Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Blaðsíða 60
tengja kasettutæki, sem ber nafnið
MT-’OO. Á kaSettu má geyma
heilu kortin. Þegar taka skal kort
upp á kasettu er farið að ég eftir-
farandi hátt: Á tilteknu hafsvæði
eru allir punktar sem máli skipta
settir inn á myndritann og síðan er
þetta kort tekið upp á kasettu.
þegar aftur er komið á sama haf-
svæði er kasettan sett í kasettu-
tækið og kemur þá kortið fram á
video-Plotternum. Þurfi að auka
við eru nýir punktar settir inn, en
aðrir þurrkaðir út sé þeirra ekki
lengur þörf, t.d. hafi bauja verið
tekin upp eða hún færð úr stað.
Tækjasamstæðan LC-°00,
gervitunglamóttakari og FSN—
°1B ásamt myndritanum og kas-
ettutækinu gera mögulegt að hafa
kort fyrir framan sig í brúnni á
sama hátt og radarinn. En ég hef
oft saknað þess að hafa ekki þessa
möguleika, sérstaklega á bauju-
siglingum þar sem umferð er
mikil.
Með tækjum þeim sem hér á
undan eru nefnd liggur svarið við
spumingunni „hvar er ég“ í aug-
um uppi.
Umboðsmenn Furano hér á
landi er Skiparadíó hf. Vesturgötu
26b Reykjavík, sími: 2 02 30.
Samkvæmt upplýsingum þeirra er
verð tækjanna svo sem hér segir:
LC-°00 kostar 16500 kr.
(1.650.000 gkr.), FSN-°1B er á
63.200 kr. (6.320.000 gkr.),
Video-Potter GD-’02 kostar
41.000 kr. (4.100.000 gkr.) og
MT-100 12.300 kr. (1.230.000
gkr.).
Þegar grein þessi kemur fyrir
augu lesenda verður líklega búið
að setja fyrstu tækjasamstæðuna
niður í skip hér á landi. Að sögn
umboðsmanna hefur Landhelgis-
gæslan keypt fyrstu samstæðuna
sem þeir hafa selt.
Áhyggjufull kona kom til lög-
reglustöðvarinnar í stórborginni,
til þess að tilkynna hvarf eigin-
manns síns. Lögreglustjóri bað
hana um nánari lýsingu á mann-
inum. Hún sagði: „Hann er um
1.65 cm. á hæð, sköllóttur, hefur ör
á nefinu, er fremur ógnvekjandi á
svipinn, er í bomsum, haltrar að-
eins, lyktar eins og full skál af
hvítlauk, er rykugur af sígarettu-
ösku, vinstra eyrað er ákaflega
þykkt,“ og síðan hikandi „heyrðu
annars lögreglustjóri, við skulum
bara gleyma þessu.“
★
Hversvegna hafa svo margir
Hafnfirðingar rispuð andlit?
Þeir eru alltaf að myndast við að
borða með göfflum.
Elskan, ég skal útbúa eitthvað handa þér í
eldhúsinu, þvi þú hlýtur að vera glorsolt-
inn eftir svo langa ferð.
60
VÍKINGUR