Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1963, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1963, Blaðsíða 20
kveðju, og sannast þar, að það er meiri gleði yfir einum týndum sauð, sem kemur í leitimar en níutíu og níu, sem aldrei ráfuðu frá hjörð- inni. Vissulega kom þetta skeyti óvænt, en engum hefði getað dul- izt, að á Selfossi gerði hver maður sitt ýtrasta til að halda í horfinu. Og ég hygg, að einna mest hafi mætt á vélaliðinu, og þó fyrst og fremst kyndurunum. Það hefur enginn verið öfundisverður af að standa á fýrplássinu þessa nítján sólarhringa og bera ábyrgð á full- um gufuþrýstingi þegar vélamar vom dag og nótt hvíldarlaust píndar til hins ýtrasta. Og hafi það komið fyrir að þrýstingurinn félli stund og stund niður fyrir rauða strikið, hefur það áreiðan- lega verið fyrir annað en það, að slegið hafi verið slöku við. Skipstjóri lét þegar í stað kalla forustuskipið aftur og sendi þakk- arskeyti, sem var eitthvað á þessa leið: „Hugheilar þakbir fyrir vin- gjarnlega orðsendingu og góðar óskir, sem eru endurgoldnar með þakklæti og virðingu fyrir öruggt gæzlustarf yðar og þolinmæði, sem stundum hlýtur að hafa reynt mik- ið á“. Nú var farið að styttast í áfanga- stað. Annað skip tók nú við fomstu þess hluta flotans, sem norður fór, og nú var ekki verið að bera Sel- foss fyrir brjóstinu lengur. Innan stundar eru skipin horfin út í mistrið, án þess að forustuskipið hafi látið svo lítið að gefa upp stefnu eða nokkrar leiðbeiningar um siglingaleiðina. Og auk þess kom það til, að engin sérkort vom til um borð af siglingaleiðinni milli lands og eyja, en hún er full af smáeyjum og skerjum. Enda hafði ekki verið reiknað með þessari leið í upphafi ferðar. Og auk þess hefði að öllu eðlilegu ekki þurft að hafa áhyggjur af öðm en að halda sig á sínum stað í skipalestinni. En nú var ekki um annað að ræða en að notast við yfirlitskort, sem sýndu óglöggt hinar þröngu leiðir milli eyja og skerja. En ekki varð snúið við héðan af. Og ofan á allt bætt- ist, að ekki sá til lands fyrir þoku. Það varð til happs, þótt skamm- góður vermir væri, að snöggvast sá til ferða tundurspillis á norður- leið, og var það ráð tekið, að sigla sömu stefnu og hann. Var nú stuðzt við hið ónákvæma kort, eftir því sem hægt var, dýptarmæli og mið- unarstöð. Gekk það slysalaust, þó að stundum teldu sumir sig heyra hundgá, en aðrir sáu einhverntíma í botn. Morguninn 20. maí var bjartur og landsýn góð. Á var sunnan and- vari og sumarblíða. En nú var svo gengið á eldsneytið, að krafsað var sem vendilegast upp úr homum, rifum og skotum kolaboxanna, unz hver kolaögn hafði verið hreinsuð úr þeim. Þar kom, að búið var að moka síðustu kolamylsnunni á eldana, og enn var spölur eftir. Þá var það tekið til bragðs að safna saman lauslegu timbri og öðru eldfimu til að brenna. Drýgstir munu hafa verið nokkrir bjálkar eða stoðir úr kolaboxunum. Gengu menn í að búta þá niður í eldana. Bjálkar þessir og annað lauslegt dót, sem dregið var að hvaðanæva úr skip- inu, nægði til að fleyta skipinu síð- asta spölinn inn á skipalægið í Loch Ewe. Ekki var beðið boðanna, þegar búið var að varpa akkerum, að panta kol úr landi og voru tekin hundrað og níutíu tonn og hálfu betur þó. Dautt var undir kötlunum og gufuþrýstingur enginn, þegar kolapramminn lagðist að skipshlið- inni. Þannig lauk þessum áfanga ferð- arinnar giftusamlegar en efni stóðu til. — ★ — í Loch Ewe — Ærfirði — biðum við fimm sólarhringa eftir skipa- lest til Reykjavíkur. Forustuskipið í þeirri ferð var gamall kunningi, Lyra frá Bergenska gufuskipafé- laginu, sem var í föstum hálfsmán- aðarlegum ferðum milli Reykjavík- ur og Bergen í Noregi fyrir stríð. í þennan síðasta áfanga ferðarinn- ar var lagt af stað þriðjudag 25. maí í hægum norðanvindi. Tveim dögum síðar, á fimmtu- dag, gerði á okkur norðan strekk- ing með nokkrum sjó. Skipið var sökkhlaðið og þungt í vöfum, enda varð nú hið eina óhapp, sem kalla má því nafni í allri ferðinni, því að skipið fékk á sig sjó, sem tók út vírrúllu, og þilfarið skaddaðist svolítið við það. Til Reykjavíkur komum við að kvöldi laugardags 29. maí, eftir röska fjögurra daga siglingu frá Skotlandi og mátti það teljast hröð ferð eftir það, sem á undan var gengið í næstum tveggja mánaða leiðangri. — ★ — Nú er Selfoss gamli allur. Það fór um hann eins og marga góða gripi aðra, dauða og lifandi, að honum var lógað þegar elli og þreyta færðust yfir hann og hann hafði ekki í fullu tré við yngri skip og betur búin. Því að allt er á hverfanda hveli í heimi hér, og nýtt tekur við af gömlu. Þessi upprifj- un mætti vera því góða og gamla skipi hinzta kveðja og eftirmæli frá mér, þó að kynni okkar yrðu ekki ýkjalöng, aðeins tvær ferðir fram og aftur yfir Atlantshafið. Selfoss var alla sína tíð happaskip. Mér er ókunnugt um, að hann hafi nokkurntíma misst af sér mann eða slasað, svo að orð væri á gerandi. Fyrst man ég eftir honum í strand- siglingum hér við land fyrir 1920. Þá hét hann Willemoes, eftir dönsk- um sjóliðsforingja, garpi miklum, sem meðal annars vann sér frægð þegar Nelson flotaforingi bombard- eraði Kaupmannahöfn árið 1807. Nafngiftin var naumast við hæfi, því að aldrei held ég að Selfoss hafi kempulegur verið. Hann var heldur lítill fyrir skip að sjá, langur og mjósleginn, með yfir- bygginguna eins og lágkúrulega þúfu aftur á rassi. Þó minnist ég þess, að hann var kallaður stórt skip, enda eru allir hlutir afstæðir. Það var haustið 1941 í Ship Har- bour í Novia Scotia, þar sem ver- ið var að hlaða hann timbri. Ekki veit ég hvers konar skip hafa vanið komur sínar þangað, fyrst Selfoss var kallaður stórt skip. En þótt Selfoss væri ekki mikill á veraldarvísu, var hann gæðafleyta hrekklaus og óáreitinn. Það var VÍKINGUR 44

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.