Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Blaðsíða 36
Smíðum
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands gengst fyrir stofnun á félagi til að
smíða og reka fullkominn verksmiðjutogara
VERKSMIÐJUTOGARA!
Fyrir máixuði síðan kaus stjórn F. F. S. í.
nefnd til at athuga möguleika á að byggja og
gera út stórt nýtízku verksmiðjuskip af skuttog-
ara gerð.
Nefndinni var gert að skyldu að hraða athugun-
um sínum og skila áliti fyrir 15. þ. m., og þetta
hefur nefndinni nú tekist að gera. 1 nefndinni,
sem starfar áfram, eiga eftirtaldir menn sæti:
Henry Halfdansson, skrifstofustjóri, Sigurður
Guðjónsson skipstjóri, Guðmundur Pétursson jrfir-
vélstjóri, allir í stjórn F. F. S. 1., og ennfremur
Ingólfur Stefánsson skipstjóri, sem er fram-
kvæmdastjóri sambandsins.
Þess má geta í þessu sambandi, að Henry Hálf-
dansson, sem er formaður nefndarinnar, var einn-
ig formaður þeirrar nefndar, sem þing F. F. S. I.
kaus á sínum tíma fyrir 23 árum til að semja við
forráðamenn þingflokkanna um að verja að
minnsta kosti 300 milljónum af erlendri innstæðu
stríðsáranna til smíði á nýjum togurum — Ný-
sköpunarinnar svokölluðu, sem bjargaði því að
ekki fór öll sú innstæða til ónýtis, heldur skóp
mikinn framgang um nokkurra ára bil.
Það er skoðun stjórnar F. F. S. í., og flestra
sjómanna, að útgerð nýtízku verksmiðju fiski-
skipa á fjarlæg mið sé nú það bezta ráð til að
afla þjóðinni þess gjaldeyris, sem hana nú sár-
lega vantar. Með þetta í huga samþykkti hún ein-
róma eftirfarandi álit nefndarinnar og heitir á
allan almenning að fylkja sér um þessar fram-
kvæmdir.
Bygging fullkomins verksmiðju-skuttogara
Undirritaðir fulltrúar, sem kjörnir voru af sam-
tökum sjómanna Farmanna- og fiskimannasam-
bandi Islands til að athuga möguleika á að láta
byggja og gera út til fiskveiða á fjarlægum mið-
um fullkominn nýtízku verksmiðju-skuttogara,
352
hefur að vel athuguðu máli komist að eftirfarandi
niðurstöðu:
1. Að rekstur á ca 2.500 smálesta (brúttó) verk-
smiðju skuttogara, búnum hagkvæmum nýtízku
vinnsluvélum, sé sýnilega hagkvæmur og fjárhags-
lega öruggur miðað við núgildandi verðlag og afla,
sem telja verður ’algjört lágmark á slíkt skip,
reilmað með 300 úthaldsdögum. Er þá reiknað
með öllum þekktum og venjulegum útgjaldaliðum,
þar með afborgunum af stofnkostnaði ásamt vöxt-
um og eðlilegum fyrningum. Einnig er reiknað með
nægilegu orlofi og flugfari fyrir áhöfnina fram
og aftur til hinna fjarlægustu veiðisvæða í öðrum
heimsálfum, þegar svo ber undir.
2. Að slík útgerð sé þjóðfélagslegt hagsmuna-
mál, þar sem erlendur kostnaður, vegna kaupverðs
á skipi, eldsneytiseyðslu og veiðarfæra, sé hverf-
andi miðað við gj aldeyrisöflun skipsns, eða mest
fyrsta árið 20—25%. Því sé það höfuðnauðsyn að
hefja framkvæmdir sem allra fyrst og teljum við
að bezta og fljótvirkasta ráðið í því sambandi, að
sjómannasamtökin í landinu beiti sér sjálf fyrir
málinu með almennri hlutafjársöfnun í þessu
skyni, og þá reiknað með að hlutaðeigandi fái að
njóta sömu kjara um ríkisábyrgð á allt að 90%
byggingakostnaðar, sem aðrir útgerðarmenn hafa
notið.
3. Að þegar verði leitað tilboða um smíði á skipi,
þar sem vel verði séð fyrir hinum fullkomnasta út-
búnaði og tækjum eins og hann hefur beztur reynzt
í íslenzkum og erlendum skipum og verksmiðjum.
Samkvæmt fyrirfram gerðri skrá og lýsingu.
Greinargerð.
Það, er nú orðið lýðum ljóst, að við Islendingar,
þjóðin, sem fyrir skömmu var hin 11. í röðinni af
fiskiveiðiþjóðum og lagði fram 2,5% af heims-
aflanum og skóp landsmönnum þeim kjör að vera
VÍKINGUR