Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Side 30
... AllarNorður-
landaþjóðirnar nema
ísland, hafa fengið
nýju tölvuratsjána
ARPA, þ.e. ratsjá
meðsjálfvirkri
útsendingu og
viövörunum gegn
árekstri...
sínu fegursta þessa 2 daga
sem ráðstefnan var. Það var
fyrst á þriðja degi, þegar átti að
fara i skoðunarferð til Vest-
mannaeyja.að gerði ófært veð-
ur, en i stað þess sáu fundar-
menn Gullfoss, Geysi og Þing-
velli i sunnlenskri rigningu eins
og hún getur þest og mest orð-
iö.
Einn helsti ávinningur svona
fundar eru hin gagnkvæmu
tengsli og skoðanaskipti, sem
eru okkur islendingum einkar
mikilsverö svo að við eing-
angrumstekki.
STCW-samþykktin
Það kom fram, að kennsla
hér i ratsjársamliki og ratsjár-
siglingu — 24 std., á 2. stigi
fyrir sérstak skirteini i radar-
siglingu og siðar aðrar 24 std.,
á þriðja stigi er algjört lágmark.
Norðurlandaþjóðirnar fylgja
nú stift ákvæðum þeim og regl-
um, sem Alþjóðasiglingamála-
stofnunin hefur sett fram í
ályktun um samræmda þjálfun
og varðstöðu sjófarenda, sem
er almennt nefnd STCW-
samþykktin, sem er
skammstöfun fyrir Standards
of Training, Certification and
Watchkeeping for Seafarers
1978 — eða staðlar varöandi
þjálfun, skirteini og varðstöðu
sjófarenda 1978. Með þessari
merku ályktun Alþjóðasigl-
ingamálastofnunarinnar hefur
verið komiö upp alþjóðlegum
kröfum í menntun sjómanna.
Allar Norðurlandaþjóöirnar
nema Island hafa fengið nýju
tölvuratsjána — ARPA (Auto-
matic Radar Plotting Aids) —
þ.e. ratsjá með sjálfvirkri út-
setningu og viðvörun gegn
árekstri, en þessarar ratsjár
verður krafist um þorð í öll ný-
byggð skip, sem eru 10.000
BRT eöa stærri næsta haust,
frá 1. september 1984. Tæki
þetta er einnig mjög mikilsvert i
sambandi við þröngar leiðir og
aðskildar, aðgreindarsiglinga-
leiðir. Stýrimannaskólar á
Norðurlöndum og viðar i
Evrópu hafa þvi lagt vaxandi
áherslu á kennslu i meðferð
þessatækis.
i beinu framhaldi af sam-
þykkt Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar (IMO) hefur
einnig verið lögð aukin áhersla
á umfjöllun um skipulag vakta i
brú — bridge procedure — og
vandlega gerða áætlun um
ferðir skipa — t.d. val siglinga-
leiðar, gögn við siglingu skipa
þ.e.a.s. leiðsögubækur o.fl. —
Passageplanning —.
Stýrimannaskólinn i Kaup-
mannahöfn hefur nú fengið
vandaðan samliki til að æfa
stjórntök (manovresimulator)
og er samlikirinn hannaöur í
samvinnu milli RACAL —
DECCA og Rannsóknastofu
skipa (Skipsteknisk Labora-
torium) iDanmörku.
FISKFRAMLEIÐENDUR
Pallagámar Höfum einnig
til geymslu til sölu allar
og flutnings 1 gerðir
á fiskafurðum flutningsbretta.
Kíi Hagstætt verð.
Betri nýting húsnæðis.
Minni pökkunarkostnaður.
Lækkaður flutningskostnaður.
EINFALT — ÖRUGGT —
ÓDÝRT.
KOMIÐ — SKOÐIÐ —
SANNFÆRIST.
Víkurbraut sf.,
Hjarðarhaga 17, Reykjavík.
Símar 11120 — 10458.