Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Síða 22
sér á flot aftur með eigin véla-
afli, eftir 7 kl. stunda töf, en
þá var búið að fleygja útbyrðis
2500 jámstöngum til að létta
það.
Ferðinni var svo haldið áfram
til Kaupmannahafnar, þar sem
kafarar rannsökuðu botn skips-
ins, en fundu engar skemmdir.
I Höfn var skipið litið fremur
óhýru auga, og ástæðan var auð-
sæ: Stærsta skip Dana var all-
miklu minna en það sænska.
Svo var ferðinni haldið áfram
til London, og þangað komið án
frekari óhappa. Þegar uppskipun
var lokið, var gengið úr skugga
um að skipið hafði ekki skemmst
neitt við strandið, og var mönn-
um það mikið gleðiefni.
í London fékk „Emst Merck“
nú það vandasama hlutskipti að
flytja peninga fyrir brezku ríkis-
stjórnina, var það £ 156,000 lán
til Tyrklands. Aukþessarar miklu
peningafúlgu, voru tekin matvæli
og aðrar nauðsynjar til setuliðs-
ins á eyjunni Möltu.
Árið 1863 kom skipið aftur
til heimalandsins, og nú þurfti að
endurbæta vélarnar, og ákveðið
að gera það í Nyköping. Þegar
þangað kom, var skipinu tekið
með miklum fagnaðarlátum.
Skipt var um eimkatla í skipinu,
og var það nokkurra mánaða
verk. — 1 blaðinu, Söderman-
lands Láns Tidning, var skrifað
á þá leið, að skipið „væri það
eina í Svíþjóð, sem búið væri
eimkötlum smíðuðum úr bessem-
er stálplötum.“
Að viðgerð lokinni lét skipið úr
höfn hlaðið komvörum til Lond-
on. Þaðan fór skipið með kola-
farm til Egyptalands.
Sumarið 1864 var „Emst
Merck“ í Stockholmi, og kom til
greina að flytja sænska útflytj-
endur til Norður Ameríku.
Nokkur orð um útflytjenda-
hópinn í „Emst Merck“. — Sam-
kvæmt Södermanlands Lans
Tidning — segir þar að hann
sé hluti af þeim mikla fjölda
manns sem hinn óþekkti útflytj-
enda agent Mr. Tefft, lokkaði
til U.S.A. með hneykslanlegum
aðförum. Þóknunin sem umboð
hans fékk nam 1 Ríkisdal á nef
hvert. Hann leitaði meðal annars
eftir starfsmönnum í námur og
við skógarhögg, en þegar hóp-
urinn svo kom til New York eða
annara hafna í U.S.A. (venju-
lega lá leiðin um Grímsby og
Liverpool), var oftast ekki annað
starf fyrir hendi en að láta inn-
rita sig í her Norðurríkjanna,
sem þá áttu í borgarastyrjöld við
Suðurríkin vegna þrælahaldsins.
Ferðin yfir Atlantshafið gekk
fljótt, og eftir nokkurra mánaða
dvöl meðal annars í New York,
var haldið til London.
Johan Hólm ríkissáttsemjari,
útgerðarmaður „Ernst Merck“,
stöðvaði útborganir um haustið
1864, hnekkti það gjaldþrot mjög
áliti þjóðarinnar. Mörg stór er-
lend verzlunarfyrirtæki voru
flækt í fjármálavafstur Holms,
og neyddust einnig til að lýsa
gjaldþroti. í uppgjörinu var
„Ernst Merck" aðeins virtur á
350,000 Ríkisdali, smíðakostnað-
ur hans var þrefalt hærri.
í febrúar 1865, var hann seld-
ur J. Thomas, T. Bonar & Co. í
London.
Sögur komust á kreik um það,
að nokkrar óeðlilegar tafir hefðu
orðið á afhendingu skipsins, með-
al annars hefðu fulltrúar hinna
ensku kaupenda látið falla miður
vingjarnleg orð um Svíana. Vík-
ingablóðið í fyrsta stýrimanni
sagði þá til sín, og rétti hann
einum Bretanum vel útilátinn
pústur. Liedqvist skipstjóri varð
jafn vel að setja fram kröfu um
að stöðva skipið, til þess að fá
laun skipshafnarinnar greidd, en
það mál leystist þó friðsamlega.
I einni ferð skipsins 1866, á
vegum nýju eigendanna, kom
upp mikill eldur í skipinu, og var
það flutt stór skemmt til Genua.
Þar var gert við það, en nokkr-
um árum síðar fórst það á Mið-
jarðarhafi.
Eftir sænska mánaðar-
ritinu „Sjömannen b.71
Hallgr. J. þýddi.
FRÉTTIR
1 STUTTU MÁLI
Japanir hyggja ekki á smíði
á öðru kjamorkuskipi, fyrr en
hagkvæm og sparneytin kjam-
oi’kuvél verður tilbúin.
Vopnaðir verðir verða hafðir
á „Queen Elisabeth II.“, til að
hindra rán samanber flugvélarán.
&
Japanskt byggingaverð á
skipum, t. d. tankskipum og
málmgrýtisskipum, fyrir árið
1973-1975 er 100 dollarar á hvert
tonn. 1966 var það eitthvað um
60 dollarar.
dk
Heimsskipaflotinn var 1. 9.
1970, 29 317 skip, eða 213,7
milljónir brt.
U.S.A. vill innan næstu 10 ára,
byggja 300 ný skip (þetta á við
verzlunarskip). Kostnaður verð-
ur 9,8 milljarðir DM.
Upplýsingar frá: Institut fúr
Seeverkehrswirtschaft Bremen.
Stærð skipafélaga í heiminum
og brúttófjöldi.
Mitsui-Osk-Lines, Skip brt
Japan: 94 776 904
Hapag-Lloyd. AG. Hamb., Bremen 118 754 141
Nippon Yusen Kaisha. Japan 90 729 780
Ocean Steamship Co. London .... 105 698 795
Kawasaki Kisen. K.K. Japan .... 58 486 837
í t. d. 20 sæti er: W. Wilhelmsen, Oslo 51 313 930
í 22 sæti Axel Johnson, Stockholm .... 42 309 978
VlKINGUR
310