Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 14
Menntun sjómanna í Vestmannaetfjum Skólanum var slitið laugardag- inn 15. maí s.l. lauk þar með 7. starfsári skólans. I vetur voru 27 nemendur í skólanum, auk þess var á vegum skólans matsveina- námskeið; 7 nemendur luku prófi matsveina. Fiskimannaprófi I. stigs luku 13 nemendur, fiski- mannaprófi II. stigs luku 14 nemendur. Samtals hafa því 34 sjómenn fengið yfirmannsrétt- indi á fiskiskipaflotann í vetur frá Stýrimannaskólanum í Vest- mannaevjum. Við þessi skólaslit hefur skól- inn gefið út 130 stýrimanns- skírteini til 110 einstaklinga. Á heimavist skólans voru í vet- ur 6 nemendur. Á skólaárinu var farið í leikhús- og kvnningarferð til Ttevkjavíkur. Sáu nemendur leikritin „Þið munið hann Jör- und“ og „Kristnihald" Laxness. Þá heimsóttu nemendur veiða- færacrerð Hamniðjunnar hf. For- stjóri fvrirtækisins. Hannes Páls- son kvnnti oer sýndi nemendum fvrirtækið. Þáðu nemendur að lokum góðar veitinerar. Þá heim- sóttu nemendur DAS, og skoðuðu Dvalarheimilið undir leiðsöem forstjórans og formanns Sjó- mannadagsráðs, Péturs Sigurðs- sonar alþm. Tóku þessir menn svo og stjórn heimilisins og Magnús Guðmundsson bryti, höfðinglega á móti nemendum. Á skólaárinu var stofnað mál- fundafélag nemenda og hlaut nafnið Breiðablik. I 1. gr. félags- ins var markmið félagsins sett fram: 1. Að efla og styrkja allt, sem varðar stöðu og starf sjó- mannsins. 2. Að æfa menn í framsögn og fundarstörfum. Kynning bók- mennta og annað menningar- starf. Málfundafélagið hélt nokkra fundi og fékk fyrirlesara. Var m. a. tekið til umræðu menntun sjómanna, mengun Vestmanna- eyjahafnar og fiskmat og með- ferð fisks. Formaður Málfunda- félagsins var Guðmundur Vest- mann Ottósson, nemandi í II. bekk. Góð tilbreytni og má segja við- bót við námsskrána var, að í byrjun marzmánaðar fóru nem- endur hvors bekkjar einn dag út með hafrannsóknarskipinu Haf- þóri og æfðu notkun fiskileitar- og siglingatækja, svo og köstun nótar, en kastað var flotlínu ut- an um tilbúið endurvarp. Einnig voru í túrnum könnuð mörg grunn og bleyður hér við Eyjar, eins og Rófuboði, Hvítbjarnar- boði, Bessi o. fl. 1 ferðum þess- um nutu nemendur sérstakrar al- úðar Gunnars heitins Pálssonar skipstjóra og áhafnar hans á Hafþóri og leiðbeindi Gunnar af mikilli lipurð og þekkingu. Skólastjóri þakkar forstj. Haf- rannsóknarstofnunarinnar, Jóni Jónssyni fiskifræðingi, þann vel- vilja að lána skipin til þessara æfinga. Sem kunnugt er hafa nemend- ur Stýrimannaskólans hér feng- ið ágætis kennsluferð með Lóðs- inum, en hafrannsóknarskipin hafa það fram yfir Lóðsinn, að hægt er að æfa meðferð veiðar- færa og fiskileitartækja um borð. Nemendur Stýrimannaskólans í Reykjavík fóru einnig út með skipum hafrannsóknarstofnunar- innar. Verður ekki of rík á- herzla lögð á hve ferðir þessar eru gagnlegar og mikilsverðar nemendum. Er hér kominn á- gætur vísir að skólaskipum. Guðni Þorsteinsson fiskifræð- ingur kom á vegum Hafrann- sóknarstofnunarinnar stuttu fyr- ir páska og hélt mjög fróðlega fyrirlestra um botnvörpur og veiðafæragerð. Við skólaslitin bárust skólan- um góðar gjafir. Bræðurnir Bjöm og Tryggvi Guðmundssyn- ir gáfu 15.000 kr. í minninear- sjóð foreldra sinna, hjónin í Mið- bæ Áslaugu Eyjólfsdóttur og Guðmund Eyjólfsson. Þeir bræð- ur stofnuðu sjóð þennan með 50.000 kr. gjöf ár- ið 1968, en hafa síðan á hverju ári bætt í sjóðinn, auk þess sem fleiri að- ilar hafa gefið til sjóðsins. Er hann nú með vöxtum nálægt 100.000 kr. og mun á næst- unni verða gerð skipulagsskrá Kennt að bæta. Kennt að splæsa. 302 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.