Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Side 24
En hverfum nú aftur að lífsbar- áttunni. Um miðnættið fréttist að opna ætti miðin á Tungunni í Húnafló- anum. En það svæði hafði verið lokað fyrir togveiðum. Var nú stefnan sett vestur á bóginn og keyrt á öllu útopnuðu. Föstudagur 17. júní Þjóðhátíðardagurinn rann upp heiður og fagur með tíu til fimm- tán tonnum í fyrsta holi. Ekki byijaði það nú amalega! Eg kom upp um tíu leytið um morguninn. Fögur fjallasýn blasti við, þar voru Strandafjöllin í vestri, en til austurs sást til útvarða Eyjafjarðar, Stráka og Gjögurs. Ekki taldi ég skipin sem hér voru á veiðum, en þetta var eins og í mauraþúfu, iðandi til og frá. Ágætt og jafnt fiskirí hélst allan daginn og nóttina. En þá fór að tregðast og fiskurinn að smækka. Laugardagur 18. júní Tungunni var lokað um hádeg- ið. Aflinn sem hér hefur veiðst er að mestu vænn þorskur, þó var hólfinu lokað vegna smáfisks í afla. Nú komu fréttir af því að skipin hefðu verið að fá fisk rétt við hólfið á Strandagrunni. Við þangað, en þá kom í ljós, að flest skipanna voru að veiðum alveg við línuna og það í heldur smáum fiski. Við reyndum þama utar en afli var lítill, en þó góður fiskur. Enn á stím í leit að fiski og nú á Strandagrunnshom, en þar hafði orðið vart við fisk. Þar var kastað um kvöldið. Sunnudagur19. júní Sæmileg veiði í nótt, en þegar líða tók á daginn fór að vera flot- trollsfiskirí. Þá var ákveðið að skipta yfir á flotið. Mér skilst að það sé ekki mjög vinsælt veiðar- færi hjá köllunum, ekkert nema 24 vinnan við það og lítið i það að hafa. En út fór það nú samt og eftir fyrsta holið voru í 20 tonn. Ég fór niður í móttökuna til að sjá at- ganginn þar. Það var gaman að sjá þessa fiskikös af stórum og falleg- um þorski og ánægjusvipinn á köllunum yfir góðri veiði. Þegar svona stór hol koma ganga allir í skipshöfninni í að- gerð, loftskeytamaður, vélstjórar og kokkur. Ekki mætti þó nema einn háseti af hinni vaktinni þar sem kurr var í köllunum út af kaupi sem þeir höfðu ekki fengið greitt í stoppi þegar skipið var síðast í slipp. Sæmilegt fiskirí hjá flestum skipanna og mok hjá nokkrum. Allt upp í 35 tonn í holi. Mánudagur 20. júní til fimmtu- dags 23. júní Fiskiríið minnkaði í nótt og eftir hádegið var flottrollið tekið inn- fyrir og lagt af stað í fiskileit. Það var mikil vinna við að ganga frá flottrollinu, enda stórt og mikið veiðarfæri. Nú var reynt víða norður og vestur frá, í Þverál og á Halanum. Árangur var lítill en góður fiskur það sem fékkst. Ég hef að mestu eytt tíma mín- um í að bródera, vera uppi í brú eða í uppvaskinu með Eyþóri. Veðrið hefur haldist gott; gola og ládautt eins og veðurfregnimar orða það. Heldur finnst mér mannskapurinn daufur þessa dagana, enda lítið að gera. Ég er að velta því fyrir mér hvað það geturveriðsemgerirsjómennskuna svona eftirsóknarverða. Að ein- hverju leyti er það þénustan, sem þó er ákaflega misjöfn eftir skip- um og afla. Ef lítið veiðist,er vaktin löng og lítið hægt að hafa fyrir stafni. Ef ekki er dittað að veiðarfærum, er ekkert að gera, nema að bíða eftir að híft verði næst. Undir slíkum kringumstæð- um finnst mér helst vera hægt að líkja þessu við fangelsi. Menn lesa, spila og hlusta á útvarpið, en það er ekki nóg til að fullnægja félagslegri þörf þessara manna, sem helst kemur fram í háværum samræðum um kvennafar, fyllirí, útgerð og fiskirí, með svolítilli pólitík í bland. í brúnni er kannski ekki mikið að gera heldur. En þar verður þó að fylgjast með tækjunum og svo er hægt að spjalla aðeins í talstöð- ina og grínast við hina skipstjór- ana. En meira er það nú ekki. Þess vegna er ég ekkert hissa á því þótt kallarnir vilji skvetta úr sér þegar í land er komið. Á rúm- um sólarhring þurfa þeir að geta innbyrt hluti sem þeir hafa ekki haft tækifæri til á síðustu tólf. Ekki kann ég þó nein ráð við þessu. Svona er og verður lífið til sjós. Stundum stanslaus vinna, og svo þeir dagar sem bara fara í það að bíða eftir fiskinum. Mér dettur í hug stefna ríkisstjórnarinnar og Hafrannsóknastofnunarinnar, sem virðast ekki hafa neina raun- hæfa samvinnu sín á milli. Ríkis- stjómin hamast við að fjölga skuttogurunum, (vafalaust til að halda atkvæðunum), en Hafrann- sóknastofnunin við að loka veiði- svæðum þessara skipa og setja á allskonar höft og bönn. Það er víst ekki sama hvort trollið hangir aft- an í skuttogara fyrir norðan, eða togbáti fyrir sunnan. Föstudagur 24. júní Þá erum við komin á grálúðu- miðin sem Dóri hefur verið að tala um allan túrinn. Það má því segja að hann sé kominn á óskamiðin sín. Ekki hefur þó afraksturinn ver- ið of mikill, en þó sæmilegur. Við rákum í eitt 5 tonna hol í dag sem er með því skásta. Rétt fyrir mið- nættið var híft og var þá allt rifið og slitið, þannig að skipta varð yfir VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.