Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Blaðsíða 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Blaðsíða 54
Allt mögulegt var reynt tíl að hafa upp á þjófnum — en allar tilraunir í þá átt voru alveg ár- angurslausar. Gyðingnum þótti sárt að missa svona mikla pen- inga, eins og vonlegt var, en bar sig þó vel. Hann flutti nú pen- ingaskápinn upp í svefnherberg- ið sitt, bjó vel og vandlega um gluggann á herberginu, settinýja og trausta skrá á hurðina, og læsti dyrunum vandlega áður en hann fór að hátta á kvöldin; þar að auki hafði hann hlaðna skammbyssu við hendina, og gat ekki trúað, að stolið yrði úr pen- ingaskápnum í annað sinn. Svo leið fram að jólum. Verzlun Gyðingsins gekk vel — jafnvel betur en áður — og um nýársleytið var hann búinn að græða svo mikið, að hann gat á ný lagt hundrað dali til hliðar, og ætlaði hann nú endilega að koma því fé á banka eins fljótt og auðið yrði. Hinn fyrsta mánu- dag í janúarmánuði ætlaði hann að leggja af stað til Halifax. — Kvöldið fyrir — um klukkan tíu — taldi hann peninga sína; það voru þrjú hundruð og tíu dalir og nokkur cents. Hann lét þá í pen- ingaveskið eins og hann var van- ur, háttaði síðan og sofnaði. En um morguninn, þegar hann fór á fætur og opnaði skápinn, þá voru þar aðeins tvö hundruð og tíu dalir og nokkur cents — hundrað dalir höfðu horfið um nóttina meðan hann svaf, og það voru einmitt hundrað dalir, sem hann hafði ætlað að leggja í bankann. Það voru tuttugu fimm dala seðl- ar; hann hafði vafið bláu bandi utan um þann bunka, og látið hann í miðhólfið í peningavesk- inu. Gyðingurinn varð nú bæði hryggur og gramur og um leið forviða, og gat ekkert í þessu hvarfi peninganna skilið. Honum fannst það helzt líta svo út, að hann hefði verið beittur göldrum. Dyrnar á herberginu voru enn harðlæstar og lykillinn var í skránni að innan, glugginn hafði ekki verið hreyfður á minnsta hátt, svo sjáanlegt væri; og niðri í húsinu sáust engin merki til þess, að nokkur hefði farið þar inn, hvorki um dyrnar né glugg- ana. Snemma um nóttina hafði fallið töluverður snjór, og hefðu því átt að sjást för heim að hús- inu, ef einhver hefði komið þang- að seinni hluta nætur. En hvergi sást þar móta fyrir neinum för- um. Mönnum þótti þessi atburður næsta kynlegur, og var margt um þetta talað og margar getgátur að því leiddar. Sumir gátu þess til, að Gyðingurinn væri að skrökva þessu upp, eða hefði mis- talið peningana, eða í þriðja lagi, að hann væri ekki með réttu ráði. Aðrir héldu að kerlingin, móðir hans, hefði leikið á hann í hvoru- tveggja skiptið, hefði tekið þessa tvö hundruð dali, og ætlað að geyma þá, þangað til þau þyrfti nauðsynlega á þeim að halda. — Nokkrir þóttust vita til þess, að gömlu konunni væri illa við, að sonur hennar setti peninga á banka, af því hún hefði svo oft heyrt getið um bankahrun. Svo var leynilögregluþjónn fenginn frá Halifax. Sumir sögðu að það hefði verið lítt reyndur maður. En hann gjörði allt, sem hann kunni í þessu efni, og fór að öllu eftir nýjustu reglum list- arinnar. Hann mældi húsið hátt og lágt, skoðaði hverja smugu og hverja fjöl, sem í húsinu var, og komst loks að þeirri niðurstöðu, að þjófurinn hefði komist upp á húsið á sunnudagskvöldið, þegar byrjaði að snjóa, og hefði síðar um nóttina farið ofan um múr- strompinn (sem var mjög víður), og þannig komist inn í svefnher- bergi Gyðingsins, og hefði svo komist frá húsinu aftur áður en hætti að snjóa, og þessvegna hefðu för hans ekki sést um morguninn. Þetta þótti ekki sennileg til- gáta, en samt fannst mönnum það ekki alveg ómögulegt, að slung- inn þjófur og lítill vexti hefði getað komist inn í herbergið með því móti, að fara ofan um reyk- háfinn. — Mönnum hafði ekki áður dottið reykháfurinn í hug. En svo kom gamla spurningin á ný: Hví tók þjófurinn ekki alla peningana, sem í skápnum voru, fyrst hann tók nokkuð á annað borð ? Hví tók hann ekki peninga- veskið með öllu, sem í því var? Og hví var hann að hafa fyrir því að læsa skápnum áður en hann fór? Það þurfti þó ofurlít- inn tíma til þess; og innbrots- þjófar standa víst ekki lengur við en þeir nauðsynlega þurfa, þar sem þeir stela. — En svo leit það út, sem þessi þj ófur ætti ekki sinn líka í víðri veröld. Hann hlaut að heyra til alveg spánýj- um þjófaskóla — var kænni,hug- rakkari, kurteisari (jafnvel ofur- lítið mannúðlegri) en þjófar al- mennt gerast. Hann vildi auð- sjáanlega ekki gera neinum bilt við, tók ekki aleigu manns, skemmdi ekkert, og gekk frá öll- um hirzlum eins og þær voru áð- ur — fór bara burtu með tæpan þriðjung af öllum peningunum. Undarlegur glæpamaður þetta! — Alveg einstakur þjófur! Þannig hugsuðu menn þar í þorpinu. En allir voru jafnnær eftir sem áður. Þjófurinn fannst hvergi, og enginn sá ráð til að finna hann. Lögregluþ j ónninn fór aftur heim til Halifax. En Gyðingurinn hét að gefa þeim manni hundrað dali, sem hefði upp á þjófnum. En nú kemur Hallur til sög- unnar. Hann fór líka að hugsa um þetta og velta því fyrir sér á ýmsa vegu. Honum fannst þetta vera líkast flókinni gátu — líkast reikningsdæmi — líkast leik á taflborði — og hann gat ekki í öðru skilið, en að hægt væri að ráða fram úr þessu með ofurlít- illi umhugsun. Og allt í einu þótt- ist hann sjá, hvernig í öllu lægi — hvernig peningarnir hefðu hoi’fið og hver væri þjófurinn. Hann gat svo um það við hús- bónda sinn, að hann héldi að hann gæti fundið þjófinn og jafnvel þjófinn líka. Húsbóndi Halls fór nú á fund Gyðingsins og sagði honum, að hann þekkti mann, sem gæti bent 370 VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.