Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1963, Blaðsíða 4
Oddur Jónsson.
„Blíða“ 6,35 tonn. Smíðuð í Dan-
mörku 1907.
Oddur Jónsson, Jónsborg, var
fæddur 17. júlí 1885, að Efriholt-
um undir Eyjafjöllum. Foreldrar:
Jón Sighvatsson og Karolína Odds-
dóttir, er þar bjuggu.
Oddur fór með foreldrum sínum
alfarinn til Vestmannaeyja alda-
mótaárið og hóf sjómennsku á m/b
„Austra“, en 1908 byrjaði Oddur
formennsku á m/b „Blíðu“, er hann
átti hlut í sjálfur og var formaður
með þann bát til ársloka 1910. Þá
hætti hann formennsku og fór al-
farinn til Ameríku.
-x
Ágúst Gíslason.
„Njáll“ 7,50 tonn. Smíðaður í Dan-
mörku 1907.
Ágúst Gíslason, Valhöll, fæddist
15. ágúst 1874 í Hlíðarhúsum í
Vestmannaeyjum. Foreldrar: Gísli
Stefánsson kaupmaður og Soffía
Andrésdóttir. Ágúst ólst upp með
foreldrum sínum og byrjaði ungur
formennsku á opnum bát. 1906
kaupir Ágúst mótorbát ásamt fleiri
mönnum, það var „Geysir" og hafði
formennsku á honum. Veturinn
1907 kaupir hann m/b Njál og er
formaður á honum til 20. febrúar.
En þá sökk báturinn við Eyjar í
suðaustan ofviðri. Mannbjörg varð.
Eftir það hætti Ágúst formennsku,
en rak útgerð til dauðadags. Ágúst
var með beztu fjallamönnum Eyj-
anna, var meðal annars með Hjalta
Jónssyni, þegar fyrst var farið upp
í Eldey. Telja margir að Ágúst hafi
verið fyrstur upp.
Hann lézt 24. desember 1922.
Jón Ingileifsson, Reykholti.
„Eros“ 5,45 tonn. Smíðaður í Dan-
mörku 1907.
Jón Ingileifsson, Reykholti, Vest-
mannaeyjum, fæddist að Skurðbæ
í Meðallandi 23. júní 1883. Foreldr-
ar: Ingileifur Ólafsson og Þórunn
Magnúsdóttir.
20 ára gamall fór Jón til Vest-
mannaeyja og hóf sjóróðra á opnu
skipi. Var hann háseti á því í mörg
ár og síðan formaður. 1907 kaupir
hann m/b „Eros“ og er með hann
einn vetur. Eftir það starfar hann
sem vélamaður á ýmsum bátum til
1912, að hann kaupir m/b „Skuld“
ásamt fleirum og er formaður til
vertíðarloka 1918.
Jón var mesti dugnaðarmaður og
fiskimaður í bezta lagi. Hann var
aflakóngur árið 1914.
Jón var annar sá fyrsti í Vest-
mannaeyjum, sem tók meira fiski-
mannapróf í Stýrimannaskólanum
í Reykjavík.
Hann lézt 18. nóv. 1918.
28
VÍKINGUR