Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Qupperneq 18
Fyrir nokkrum árum var það áhugamál mikilsmetins borgara hér, sem dó 1918, að stofn-
að væri hér sjómannablað, sem kæmi út einu sinni í viku og ræddi mál fiskimanna og far-
manna. Maður þessi var Þorsteinn Júl. Sveinsson— einn áhugasamasti maður um málefni
sjómannastéttarinnar, sem hér hefur verið.
Tímaritið „Ægir“ hefur birt ýmsan fróðleik, sem að gagni hefur komið og að gagni getur
orðið, en hann er aðeins mánaðarrit. — Margt getur borið við á heilum mánuði, sem taka
verður fyrir í skyndi og ræða. Nú hafa nokkrir sjómenn ráðist í það að stofna vikublað, sem
áformað er að ræði áhugamál sjómanna hver helst sem eru, og gefst þeim hér kostur á að
birta skoðanir sínar á ýmsum þeim málum, sem eiga örðuga inngöngu í önnur blöð höfuð-
staðarins og ætti það að gleðja hina mörgu vini Þorsteins heitins Sveinssonar að hugmynd
hans er nú loks komin í framkvæmd.
Blaðið verður sent um borð í öll íslenzk skip, hvort heldur þau stunda fiskveiðar eða flutn-
inga hér við land, þar með taldir allir vélbátar er þilfar hafa. Ennfremur öllum deildum Fiski-
félags Islands, veitingastöðum og gististöðum, sem búist er við, að sjómenn komi helst á til
þess að sem flestum gefist kostur á að sjá það, kynnast því og gerast kaupendur þess og styrkt-
armenn. Einnig verður blaðið sent öllum sjávarútvegsmönnum, bæði hér í höfuðstaðnum og
út um land, svo og embættismönnum og öðrum sem vitanlegt er um að hafa áhuga á íslenzkum
fiskveiðum og farmennsku.
Reykjavík, föstudag, 19. marz 1926.
tJtgefendur.
stjórninni, t. d. hentugum bú-
stöðum, tryggum verkefnum og
öðru því, er laðar hugann til
starfs og dáða. Hann var umfram
allt mannvinur. Síðasta árið, sem
hann lifði, var hann formaður
Öldufélagsins í Reykjavík.
Yfirmenn hans í danska sjó-
liðinu báru honum afbragðs vitn-
isburð fyrir dugnað og dreng-
skap. — Þegar hann gekk úr
þjónustu varðskipanna, var hann
sæmdur heiðursmerki Danne-
brogs-orðunnar.
Þorsteinn sál. var mesta prúð-
menni í framgöngu og ágætur
heimilisfaðir og var heimili
þeirra hjóna fyrirmynd.
Hann var leiðsögumaður á
varðs'kipunum þau árin, sem sam-
Að oían sjáuui við ávarpsoró útnefanda fyrsta ísleuzka sjómannablaðsins. Er Þorsteins
])ar minnst seni upphafsmanns uð verðandi sjómannablaói. Ritstjóri þessa blaðs var
Jónas Jóna68on, cand phil.
Hús Þorsteins Sveinssonar, Garðhús, í Reykjavík.
384
VÍKINGUR