Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 25
Samkvæmt gömlum enskum sið
verður gólfleikari, sem er svo hepp-
inn, að hitta holuna í fyrsta höggi,
að bjóða meðleikurum sínum í mið-
dag með kampavíni. Gegn slíkri
óvæntri heppni geta menn tryggt
sig, — og það gera yfirleitt allir
Skotar.
Norski presturinn Anders Hovden
sagði eitt sinn frá því að eldri
starfsbróðir hans hefði fengið veit-
ingu fyrir góðu brauði austanfjalls.
í kveðjusamsæti lýsti gamli prest-
urinn hvernig Andinn hefði kom-
ið sér til þess að sækja um brauðið.
Varð Hovden þá að orði:
„Það þarf ekki að því að spyrja.
Alltaf skal Andinn finna feitustu
embættin.“
Það var á dögum gullæðisins í
Klondyke, að maður nokkur stóð
fyrir utan eina knæpuna harmþung-
in á svip. „Æ, bara að ég gæti nú
fengið konuna mína aftur“. Hvað
gerðirðu við konuna þína? Ég skipti
á henni og tveimur flöskum af
visky. Og nú þráir þú hana?
„Nei, alls ekki, — ég er orðinn
þyrstur aftur.
„Þið verðið að koma strax,“ kall-
aði æst kvenmannsrödd í símann.
„Það er maður að reyna að klifra
upp að glugganum hjá mér.“
„Þá verðið þér að hringja í lög-
regluna, þetta er hjá slökkviliðinu.“
„Já, ég veit það hrópaði röddin.
En lögreglan hefur ekki nógu há-
an stiga.“
Okkur vantar hærri stiga!
Deildarhjúkrunarkonan innprent-
aði nýliðanum, að hún mætti ekki
undir neinum kringumstæðum taka
einn lækni fram yfir annan. Hálf-
tíma síðar heyrði hún nemann svara
í símann og segja:
— Ja, það eru sex læknar hér
á deildinni, en því miður get ég
ekki mælt með neinum þeirra.
Kaþólskur prestur uppgötvaði,
sér til skelfingar, að lítill drengur
sat við fætur hans í skriftastólnum.
— Ertu búinn að sitja þarna
allan tímann og hlusta?
— Nei, ég heyrði bara, að lög-
reglustjórinn hefur þegið mútur,
læknirinn drap man í ógáti og að
sjómaður svaf hjá abbadísinni.
— Jæja, ekki annað. Guði sé lof!
VlKINGUR
313