Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Page 51
yíii' þau lítt, eða óbætanlegu
skerrundarverk sem unnin hafa
verið á fiskistofnunum og lífsskil-
yi'ðum þeirra innan íslenzkrar
landhelgi, af okkur sjálfum, eftir
hinn stóra sigur í „Þorskastríð-
niu“, sem öll þjóðin stóð einhuga
um sem einn maður. Og þessi
stóru mistök hafa gerst, mest
fyrir áeggjan og tilstilli framan-
taldra aðila, sem hafa sjálfsagt
ekki gert sér nægjanlega grein
fyrir því í upphafi, hvað um var
að ræða, en vita það nú, svo þá
er mál að snúa við, og bjarga því
sem bjargað verður.
Það þarf engan að furða, þótt
við roðnum niður í tær, af skömm,
þegar minnst er á landhelgina,
eins og Eggert Jónsson hagfræð-
ingur sagði réttilega í útvarpið
í sumar.
„En hvað er þá til varnar vor-
um sóma“? Það kemur sjálfsagt
í ljós á hinu háa Alþingi er nú
situr. En líklegt þætti mér það,
að þjóðin biði þess úrskurðar
með engu minni eftirvæntingu,
en þess sem gert verður í efna-
hagsmálum hennar. Því það sem
gert verður í landhelgismálinu,
sem ég reikna með, að verði í
grundvallaratriðum stórfelld
friðun, verður stór aðgerð í fram-
tíðar-efnahagsmálum þjóðarinn-
ar.
Reynist svo, sem ég trúi varla,
eftir þær ráðstafanir sem gerðar
verða í þessu máli, að tukthúsin
rúmi ekki þá, sem telja sig ekki
geta séð fyrir sér og sínum, nema
með því eina móti, að fara ráns-
hendi um friðaða reiti, þá er að
byggja fleiri tukthús. Viö getum
ekki lifaS við þa'ö ástand sem er
í þessum málum, eöa endurtekro-
ingu á því.
Strangheiðarlegt fólk, lög-
brjótarnir í þessu máli ekki und-
anteknir, eins og þjóðin saman-
stendur af, og er hennar styrkur,
því er skömmin oft sultinum sár-
ari.
„Með lögum skal land byggja,
en með ólögum eyða“.
Látrum 30. okt.. 1968.
Þórður Jónsson.
ooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
S
>f o m u n n ci t? œ n
L
Lag: Drottinn, sem veittir frægð og heill til forna.
Biðjum þig Guð um borð með okkur vera.
Bústað þér inni í hjörtum okkar gera.
Stjórna þú sjálfur huga, hönd og munni.
Heyr mína bæn frá innsta hjartans grunni.
Bænir frá jörðu hátt til himins leita.
Heyrir og svarar náð þín ástarheita.
Sjómannastétt þú sjálfur blessað hefur.
Sjómönnum allt af nægtum þínum gefur.
Kærleika þinn í kraftaverkum sjáum.
Komast þér nær af öllu hjarta þráum.
Leið okkur Guð á lífsins veginn bjarta.
Líf þitt og elsku kveik í hverju hjarta.
Við biðjum þig, faðir, bæt úr okkar þörfum.
Blessun þín hvíli yfir okkar störfum.
í sonar þíns Jesú nafni nú vér biðjum.
Neyð vora bæt og leys úr syndaviðjum.
Fyll okkar hug og bát með björg og brauði.
Blessun og friði, lífi og kærleiksauði.
Guðríður Þóroddsdóttir,
Vestmannaeyjum.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO'
Saltfiskverkun í Hafnarfirði fyrr á tímuui. — Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson.
VÍKINGUR
367
ooooooooooooo