Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Blaðsíða 43
bros, alvörublandið og einkenn- andi fyrir hann. „Sætröllið og- ég höldum sam- an, þar er ekki um neitt tvennt að velja“. Hann leit upp á masturstopp- inn. Veifan hékk uppi og sýndi að áttin var vestlæg. „Seglin ættu að nægja“. Hann áleit að skútan næði meiri hraða með seglunum, þar sem vélin var ætluð drátt- arorku, en ekki hraða. Patch sat niðri. Hann hafði hallað sér aftur með glasið í hendinni og reykti vindling. Mat- urinn stóð óhreyfður á borðinu. Hann sat þarna með hálflokuð augu og hangandi höfuð og leit ekki upp þegar við komum niður. „Við förum af stað“, sagði ég. Hann hreyfði sig ekki. „Láttu hann eiga sig“, sagði Mike. „Við klárum þetta einir. Ég fer og ræsi vélina. Hann hafði farið í peysu. Patch, hafði heyrt hvað hann sagði og sneri höfðinu hægt í áttina til okkar. „Hvert ætlið þið? Til Sout- hamton?“ Röddin var hljómlaus. „Nei“, svaraði ég. „Við ætlum að fara með yður út til Minqui- ers“. Hann starði á mig. „Minqui- ers?“ sagði hann og endurtók orðið án þess að vínmengaður heilinn virtist skynja það. „Ætlið þið að fara með mig út til „Minquiers?“ Á einu augnabliki var hann þotinn á fætur. Vínglasið lá mölbrotið á gólfinu og liann rakst á borðið. „Meinið þið þetta?“ sagði hann og reikaði yfir til mín og greip í mig báðum höndum. „Segið þið þetta ekki aðeins til að friða mig? „Meinið þið það, gerið þið það? „Já, ég meina það“, sagði ég. Það var eins og ég væri að sann- færa krakka. „Drottinn minn!“ hrópaði hann. Drottinn minn, ég hélt, að ég væri búinn að vera. Hann rak allt í einu upp rosa- hlátur, hristi mig og greip í hendina á Mike. „Ég hélt að ég væri orðinn VlKINGUR vitstola. Óvissan; Tíu ár, fá svo aftur skip til að stjórna og svo.... „Ykkur grunar ekki hvað það gildir, þegar þið tapið trúnni á ykkur sjálfa“. Hann strauk hendinni yfir hárið; augnaráðið var orðið festulegt og ákaft. Ég hafði aldrei séð hann slíkan fyrr. Hann sneri sér við, greip stór- ann búnka af peningaseðlum og stakk í hendi mér. „Sjáið hér, takið þá! Ég vil ekki eiga þá, þeir eru ykkar núna“. Hann var ekki drukkinn leng- ur, aðeins ruglaður. Taugaálagið hafði verið fullmikið. Ég lagði seðlana frá mér: „Það getum við rætt um síðar. Treyst- ið þér yður til að sigla inn í Minquiers án sjókorts?“ Hann virtist vera orðinn alveg klár í kollinum og hann varð hugsi. Það var sjómaSur, sem hug- leiddi ýmis atriði, sem varðaði siglingafræðina. „Eigið þér við frá Les Sau- vages til Mary Deare?“ „Já“. Hann kinkaði rólegur kolli, hrukkaði augabrúnirnar, og í huganum leitaðist hann við, að finna siglingamið. „Jú, jú, ég er viss um að muna það. Það er aðeins um sjávar- föllin að ræða. Eigið þið sjó- mannaalmanak?“ Það áttum við og þetta var í lagi. Ég átti kort yfir Kanalinn, en það eina, sem okkur vantaði, var kort yfir Minquiers í stórum mælikvarða. Við vindum upp seglin, áður en við drögum upp akkerið, sagði ég. Ég fann úlpuna mína, fór í hana og við gengum allir upp á þilfar, leystum stórseglið og afturseglið. Ég sendi Mike niður til að ræsa vélina, meðan við Patch skálkuðum lúkuraar, und- um upp stórseglið og strengdum það fast í nálarnar. Mótorinn tók við sér og ég fann stimpil- slögin undir fótum mér. Sætröll- ið var allt í einu orðið lifandi. Við drógum julluna um borð, skipið titraði af lífi og við höfð- um lokið við að gera sjóklárt. Þegar ég var frammá, að hagræða brandaukaseglinu á forstagnum, heyrði ég mótor- hljóð utan af hafi. Ég stóð kyrr augnablik og hlustaði, því næst slökkti ég á akkersljósinu og kallaði til Mike, að hann skyldi auka hraðann. Þétta gæti verið skemmti- snekkja, sem var að koma inn, en það var harla ólíklegt að slík- ur farkostur legði í þá áhættu, sem því var samfara að smjúga inn á höfnina í Lulworth að næturlægi; og ég hafði, vægast sagt, lítinn áhuga fyrir að vera tekinn með Patch um borð. Við vorum ólöglegir og mér var mik- ið í mun, að komast óséður til hafs. Ég flýtti mér að slökkva ljósin niðri og sendi Patch fram eftir til að hj álpa Mike, sem stóð sjálfur við stýrið meðan þeir hömuðust á akkeriskeðjunni. Hljóðið frá bátnum, sem var á innleið var nú orðið greinilegt. Stimpilslögin bergmáluðu frá klettunum. Hvít toppljósin tóku dýfur þegar þau komu í ljós í innsiglingunni. Græna stjóra- borðsljósið sást og svo það rauða, þegar skipið beygði. „Akkerið er uppi kallaði Mike. Vindið upp stóra brandauka- seglið, ég halaði inn á skautinu. Sætröllið fór að taka við sér og sveigði í áttina út. Hinn bátur- inn var kominn hægra megin í innsiglinguna. „Hver heldurðu að þetta sé, lögreglan,“ spurði Mike. „Ég veit það ekki,“ svaraði ég. „Komdu upp afturseglinu.“ Andliti Patch brá fyrir í myrkrinu, eins og Ijósum depli þar sem hann starði út á sjóinn, en svo hraðaði hann sér til að aðstoða Mike. Ég hægði á vél- inni og vonaðist til að við slypp- um óséðir út í myrkrinu. Ennþá var vindurinn hægur, en hraðinn jókst óðum. Hinn báturinn nálgaðist hægt. Hann hafði ljósvarpa og beindi honum að klettunum beggja megin við innsiglinguna og hélt sig miðja vegu. Við stefndum beint á þá með 331

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.