirrar" (lögreglumenn), sem halda eiga uppi ró og reglu, eru oft drepnir sjálfir. Hinir páfalegu fótgönguliðar, sem eru samantínd mannhrök úr öllum heimi, allir með áberandi rándýrseðli, eru allra skelfing, fyrst og fremst kardínálanna, sem ekki geta verið án liðveizlu þeirra, og verða því að ausa í þá peningum, þar næst borgar- anna, sem eru öldungis ofurseldir náð þeirra og miskunn". , Hver aðalsmaður tók sér rétt til að girða hverfi sitt járnkeðju og og láta vopnaða liðsmenn sína gæta þess, því á lögregluna gátu menn ekki treyst. Lögreglu- liðið átti í innbyrðis erjum, venjulega út af því, hvaða hverfi þessi eða hinn yfirmaður hefði rétt til að gæta og ræna, og í páfakjörinu 1623 gekk það svo langt, að lífvörður kardínálans af Savoyen drap lögreglufor- ingjann í Traslevere-hverfinu. Á mörkum Leontiner- hverfisins, þar sem Vatikanið er, voru reist götuvígi til að vernda kardínálana, er þeir færu til að kjósa hinn nýja páfa. Þegar kardínálarnir voru komnir til Vatikansins heilir á húfi, voru þeir fyrst leiddir fyrir lík páfa. Það var klætt drifhvítum líkklæðum og þar utanyfir purpurakápu með útsaumi og gullborðaleggingum. í kistuna var látinn skinnpoki með peningum og perga- mentsstranga, hvar á voru skráð öll góðverk páfa. Stundum var líkið borið niður í kirkju af rómverskum betlurum, stundum af hermönnum, og þá gat komið til heiptarlegra slagsmála milli hermannanna um réttinn til að bera fremstu blysin. Þeim rétti fylgdi gjöf, hundrað scudi. Þegar kista Gregors, eftir hina lögmætu níu daga, var komin í grafhvelfingu, komu kardínálar saman til páfakjörs. Þeir komu saman í stóru her- bergi, sem var lokað og læst og innsiglað á allar hliðar. Á því var aðeins einn gluggi og á einum veggnum var hleragat, þar sem skotið var inn viðurværi til hinna geistlegu höfðingja. Þeir fengu mat tvisvar á dag, en ef svo liðu þrír dagar, að þeir gætu ekki komið sér saman um kjörið, áttu þeir aðeins að fá mat einu sinni á dag. Skyldi nú, mót vonum, enn líða fimm dagar, án þess samkomulag næðist, fengu kardínálarn- ir einungis brauð, vatn og vín sér til lífsviðurværis. 44 V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.