Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 24
Frúin tók óblítt á móti manni sínum, sem kom heim reikull í spori kl. 7 um morguninn. „Hvernig ferðu nú að útskýra þetta fyrir mér“, hreytti hún út úr sér. „Það er ósköp auðvelt, vina mín“, svaraði hann blíðlega. „Sjáðu nú til. Ég hringdi til þín í gærkveldi og sagði þér, að ég þyrfti að vinna eftirvinnu, hvað ég gerði, á eftir ók ég einkaritar- anum mínum heim. Hún bauð mér inn upp á drykk. Svo fór hún að láta vel að mér og svo urðum við ásátt um, að ég svæfi hjá henni um nóttina". „Nei, þú skalt ekki vera að bjóða mér upp á svona billega lýgi“, hróp- aði frúin bálreið. „Ég veit, að þú hefir verið úti með kunningjum þínum aftur, að spila póker“. „Geturðu útskýrt fyrir mér, hvernig stendur á varalitnum á flibbanum þínum?“ spurði eigin- konan íbyggin á svip. „Nei, það get ég alls ekki. Ég man svo vel að ég fór úr skyrtunni." x'C'Vs Fyrir snjalla málsvörn og hald- góða fjarvistarsönnun, tókst lög- fræðingi nokkrum í Chicago að fá skjólstæðing sinn sýknaðan. „Þetta kláruðuð þér snildarvel Mr. Jones“, sagði sakborningurinn á leiðinni útúr réttarsalnum. „En það er eitt vandasamt at- riði eftir“. Nú hvað er það?“, spurði lögfræðingurinn. „Jú það er að fara heim til kon- unnar minnar og sannfæra hana um, að ég var upptekinn við að fremja innbrotið, en ekki í heim- sókn hjá þessari ljóshærðu." Nokkrir stafir höfðu verið málaðir yfir kirkjuhliðið. Þar stóð: Þetta er hlið himnanna. En meðan stafimir voru að þorna var hengdur upp bréf- miði með þessum orðum: Gerið svo vel að fara hina leiðina. Amerísk kona, sem um margra ára skeið samdi matreiðslubækur, sem seldust í háum upplögum, svo að hún varð vellauðug, átti viðtal við blaðamenn á 75 ára afmælinu. Hún upplýsti þá um að sjálf væri hún óttalegur klaufi í matreiðslu. En hinsvegar hefði hún haft auð- ugt hugmyndaflug við að skrifa upp matarrétti, en aldrei reynt að búa þá til! Hvernig stendur á því, að þú ert að leita þér að íbúð, maður sem á þrjú hús? ,Jú, eftir að ég hækkaði húsaleig- una, sá ég fram á að ég hafði ekki efni á að búa hjá sjálfum mér leng- ur. Þingmaður nokkur, utan af landi veiktist og varð að fara heim. Eftir nokkurn tíma fékk hann skeyti frá þinginu: „Vinir þínir og samstarfsmenn á þingi óska þér góðs bata. Sam- þykkt með 31 atkvæði gegn 29!“ Farþegi, sem var sjóhræddur, við skipstjórann. „Þér vitið auðvitað hvar öll neð- ansjávar skerin eru?“ „Nei, alls ekki“, svaraði skip- stjórinn þurrlega. „Ég veit hvar skerin eru ekki.“ Tveir frambjóðendur ræddust við rétt fyrir þingkosningarnar í vor. „Hvað var það eiginlega, sem þú talaðir um í framboðsræðunni ?“ „O, það var svo sem ekki neitt“. „Nei, auðvitað ekki, — en hvernig komstu orðum að því?“ 312 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.