Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Side 30
Halldór Ingimarsson
skipstjóri
318
ItillMNIIMG
Aðfaranótt 17. sept. s. 1. varð
það sviplega slys að Halldór Ingi-
marsson skipstjóri, Breiðagerði
2, fórst í hörðum bifreiðaárekstri
hér í borg. Var hann einn í bíl
sínum er árekstur varð milli bíls
hans og stórs langferðabíls full-
setinn farþegum. Var Halldór
örendur er komið var með hann
á slysavarðstofuna skömmu eftir
slysið.
Okkur, sem vorum honum
persónulega kunnugir og um-
gengust hann náið, var fullljóst
að á síðari árum gekk hann ekki
heill til skógar og höfðum því
getað vænst þess að fráfall hans
bæri að á annan hátt en raun
varð á, en lögmáli lífsins verður
ekki breytt, og enginn ræður
sínum næturstað.
Halldór Ingimarsson var fædd-
ur í fremri Hnífsdal í Eyrar-
hreppi 4. des. 1905, sonur hjón-
anna Ingimars Bjarna tar,
bónda þar og skipstjóra, og odd-
vita Eyrarhrepps um langan ald-
ur. Auk oddvitastarfanna vann
hann mikið og ötullega að alls
konar félagsmálum, einkum á
sviði verkalýðsmála og hélt þar
rösklega fram málstað þeirra, er
minna máttu sín. Móðir Halldórs
var Halldóra Margrét Halldórs-
dóttir, annáluð gæða kona.
Að honum stóðu í báðar ættir
traustir vestfirzkir stofnar, sem
hér verður sleppt að rekja.
Systkini Halldórs voru Elías
forstjóri, sem er látinn fyrir
nokkrum árum. Ekkja hans er
Guðný Jónasdóttir frá Hnífsdal.
Bjarni skipstjóri, kvæntur Mar-
gréti Elísabetu Hjartardóttur frá
Hnífsdal. Margrét gift Hallgrími
Guðmundssyni fv. skipstjóra, nú
forstjóri Togaraafgreiðslunnar,
Rósamunda gift Sigurði Isólfs-
syni, söngstjóra, og Ingimar,
verzlunarmaður ókvæntur.
Eins og títt var um unglinga
á uppvaxtarárum Halldói’s stund-
aði hann alls konar störf til sjós
og lands og fljótt beindist hugur
hans að sjónum. Var þá oftast
byrjað á smærri bátum í þorp-
inu en síðar lá leiðin á „stóru"
bátana á Isafirði og loks á tog-
arana fyrir sunnan, sem þá voru
óðurn að ryðja sér braut.
Um tvítugs aldur mun Halldór
hafa byrjað sjómennsku á tog-
urum með Aðalsteini Pálssyni,
skipstjóra, frá Hnífsdal, lands-
þekktum öðlingsmanni. Áttu
Hnífsdælingar þar góðan hauk í
horni meðan hans naut við.
Þar með hófst um 40 ára nær
samfelldur togarasj ómannsferill
Halldórs. Fyrst sem háseta,
en eftir að hann lauk stýri-
mannsprófi 1927, var hann um
nokkur ár stýrimaður á ýmsum
togurum, en tók síðan við skip-
stjóm á „gamla“ Karlsefni, eign
samnefnds skipafélags, sem
Geir Thorsteinsson stjómaði
löngum og síðar í samvinnu við
Ragnar son sinn.
„Gamli Karlsefni", var seldur
til Færeyja 1946, en í hans stað
kom nýsköpunartogarinn Karls-
efni, og fylgdist Halldór með
byggingu skipsins og varð sam-
fellt skipstjóri á því skipi til
1962 að hann hætti skipstjóm.
Mun hann þá hafa verið farinn
að finna fyrir þeim sjúkdómi,
VlKINGUR