Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Síða 10
Togað í 10 mínútur og þá híft
upp og fengum við 5 poka af ríga-
þorski eftir klukkustundar tog og
var það afbragð. Þetta tog var á
Múlahrauni. Það er kippt austur
fyrir Klofabaujuna afturogkast-
að til vesturs með baujuna á stb.
og farið fyrir hana eins og í
fyrra skiptið og hún látin vera í
V-ið og haldið vestur í Renn-
una í gegnum svökölluð þrengsli.
Það reynir nú á að baujan, sem
togað er undan hafi verið rétt
sett niður, og að það gangi klárt
undan henni í V-ið eins og áður
er getið. Það er 40 mínútna tog
frá Klofanum og vestur í Mið-
rennuna þangað til maður fer að
snúa sæmilegan snúning. Maður
togaði V t N vestur úr þrengsl-
unum og takmarkast slóðin sem
maður hefur til að snúa á frá
Rennuhálsinum rétt opnum og
þar til Hakið á Rennuhálsinum á
stutt eftir að Akrafjalli, má alls
ekki snerta. Ég kem að snúningn-
um aftur, maður snýr af V til N
til stb. alla leið upp á A t S eftir
ágizkun hart þegar ekki sést til
miða, þegar snúningnum er lokið
er híft upp, og gefur þetta tog
oft 3 eða 4 poka eða meira. Það
liggur við að maður eigi það skil-
íð að fá þessa poka, því að fimm-
tán mínútur af vesturtoginu er
hálfgert taugastríð. Það er í áður-
nefndum þrengslum, sem tak-
markast á lengdina í björtu frá
því vestur-öxlin á Sandfellinu
snertir Hólmsberg og þar til það
er allt upp á bergi, en í myrkri
þegar baujan, sem var látin út
vestast í Hvalfellsrennunni er í
NNV, þá er komið vestur úr
þrengslunum. Þetta er erfiðasta
togið í Rennunum í myrkri og þó
alveg sérstaklega ef eitthvað er
að veðri, og alls ekki hægt ef ekki
sést fyrir Akrafjalli til að miða
baujuna við V-ið fyrrnefnda.
Við verðum að haska okkur til
að ná 3ja og síðasta holinu í
Rennunum áður en sólin fer að
lýsa af degi. Það er því kastað til
NNV og við höfum baujuna vest-
ast í Hvalfellsrennunni á stb. og
togað velklárt af henni og beyg-
ir til stb. togfrítt upp á ASA eða
á innri hálsinn á Akrafjalli. —
Þetta er haldið þar til Klofa-
baujan er að bera í Helgafell, eða
SSA, þá er beygt til stb. á hana
og haldið að henni. Þá er beygt
til vesturs og togað undan henni
í margumtalað V-i í 15 mínútur,
þá beygt nokkuð hart til stb. upp
á ASA og híft þar upp. Það gæti
mjög vel verið 3 eða 4 pokar,
kannski meira, kannski minna.
Þessu síðasta togi var kastað í
miðrennu norður í Hvalfellsrennu
og eftir henni á Akraf jall, breidd-
in á þeirri rennu er sem næst
fyrir utan krika til norðurs. —
Norðurendi Hvalfells fast að
Akrafjalli og þar til það er hálft
undir, úr þessari rennu var tog-
að inn nyrstu rennu eða Klofann
yfir Helgafell og híft upp í rennu-
opinu eins og það er kallað milli
Klofa og Þrengsla á þeim snún-
ing má Hakið ekki fara undir
Akrafjall.
Það er ekki ólíklegt að einhver
hugsi á þá leið, ,,hann þykist vera
að mokfiska, en kastar þó aldrei
á sama aftur“, en þið megið trúa
því, af dýrri og endurtekinni
reynslu, ef aflinn er vænn þorsk-
ur og kastað er á sama aftur,
jafnvel þó fengist hafi 10 poka
hol, þá tilheyrir það örfáum
undantekningum að það fáist
meira en 10 fiskar í næsta holi,
og það alveg sérstaklega á Múla-
hrauni og Rennum.
Ég hefi þá lokið fyrstu nótt-
inni á beztu fiskislóðum af
mörgum góðum víðsvegar um
bugtina. Múlahraunið hefur nú
fengið hvíld síðan í gærkvöldi í
ljósaskiptunum. Ég ætla því að
kasta aftur hér út í Rennuopi og
toga út hraunið í aftureldinguna
og kasta því á Klofabaujuna og
toga að henni og fer fyrir innan
hana út Múlahraunið og hefi Há-
múlabaujuna á bakborða, beygi
síðan á milli hnúka til bakborða
fyrir Hámúlaklettinn, þar til
Hakið á Rennuhálsinum kemur
að Akrafjalli. Sveigi þá til bak-
borða og fæ hnúkinn yfir Helga-
fell og toga hann þannig, þar til
komið er vel blint Eyrarfjallið,
beygi þá til bakborða á VNV og
fæ hnúkinn vel suðurhallandi og
dreg þannig vestur á Þyril. Beygi
þar til stjórnborða upp á austur
utan í grynnishól, sem er þar
hnúkinn yfir. — Þetta er nú að
verða tveggja hola lengd og hífi
því upp. Þetta hefur allt verið
togað fiskilega á mjög góðrifiski-
slóð og verið hvílt frá kvöldinu
áður, og fengum við nú 3 poka.
Þetta er búinn að vera góður
sólarhringur hvað veiði og veður
snertir, austan golukaldi og ekki
allt of bjart. Annars er dumb-
ungsveður samfara úrtöku
straums, ákjósanlegustu hentug-
leikar fyrir fisk í bugtinni.
Þeir sögðu gömlu mennirnir að
það þyrfti vissa hentugleika á
fiskinn til þess að hann gæfi sig
til, svo sem fallaskipti, úrtöku
straum og margt fleira og það
hefur allt staðist og það einnig í
troll- og snörrivoð.
Við köstum svo aftur til NNV
og togum með Hornbaujuna, þá
sem við byrjuðum að toga við í
gær, og togum niður í Hvalfells-
krók og áfram niður Grunn-
kanta og endurtökum togin, sem
við drógum í gær, en fiskiríið
varð heldur lélegra en daginn áð-
ur.
Við tökurn því baujuna á horn-
inu áður en við togum inneftir
um eftirmiðdaginn, því nú skal
reyna suður bugtina í fyrramálið
þegar hrauninu lýkur. Við tog-
um út Múlahraun í ljósaskiptun-
um og högum okkur að öllu leyti
eins og nóttina áður, við höfðum
þrjú hol og fiskuðum vel.
Ég sleppi nú morgunholinu út
úr hrauninu. Ég ætlaði suður í
Garðsjó, en það sést hálf illa til
miða til að láta bauju út á línuna,
og kippi ég því suður í Miðnes-
sjó og læt ég þar út bauju, Garð-
skagavitann í innri Esjuhálsinn,
og Keilir um Flánkastaði, sem er
nyrst í Sandgerði. Þarna eru 37
fðm. dýpi, frá þessari bauju dró
ég SV til S í klukkutíma og til
baka aftur, og hífði þar upp,
þarna varð oft vel vart við stór-
ýsu, kola og eina og eina stóra
lúðu, helzt var það að deginum
til mánuðina ágúst-sept. og okt.
326
VÍKINGUR