Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Blaðsíða 18
Torfunesbryggja á Akureyri. f framtíðinni er áætlað að fylla upp svæðið sem merkt er
með skástrikum á myndinni.
8 skemmtiferðaskip sem ýmist
lágu úti á Polli eða komu upp að
bryggju. Inni í þessu dæmi er
bryggjan á Krossanesi, því hún
tilheyrir Akureyrarhöfn. Á síðasta
ári var landað þar 41.000 tonnum
af af loðnu sem var töluverð
aukning frá því árið áður.“
— Er skortur á bryggjuplássi á
Akureyri?
„Nei, ekki vil ég nú segja það.
Að vísu kemur það fyrir að erfitt
getur verið að koma bátum upp að
bryggju, en það gerist ekki oft.
Okkar stóra vandamál í dag eru
smábátarnir. Þeim hefur fjölgað
mjög ört á undanförnum árum.
Nú er enginn maður með mönn-
um nema hann eigi trilluhom. Við
höfum viðlegupláss fyrir rúmlega
hundrað smábáta eins og er, en
það er of lítið, sérstaklega yfir
sumartímann.“
— Og hvað er þá til ráða?
Baldvin brosir og lítur út um
gluggann þar sem Torfunes-
bryggja blasir við.
„Það hefur verið mikið talað
um að fylla upp þessa þama,“
segir hann og bendir út um
gluggann. „Sú ákvörðun er að vísu
dálítið umdeild, en engu að síður
hefur það verið ákveðið. Þó er
líklegt að aðeins hluti hafnarinnar
verði fylltur upp. Eftir stendur þá
dágott bryggjupláss og er hug-
myndin að nýta það meðal annars
fyrir smábáta. Annars er ekki
endanlega búið að ganga frá
þessum málum ennþá. Það verður
gert einhverja næstu daga og ekki
ósennilegt að framkvæmdir hef jist
nú í vor eða sumar,“ sagði Baldvin
um leið og hann teygði sig aftur í
talstöðina og gerði aðra tilraun til
að kalla í Svalbak.
En ekkert svar.
G.A.
18
VÍKINGUR