Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1982, Page 51
Hnísa
og dragi sig eitthvað suður á bóg-
inn yfir háveturinn. Hnísan finnst
á strandsvæðum mjög víða í
heiminum. Að mestu leyti er um
sömu tegundina að ræða en þó eru
einstaka stofnar taldir sjálfstæðar
tegundir eins og við Falklands-
strendur, við S-Ameríku og í
Kaliforníuflóa.
Sandlægja ( + )? Við Kyrra-
hafsströnd N-Ameríku lifir all-
stór (10—15 m) skíðishvalategund
sem þarlendir nefna gráhval eftir
litnum. Hvalur þessi sem telst til
sérstakrar ættar innan skíðishvala,
er nú einnig talinn hafa lifað í
Atlantshafi, en hafi dáið þar út
eða verið útrýmt á 18. öld. Grá-
hvalurinn er dæmigerður strand-
hvalur og fer jafnvel upp í árósa
og grunn lón. Við uppgröft í hinu
stóra hópi, Suðursjó í Hollandi,
hafa fundist hvalbein sem vís-
indamenn telja vera af þessari
tegund. í náttúrulýsingum Jóns
Guðmundssonar lærða er uppi
var á 18. öld, er að finna teikningu
og lýsingu af hval sem hann nefnir
sandlægju og segir finnast hér við
land. Enskur fræðimaður hef-
ur skrifað grein um þessa lýsingu
Jóns og telur hana vera lýsingu á
gráhval. Slíkt er þó engan veginn
sannað.
Nöfn nokkurra hvala við ísland á nokkrum erlendum tungum.
íslenska enska danska þýska færeyska
steypireyður blue whale blaahva) Blauwal rovður
langreyður fin-whale finhval Finnwal nebbafiskur
sandreyður sei-whale sejhval Seiwal síldreki
hrefna minke whale vaagehval Zwergwal sildreki
hnúfubakur humpback (whale) pukkelhval Buckelwal kúluböka
íslands-sléttbakur right whale nordkaper Nordkaper slættuböka
norðhvalur bowhead whale nordhval Grönaldswal ?
búrhvalur spermwhale kaskelot Pottwal Ágústur
andanefja bottle-nosed-whale döggling Entenwal dögglingur
svínhvalur næbhval ? ?
háhymingur killer whale spækhugger Schwertwal aðuhvalur
marsvín pilot whale grindchval Grind grind(afiskur)
mjaldur beluga hvidfisk Weisswal hvíthvalur
náhvalur narwhale narhval Narwal náhvalur
stökkull bottle-nosed-dolphin öresvin Grosser Tummler ?
leiftur white-sided-dolphin hvidskæving Delphin ?
hnýðingur white-beaked-dolphin hvidnæse Delpin hvessingur
höfrungur common dolphin delphin Gemeiner Delpin springari
hnísa harbour porpoise marsvin Kleiner Tiimmler nýsa
UNILON:
Fjölhæfar plötupakkningar sem þola m.a.: vatn, gufu-
þrýsting, olíur, kolvetni, flestar sýrur, lútarefni, hita
upp í 510°C.
NEBAR
hefur fjölbreytta motkunarmöguleika vegna sveigjan-
leika og hitaþols, frá — 30°C. — + 150°C.
NEBAR þolir: kæli- og frystivökva, bensín, smurolíur,
vatn, loft og uppleysandi efni.
G. J. Fossberg,
vélaverzlun Ltd.
Skúlagötu 63, Reykjavík
Sími18560