Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Qupperneq 37
Pálsson sem er fyrsti stýrimaður
hjá mér og er giftur danskri konu.
í Óðinsvéum er hins vegar meira
um íslendinga en þangað eru bara
40 kílómetrar. Þar er starfandi ís-
lendingafélag og haldnar sam-
komur 17. júní og 1. desember,
þorrablót o.fl. Við sækjum slíkar
samkomur og þekkjum íslendinga
sem lengi hafa búið í Óðinsvéum
en fjöldinn er á mikilli hreyfingu,
aðallega námsmenn.
Bankinn sér um allar
fastar mánaðargreiðslur
— Hvernig er frídaga kerfið
hjá ykkur?
— Stýrimenn þéna átta frídaga
fast á mánuði ef þeir eru á sjó og
yfirvinnuna geta þeir tekið út sem
frí ef þeir vilja. Þeir geta líka
fengið hana greidda en geyma það
oft og taka út sem frí til að lækka
skattinn. Þeir sem hafa mikla
yfirvinnu geta því verið 6—7
mánuði í landi ef þeir vilja lifa af
fastakaupinu. Kjörin eru alveg
ágæt er mér óhætt að segja.
Skattafrádráttur er um 8% hærri
en hjá fólki í landi en ef tekjurnar
eru komnar yfir 15.000 d.kr. á
mánuði mega þeir leggja á 64%
skatt. Skatturinn er tekinn af
manni mánaðarlega og eins sér
bankinn um að greiða allar fastar
mánaðargreiðslur t.d. fasta mán-
aðagreiðslu vegna húsakaupa,
tryggingar, rafmagn o.fl. Maður
býr bara til fjárhagsáætlun sem
bankinn sér um að framfylgja.
Maður fær þess vegna aðeins út-
borgaða þá peninga sem maður á.
Nægar tómstundir —
bíó, video, bækur og bréfaskólar
Hafið þið nóg fyrir stafni
meðan á hinum löngu siglingum
stendur?
— Það er alltaf bíó þrisvar í
viku og við höfum video. Norð-
menn reka kvikmyndamiðlun,
Norsk velfærd, við fáum tíu
myndir í einu svo sendum við
Nanok S. fer tvær ferðir á ári með matföng og mannskap í rannsóknastöðvar Ástralíu-
manna á Suðurheimskautinu. Aðeins um hásumarið er mögulegt að lenda þar, hinn hluta
ársins er þar allt ísilagt.
100 hnútar og mikil ísing. Það var
ekkert að gera nema bíða og stýra
á fullri ferð upp í sjó og vind og
vona að skipið rækist ekki á borg-
arísinn sem var þama allt í kring.
Ég las það í áströlskum blöðum að
þeir hefðu beðið sína síðustu bæn.
í fríi sex mánuði sl. ár
Hinn hluta ársins siglum við svo
fyrir Grænlandsverslunina á
austurströndina, Angmagsalik og
fleiri staði. Það eru 15 daga túrar
og lagt upp hjá Grænlandsverslun
í Álaborg. Ég get því alltaf
skroppið heim til Svendborgar á
milli.
— Hvemig kunnið þið við
ykkur á Fjóni?
— Mjög vel. Ég var í fríi sex
mánuði á síðasta ári og fjölskyld-
an hefur siglt um allan heim með
mér. Þau geta komið með hvenær
sem þau vilja. Það er ekki mikið
um Islendinga í Svendborg, ég
held þeir séu tveir núna fyrir utan
skólabróður minn Jón Kristján
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
VÍKINGUR
37