Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Blaðsíða 20
PALL HALLBJORNSSON: IMÍ ER HANN ALLUR „Og skipin koma og skipin blása og skipin fara sinn veg.“ Svo hljóðar fyrirsögn í smá- grein, er Árni Johnsen, blaða- maður, skrifaði í Morgunblaðið í byrjun janúar þessa árs. Ég skrifa hér upp þessa grein með leyfi höfundar: Hér heilsast fánar framandi þjóða. Hér mæla skipin sér mót, sævarins fákar, sem sæina klufu, og sigruðu úthafsins rót. Og höfnin tekur þeim opnum örmum, og örugg vísar þeim leið. Því skip er gestur á hverri höfn. Þess heimkynni djúpin breið. Svo mælir Tómas Guðmunds- son í einu kvæða sinna úr „Fögru veröld." Ekkert tæki, sem manns- höndin stjórnar er eins lifandi og skipið. Skipið, sem hefur öslað gegn ólgandi liafi, liðið um slétt- an sæ álfabreiða og hlaðist gulli lands okkar. — Þeir, sem ganga um bryggjurnar og horfa á skip- in bundin við kengi, sjá, að þau toga stöðugt í og vilja hreyfingu og þau toga ósjálfrátt í manninn, sem horfir á og koma honum á hreyfingu einnig, hvort sem það er af gleði eða ótta. — Skip njóta styrkra handa sjómanna í hvers- dagsbaráttunni og hver lilutur um borð á sína sögu og sál, því skipið er flókin keðja tryggra hlekkja, stýrishjól, kjölur, akk- eri, kaðlar, kinnungur, stefni, landþernur o.fl. o.fl., sem manns- höndin hefur handleikið. Þessar línur eru hripaðar í til- efni þess, að í kvöld verður bál- för gamals skips íslenzku þjóð- arinnar, skips, sem færði björg í bú og átti giftu heppninnar. — Skipið kemur ekki oftar sem gestur til hafnarinnar eða heim til sín á miðin, það verður bál- Páll Hallbjörnsson. köstur á þrettándagleði og álfa- dans í Keflavík í kvöld, það mun brenna eins og skip víkinganna forðum. Vélbáturinn Skírnir var keypt- ur til Akraness frá Flateyri af Haraldi Böðvarssyni árið 1926. Þá var sett ný vél í fleytuna, sem var 28 tonn að stærð og afla- kóngurinn Eyjólfur Jónsson á Akranesi var ráðinn skipstjóri á bátinn. Aðra vertíðina, sem Eyj- ólfur var með bátinn, setti hann aflamet og fiskaði tvö hundruð skippund. — Skírnir reyndist mesti happabátur og var lengi í eigu Haraldar Böðvarssonar & Co. og var með betri bátum þess fyrirtækis. Skírnir var síðar seld- ur til Grindavíkur og var stöðugt í notkun, þar til að yfir lauk og þurrafúi og fleiri bátakvillar hel- tóku skrokkinn. — En Skírnir er ekki úr sögunni, því að Haraldur Böðvarsson & Co á nýjan Skírni AK—12 úr stáli, 150 tonna skip, sem var byggt 1960 og hefur einnig reynzt happaskip. Tómas heldur áfram í einu ljóða sinna og segir: „Og skipin koma og skipin blása og skipin fara sinn veg.“ Á. Johnsen. A Þegar ég las þessa hlýlegu og vel rituðu grein um m.b. Skírni í Morgunblaðinu þ. 6. janúar, fékk ég löngun til þess að bæta þar við nokkrum eftirmálsorðum um uppruna skipsins og fortíð, sem ég þekki vel, því að ég var um nokkur ár á bátnum. M.b. Skírnir er byggður að nokkru eftir módeli af Samsyni, sem strandaði utanvert við Suð- ureyri í Súgandafirði vorið 1915, og var síðar dreginn til ísafjarð- ar, en að nokkru eftir teikningu Bárðar Tómassonar, skipasmiðs, föður Hjálmars núverandi skipa- skoðunarstjóra. — Bárður smíð- aði og réði gerð bátsins í samráði við Sigurð Hallbjörnsson,eiganda hans. Kjölur skipsins var lagður 1916, og smíði þess fór fram und- ir beru lofti sundamegin á Isa- fjarðartanga, innantil við skipa- dokku verzlunar Árna Jónssonar á ísafirði. Skírnir var sjósettur í janúar 1917 og hásetar á hann skráðirí fyrsta sinn þ. 20. febr. sama ár af þáverandi hreppstjóra, Þórði Þórðarsyni á Suðureyri í Súg- andafirði, en þar var heimahöfn bátsins. Ég var einn af hásetunum, sem var skráður, og var ég í næstu 3 og % ár óslitið á bátnum, ýmist á þorsk-, síld-, hákarla- og smokk- veiðum. Þá tíðkaðist, að þessir VÍKINGUR 336
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.