Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Blaðsíða 20
r
Askorun tíl kvenna
Það er ekki á hverjum degi sem
Víkingi berst efni frá blessuðu
kvenfólkinu. Betra að slíkt gerðist
oftar.
Gígja Möller frá Akureyri hefur
verið svo væn að leyfa okkur að
20
birta í þessu blaði dagbók sem
hún hélt þegar hún fór einn túr
með b/v Svalbaki árið 1977. Sjálf
segist hún hafa haft gott af þessari
ferð; augu hennar hafi opnast
fyrir ýmsu í lífi sjómanna sem hún
hafði ekki áður gert sér grein fyrir,
jafnvel þótt hún hafi verið gift
sjómanni í 25 ár.
Það er því ekki úr vegi að nota
hér tækifærið og skora á sjó-
mannskonur um allt land að
senda okkur efni. Það gætu t.d.
verið hugleiðingar um það,
hvernig það er að vera sjómanns-
kona og þá miklu ábyrgð sem því
starfi fylgir. Það mættu líka vera
frásagnir, sögur eða annað efni
sem viðkomandi hefur áhuga á að
birta.
Slíkt yrði ekki aðeins til að auka
fjölbreytni blaðsins, heldur gæti
það orðið skemmtileg lesning og
ekki síst fróðleg fyrir sjómenn.
Því miður gerist það allt of
sjaldan að sjómannskonur— með
þessu orði er átt við konur giftar
sjómönnum — tjái sig á opinber-
um vettvangi um stöðu sína. Það
er eins og slíkir hlutir séu í einka-
eign velstæðra húsmæðra úti í bæ.
Kannski finnst mörgum konum
að þær hafi ekkert til málanna að
leggja. Öðrum finnst að það litla
sem þær hafi að segja vera svo
ómerkilegt, að ekki taki því að tala
um það.
Hvaða kona kannast ekki við
slíkt tal?
Einn einstaklingur telur sig
kannski búa yfir fánýtri reynslu
sem ekki er vert að tala um. En
þegar hann fæst til að segja frá
þessari reynslu, getur hún orðið
öðrum dýrmætur fjársjóður. Það
sem stoðar einum lítið getur
hjálpað öðrum mikið.
Þessvegna skora ég nú á sjó-
mannskonur að taka sig saman í
andlitinu og senda okkur línur eða
hafa samband við blaðið eftir
öðrum leiðum.
G.A.
VÍKINGUR
Landssmiðjan
SÖLVHÓLSGÖTU-101 REYKJAVIK SÍMI 20680 TELEX 3307
viðgeréaþjónusta
LANDSSMIDJAN annast viðgerðaþjóustu á öllum teg-
undum loftpressa, ioftverkfæra og tækja.
Ef óskað er sjáum við einnig um fyrirbyggjandi viðhald.
JltlasCopcc
var stofnað 1873 og framleiðir loftverkfæri, býður einnig fram þjónustu
fyrir verktaka við vinnu tilboða og aðstoðar við val á tækjum og
aðferðum.