Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1963, Qupperneq 5
Ágúst V. Scheving.
„Haffrú“ 7,29 tonn. Smíðuð í Dan-
mörku 1907.
Ágúst V. Scheving var fæddur
að Vilborgarstöðum í Vestmanna-
eyjum 2. ágúst 1888. Foreldrar:
Vigfús Scheving og Friðrikka Sig-
hvatsdóttir.
Ágúst ólst upp hjá foreldrum sín-
um. Hann fór ungur að stunda sjó
á opnu skipi og byrjaði síðar for
mennsku á m/b „Haffrú“, sem
hann átti hlut í. Það var árið 1908
°g var formaður með hana fram á
vertíð 1912. Þá veiktist hann og
varð að hætta sjómennsku.
Hann lézt 1912.
-K
Guðjón Þorleifsson.
„Kári“ 7,60 tonn. Smíðaður í Dan-
mörku 1907.
Guðjón Þorleifsson, Fagurhóli,
var fæddur á Sólheimum í Mýr-
dal, 6. marz 1881. Foreldrar: Þor-
leifur Jónsson og Steinunn Eyjólfs-
dóttir, er þar bjuggu, og ólst Guð-
jón upp hjá þeim.
20 ára gamall fór Guðjón til Vest-
mannaeyja og hóf sjóróðra á opnu
skipi. Þegar mótorbátarnir komu
fór Guðjón á m/b „Kára“ og var
þar vélamaður í 3 vertíðir, en 1911
byrjar Guðjón formennsku á þeim
bát og hefur formennsku á honum
í 12 vertíðir. Síðar er Guðjón með
ýmsa báta fram á árið 1930. En þá
hætti Guðjón formennsku, og gerð-
ist vélamaður í mörg ár.
Guðjón var hæfileikamaður,
hvort heldur sem formaður eða véla-
maður.
-K
Ástgeir Guðmundsson, Litlabæ.
„Sæborg“ 7,35 tonn. Smíðuð í Vest-
mannaeyjum 1907.
Ástgeir Guðmundsson, Litlabæ,
var fæddur 27. okt. 185?. For-
eldrar: Guðmundur Ögmundsson í
Auraseli í Fljótshlíð og Guðrún
Jónsdóttir.
Ástgeir fór alfarinn til Vest-
mannaeyja 1880, stundaði sjóróðra
á vetrum, og gerðist síðar formað-
ur með opið skip, þar til að mótor-
bátarnir komu. Þá tók Ástgeir við
formennsku á m/b „Sæborgu“, sem
hann smíðaði sjálfur. Var hann for-
maður með hana í tvær vertíðir en
hætti þá formennsku og gaf sig ein-
göngu og bátasmíði. Ástgeir mun
hafa smíðað 10 mótorbáta í Eyj-
um og marga á Stokkseyri. Einnig
smíðaði hann fjölda af opnum bát-
um, sem engin tala er yfir, þeir
voru það margir.
Ástgeir var mikill og góður smið-
ur og var aðalbátasmiðurinn í Vest-
mannaeyjum í fjölda ára.
VlKlNGUB
29