Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 44
seglin uppi, hafði ég lítið svig- rúm fyrir þá. Ég varð að halda stefnunni og vona að þeir vikju. En þeir héldu stefnunni og við smugum hjá þeim, svo nærri, að ég sá allar útlínur bátsins. Þetta var frekar stór bátur með hátt stefni og yfirbyggingin hallaði aftur og ég sá móta fyrir manninum, sem starði á okkur í myrkrinu. Svo skall ljósgeisl- inn frá þeim beint á okkur og ég blindaðist augnablik. Það var hrópað á okkur, en það kafnaði í hávaðanum frá mótorum, sem ég hafði sett á fulla ferð aftur. Um leið og við skriðum út um innsiglinguna komum við í hlé af klettunum og seglin slógust fram og aftur og báturinn hjó í öld- urnar. En svo vorum við á fríum sjó, seglin fylltust og Sætröllið lagðist djúpt, svo að sælöðrið sleikti stjómklefann þegar það þaut afturmeð. „Hann kúvendir" hrópaði Mike. Eg leit um öxl. Það hillir undir hvíta toppljósið og bæði siglingaljósin græn og rauð voru sjáanleg þar sem þau báru í línur landsins, að baki okkur. Mike hentist aftureftir og dró inn stórskautið fyrir mig, en ég setti stefnuna í suðlæga átt til hafs. öll Ijós voru slökkt, einnig á áttavitanum, svo að ég sigldi einungis eftir vindáttinni. Eg leit stöðugt um öxl og hélt auga með bátnum. Það var aug- ljóst, að hann elti okkur, því að bæði siglingaljósin voru ávallt sjáanleg, eins og tvö augu. Leitarljósið sveiflaðist á kröpp- um bylgjunum þegar það skar í gegnum næturmyrkrið. „Ef við hefðum komið okkur af stað hálftíma fyrr,“ tautaði Patch og starði aftur eftir. „Og ef við hefðum verið fimm mínút- um seinni, hefðuð þér verið tek- inn fastur", hreykti Mike í hann. Rödd hans var óvenju hvöss og ég fann að honum var svipað innanbrjóst og mér. „Ég ætla að ná inn akkerinu". Hann hvarf írameftir og Patch á eftir hon- um. Það var kuldi í stýrishúsinu núna, þegar við vorum undir seglum, en ég varð þess varla var. Ég sat og braut heilann um skipið, sem elti okkur. Það hafði nálgast, og leitarljós þess, sem náði til okkar yfir úfinn sjóinn, lýstu upp seglin hjá okkur með draugalegum bjarma. Þau hvörfl- uðu ekki lengur og ég vissi að þeir hefðu fundið okkur, og við að regnúðinn stytti upp varð eftirförin auðveldari. Mike hringaði kaðalinn upp frammá og Patch batt akkerið fast. Þeir komu báðir aftureftir til mín. „John, ættum við ekki að láta reka?“ „Þeir hafa ekki gefið okkur neitt merki um það“, greip Patch fram í hvassri og ákafri röddu. „Þið þurfið ekki að aðhafast neitt fyrr en þeir hafa sent ykk- ur merki um það“. Patch var nú kominn á sjó- inn aftur; maður, sem ekki var líklegur til að gefast upp í sínu umhverfi. Hann kom inn í stýris- húsið, einbeittur á svip. Hann hafði öðlast styrk sinn á ný. „Ætlið þið að halda áfram, eða ekki?“ Þetta var ekki beint krafa og vissulega ekki nein hótun, en hann sagði það á þann hátt, að ég gat alls ekki gert mér grein fyrir hvað hann myndi taka til bragðs, ef ég neitaði. Mike sneri sér að honum og sagði æstur: „Ef við ætlum okkur að leggja til drifs, þá gerum við það“. „Ég spurði Sands“, sagði Patch og rödd hans skalf í myrkrinu. „John og ég eigum bátinn saman“, svaraði Mike. „Við höf- um unnið, gert áætlanir og þræl- að fyrir því, að eignast okkar eigin björgunarútbúnað, — og við ætlum okkur ekki, að hætta öllu til þess eins, að bjarga yður úr erfiðleikum, sem þér sjálfir hafið komið yður í“. „Þú neyðist til að slá undan“, sagði hann við mig. „Báturinn dregur okkur uppi og ef lög- reglan finnur Patch um borð, verður fjári erfitt að sanna, að við séum ekki að reyna að smygla honum úr landi, með alla þessa peninga á lúkarsborðinu...“ Hann beygði sig áfram og greip mig í axlirnar: „Heyrirðu hvað ég segi, John?“ við verðum að leggja til, áður en lögreglan leggur upp að okkur“. Þetta þarf ekki endilega að vera lögreglan“, svaraði ég. Ég hafði verið að velta þessu fyrir mér allan tímann, meðan þeir voru frammá. „Lögreglan hefði notað leitarbifreið. Þeir hefðu ekki komið sjóleiðina“. „Ef þetta er ekki lögreglan, hverjir í helv... eru þetta þá?“ Ég leit um öxl og furðaði mig yfir, ef ímundunaraflið hefði villt um fyrir mér. Þarna var báturinn og hann elti okkur. Hvíta toppljósið sveiflaðist ákaf- lega og lýsti upp hluta af mastr- inu og stýrishúsinu. „Hann veltur mikið“, tautaði ég. „Hvað meinarðu með því?“ Ég sneri mér að honum. „Sáztu hann vel“, Mike, „þegar við fór- um út?“ „Já, hvers vegna það?“ „Hverskonar bátur var það“, „Gaztu séð það?“ „Ég gæti trúað að það sé gamall Pankhurst“. Mike hafði verið svo lengi í sjóhernum, að hann hafði ótrú- lega góða þekkingu á mótorskip- um. fí „Ertu viss um það?“ „Ég held það, já ég er viss um það“. „Ég bað hann að fara niður og slá upp á nafninu Griselda í Lloyds registerinu. „Ef þú finnur nafnið þar og lýsingin kemur heim, væri gott að fá að vita um hraðann. Hann hikaði, leit snögglega á mig og Patch, en hvarf síðan niður. „Og ef það er Griselda?“ spurði Patch. „Þá var hún leigð út í gær- morgun, af einhverjum, sem staddur var í réttinum". framh. í næsta blaSi. VlKINGUR 332

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.